Fréttir

Virkjanaandstæðingar undir miklum þrýstingi á Austurlandi

Í grein í Morgunblaðinu í dag er rætt við nokkra austfirðinga sem segja farir sínar ekki sléttar af því að viðurkenna það í sínu samfélagi að vera andstæðingar virkjanaframkvæmdanna á svæðinu.

Sjá greinina á Mbl.is.

nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
4. nóvember 2006 04:32
Uppruni: Árvakur hf
Deildu með vinum

Heitir álver „orkugarður“ á Þorlákshöfnsku?

stjarna og grjót Sunnlenska fréttablaðið birti í blaðinu í gær þ. 02.11. grein um álversáætlanir fyrirtækisins Arctus ehf. á Þorlákshöfn. Fyrirtækinu hefur nú þegar verið úthlutuð lóð vestan byggðarinnar í Þorlákshöfn undir svokallaðan „orkugarð“. Í fyrsta áfanga gerir fyrirtækið ráð fyrir að reist verði álver, með 60 þúsund tonna framleiðslugetu á ári, og endurbræðsla sem bræðir ál til frekari vinnslu. Arctus var stofnað árið 2004 en félagið er í eigu Jóns Hjaltalíns Magnússonar verkfræðings og fleiri aðila. Samkvæmt tímaramma verkefnisins er gert ráð fyrir að umhverfismat liggi fyrir árið 2009 og framkvæmdum við fyrsta áfangann, áðurnefndum 60 þúsund tonna álveri, verði að fullu lokið árið 2012, svo fremi að orkan fáist afhent á þeim tíma.

þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
4. nóvember 2006 01:58
Uppruni: Sunnlenska fréttablaðið
Deildu með vinum

Alþjóðleg herferð gegn loftslagsbreytingum

Global Climat Change Iceland Laugardagurinn 4. nóvember 2006 er dagur alþjóðlegrar loftslagsherferðar sem í ár gengur yfir í 48 löndum. Í fyrra tóku 20 lönd þátt í herferðinni með ýmsum hætti og í ár hefur löndunum fjölgað um rúmlega helming, þar á meðal er Ísland. Fréttir af herferðinni má sjá á www.globalclimatecampaign.org

Á Lækjartorgi frá kl. 13:00 á laugardaginn og fram eftir degi, munu Íslandsvinir standa fyrir myndasýningu sem varpar ljósi á þátt Íslendinga í þessu vandamáli. Með þessari herferð eru lönd heims að sýna samstöðu gegn þeim vanda sem loftslagsbreytingar eru að valda jörðinni og heiminum í heild og kalla á raunverulegar aðgerðir frá stjórnvöldum. Á undanförnum misserum hefur meðvitund heimsbúa vaknað í æ meira mæli og ýmsir reynt að vekja athygli á grafalvarlegum afleiðingum loftslagsbreytinga.

þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
2. nóvember 2006 05:20
Uppruni: Íslandsvinir
Deildu með vinum

Bráðabirgða-tilrauna boranir og bráðabirgða vegir á Stóra Skarðsmýrarfjalli og við Hverahlíð

„Bráðabyrgðaframkvæmdaleyfi“ fyrir borholum og vegum á Stóra Skarðsmýrarfjalli var samþykkt í sveitarstjórn Ölfuss þann 30. 03. 2006. Eina vandkvæðið er að svonefnt „bráðabirgðaframkvæmdaleyfi“ er ekki hugtak sem viðurkennt er í löggjöfinni. Samningur um fimmhundruð milljón króna greiðslu til sveitarfélagsins, fyrir skjóta afgreiðslu umsagna og hröðun leyfisveitinga til OR gekk í gildi milli sveitarfélagsins og Orkuveita Reykjavíkur í kjölfarið (þ. 27. 04. 2006).
Landvernd, Björn Pálsson og Eldhestar hafa kært ofangreint „bráðabirgðaframkvæmdaleyfi“ til Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
2. nóvember 2006 02:17
Uppruni:
Deildu með vinum

Spurningar til Framtíðarlandsins

framtidarlandið gult blóm

Varðandi haustþing Framtíðarlandsins og fréttir af mögulegu framboði eða undirbúningi lista hefur undirrituð falast eftir eftirfarandi upplýsingum hjá forsvarsmönnum Framtíðarlandsins:
-

  1. Hvenær hyggst bráðabirgðastjórn Framtíðarlandsins efna til stjórnarkosninga í félaginu?
  2. Hvernig geta skráðir félagar afskráð sig, líki þeim ekki framboðshugmyndirnar af einhverjum ástæðum?
  3. Hvernig hugsar Framtiðarlandið sér að fara með umboð 2.500 skráðra félaga í framtíðinni, án samráðs við þá?
  4. Hverjir eru í undirbúningsnefnd Framtíðarlandsins um lista til Alþingiskosninga?
  5. Hvernig starfar Framtíðarlandið á bak við tjöldin?
  6. Hvenær fá félagsmenn Framtíðarlandsins að frétta hvað er að ske og hvað þeir geta gert?
  7. Af hverju var mögulegt framboð sem og stefna „flokksins“ Framtíðarlandið ekki borin undir haustþingið?

þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
31. október 2006 15:51
Uppruni: Framtíðarlandið
Deildu með vinum

123829879904926927928929930931932954968969970

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012   2013  
jan   feb   mar   apr   maí   jún   júl   ágú   sep   okt   nóv   des  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Nýleg orð í belg

18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
VERNDUM LÍFRÍKI MÝVATNS
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
Bláa tunnan
Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.
Guðrún Tryggvadóttir 21. 03. 2013 08:51:
Bláa tunnan
Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með ...
Daði 19. 03. 2013 17:40:
Heimildarmyndin Hvellur frumsýnd
Heimildarmyndin Hvellur verður sýnd í síðast sinn í kvöld þ. 14. mars í Bíó Paradís ...
Guðrún Tryggvadóttir 14. 03. 2013 11:36:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.