Til þess að framtíð okkar allra verði sjálfbær er mikilvægt að við pössum okkur á því að hanna með það í huga. Hönnun okkar þarf að vera útpæld og í samræmi við sjálfbæra framtíð.

Þýski iðnhönnuðurinn Dieter Rams hefur útbúið 10 boðorð hönnunar þar sem tekið er tillit til sjálfbærni.

Boðorðin 10 eru eftirfarandi:

  1. Góð hönnun er nýjungagjörn
  2. Góð hönnun gerir vöru gagnlega
  3. Góð hönnun er smekkvís
  4. Góð hönnun hjálpar vöru að vera rétt skilin
  5. Góð hönnun er hógvær
  6. Góð hönnun er hreinskilin
  7. Góð hönnun er varanleg
  8. Góð hönnun er samkvæm sjálfri sér í öllum smáatriðum
  9. Góð hönnun tekur tillit til umhverfisins
  10. Góð hönnun er eins lítil hönnun og hægt er

Myndin er af Fibonacci spíralnum. Sjá nánar um hann á Wikipedia.

Frétt af Treehugger.


Birt:
Nov. 10, 2010
Tilvitnun:
Móna Róbertsdóttir Becker „10 boðorð (sjálfbærrar) hönnunar“, Náttúran.is: Nov. 10, 2010 URL: http://natturan.is/d/2007/11/22/10-boooro-sjalfbaerrar-honnunar/ [Skoðað:Nov. 29, 2023]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: Nov. 22, 2007
breytt: Nov. 14, 2010

Messages: