Alþingi samþykkti í gær frumvarp til nýrra náttúruverndarlaga með þeirri breytingu að gildistími þeirra verði frá 1. apríl 2014. Breytingartillaga þess efnis var samþykkt með 46 atkvæðum gegn 1. Frumvarpið var samþykkt í heild með 28 atkvæðum en 17 sátu hjá.

Í atkvæðaskýringu sagði Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, að málið væri stórt og að með því væri staða náttúrunnar á Íslandi styrkt til muna.

Ljósmynd: Fjarðargljúfur, ©Árni Tryggvason.

Birt:
March 28, 2013
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Ný náttúruverndarlög samþykkt á Alþingi“, Náttúran.is: March 28, 2013 URL: http://natturan.is/d/2013/03/28/ny-natturuverndarlog-samthykkt-althingi/ [Skoðað:Sept. 30, 2023]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Messages: