Hönnum framtíðina!
Ráðstefna um hönnun og nýsköpun verður haldin á vegum Hönnunarmiðstöðvar Íslands í Iðnó fimmtudaginn 20. nóvember nk. Ráðsefnan hefst kl. 16:00 og stendur til kl. 18:00.
Hvernig er hægt að sinna nýsköpun í hönnun og látið hana verða leiðandi afl í uppbyggingu þjóðfélagsins?
Fyrirlesarar og erindi:
- Sverrir Björnsson, Hvíta húsinu - „Ekki torfkofann aftur - takk!“
- Siggi Heimis, hönnuður - „Notum sköpunarkraftinn á óvissutímum“
- Steinunn Guðmundsdóttir, arkitekt - „Finnska leiðin, hver er hún?
- Andri Snær Magnason, rithöfundur - „Að hanna sér leið gegnum skóginn“
- Katrín Ólafsdóttir, hagfræðingu - „Hvaðan kemur hagvöxturinn?“
- Dóra Ísleifsdóttir, fagstjóri í grafískri hönnun við LHÍ - „Hugrekki og framtíðarsýn“
- Iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson - „Þjóðhagslegur ávinningur hönnunar“
Fundarstjóri er Gunnar Hilmarsson, formaður stjórnar Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Almennar umræður. Allir velkomnir!
Birt:
Nov. 18, 2008
Tilvitnun:
Hönnunarmiðstöð „Hönnum framtíðina!“, Náttúran.is: Nov. 18, 2008 URL: http://natturan.is/d/2008/11/18/honnum-framtioina/ [Skoðað:Nov. 30, 2023]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.