Sunnudaginn 12. ágúst kl. 13:00 - 16:00 býður Landvernd upp á plöntugreiningarnámskeið í Alviðru í Ölfusi.

Námskeiðið hentar fólki á öllum aldri. Ef þið eigið plöntuhandbók þá er gott að kippa henni með. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Rannveig Thoroddsen líffræðingur. Rannveig hefur áralanga reynslu af plöntugreiningu og kennslu.

Hist verður í Alvirðu kl. 13:00. Gengið verður um svæðið og plöntur og plöntusamfélög skoðuð. Klæðið ykkur eftir veðri.

Skráning á námskeiðið er á netfangið: eirikurv@hi.is og þátttaka er öllum að kostnaðarlausu.

Alviðra er fræðslusetur Landverndar við Sogið í Ölfusi, rétt sunnan við Þrastarlund. Beygt er af þjóðvegi 1 rétt vestan við Selfoss og beygt til vinstri rétt áður en komið er að brúnni yfir Sogið (við Þrastarlund).

Verið velkomin í Alviðru.

Ljósmynd: Rauðsmári, Guðrún A. Tryggvadóttir.

Birt:
Aug. 8, 2012
Höfundur:
Landvernd
Uppruni:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Plöntugreining í Alviðru“, Náttúran.is: Aug. 8, 2012 URL: http://natturan.is/d/2012/08/08/plontugreining-i-alvidru/ [Skoðað:Nov. 30, 2023]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Messages: