Birki [Betula pubescens]

Árstími: Fyrri hluti júní eða seinni hluta ágúst. Ef birkilauf er tínt á miðju sumri er mikil hætta á að skordýr slæðist með.

Tínsla: Takist 5-10 cm sproti fremst af greinum, nýlaufgað í júní eða ársproti seint í ágúst, notið trjáklippur. Tína ber frá skemmd lauf og möðkuð. Kvisturinn á að fylgja með blöðunum því í berkinum eru líka virk efni.

Meðferð: Birki er ekki viðkvæmt í þurrkun, en nauðsynlegt er að dreifa vel úr því helst svo að lofti undir.

Ljósmynd: Ungt birkilauf, Guðrún Tryggvadóttir ©Náttúran.is.

Birt:
May 21, 2013
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Erlingur Filippusson „Söfnun og meðferð birkis“, Náttúran.is: May 21, 2013 URL: http://natturan.is/d/2010/05/28/sofnun-og-medferd-villtra-jurta-birki/ [Skoðað:June 5, 2023]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: May 28, 2010
breytt: Jan. 1, 2013

Messages: