Gagnagrunnur um umhverfisvænan eignarétt

Stofnendur gagnagrunnsins vilja að með þessu verða þessi einkaleyfi aðgengileg eins mörgum fyrirtækjum og mögulegt er. Aðstandendur gagnagrunnsins vonast til þess að vísindamenn, frumkvöðlar og fyrirtæki þrói nýjar vörur útfrá þessum einkaleyfum þannig að þær verði umhverfinu til góða.
Nú þegar þessi orð eru rituð eru 31 einkaleyfi hþst í gagnagrunninum. Sem dæmi má nefna að eitt einkaleyfið var í eigu Nokia þar sem aðferð við að endurnýja gamla farsíma með því að umbreyta þeim í nýjar vörur s.s. stafrænar myndavélar eða önnur raftæki. Annað einkaleyfi er frá IBM sem fjallar um kjarnahvata sem eyðir rokgjörnum lífrænum efnasamböndum og tækni við að flytja leysanlega málma í úrgangsvatni sem notaður hefur verið í augnvökva.
Grein frá Beluga.
Birt:
Jan. 25, 2008
Tilvitnun:
Beluga „Gagnagrunnur um umhverfisvænan eignarétt“, Náttúran.is: Jan. 25, 2008 URL: http://natturan.is/d/2008/01/25/gagnagrunnur-um-umhverfisvaenan-eignarrett/ [Skoðað:June 6, 2023]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: Jan. 26, 2008