Efnt verður til tveggja „grænna daga“ til eflingar umhverfisfræðslu í grunnskólum Reykjavíkur á þessum vetri. Annar verður nú í haust og sá síðari að vori. Græni vordagurinn verður helgaður nánasta umhverfi skólans en græni haustdagurinn snýst um umhverfisfræðslu.

Markmiðið er að auka „umhverfisvitund“ nemenda og hvetja þá til að bera virðingu fyrir umhverfi sínu og taka ábyrgð gagnvart umhverfinu sem einstaklingur.

 

Myndin er af hrossagaukseggjum. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Aug. 28, 2007
Uppruni:
Fréttablaðið
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Grænir dagar“, Náttúran.is: Aug. 28, 2007 URL: http://natturan.is/d/2007/08/28/grnir-dagar/ [Skoðað:May 30, 2023]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: Jan. 15, 2008

Messages: