Fardagar
Dagsetningar þessa orðs hafa veirð svolítið breytilegar eftir tímabilum. Þó mun óhætt að fullyrða að þett hafi almennast verið fjórir fyrstu dagarnir í 7. viku sumars, sem gátu hafist á bilinu 31. maí til 6. júní. Á þessum dögum skyldu menn flytja búferlum af einni jörð á aðra. Fleira var oft miðað við þessa dagsetningu einsog greiðsla á jarðarafleigu, virðing eigna til tíundar, offurgjald til presta og fleiri gjöld og tollar.Nýi fardagur eða fardagur presta var hinsvegar ekki settur fyrr en 6. júní 1847.
Birt:
May 31, 2013
Tilvitnun:
Árni Björnsson „Fardagar“, Náttúran.is: May 31, 2013 URL: http://natturan.is/d/2007/04/11/fardagar/ [Skoðað:Sept. 30, 2023]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: April 11, 2007
breytt: Jan. 1, 2013