Fréttir

Viðurkenningar á Degi umhverfisins

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, veitti Náttúrunni.is í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum. Við sama tækifæru voru nemendur í Stórutjarnaskóla í Ljósavatnsskarði og Foldaskóla í Grafarvogi útnefndir Varðliðar umhverfisins. Við athöfnina í dag opnaði umhverfisráðherra einnig nýtt Endurvinnslukort Náttúrunnar.is sem sérstaklega er hannað fyrir snjallsíma og spjaldtölvur.

Kuðungurinn

Náttúran.is hlaut Kuðunginn fyrir samnefnda „framúrskarandi vefsíðu um umhverfismál, og jákvæð áhrif þess á almenning og fyrirtæki.“  Segir í rökstuðningi valnefndar að stofnendur og eigendur hennar séu brautryðjendur á þessum vettvangi „knúin áfram af áhuga og umhyggju fyrir náttúrunni og umhverfinu.“

„Vefsíðan hefur innleitt nýja hugsun í umhverfisvitund Íslendinga. Þar eru á einum stað aðgengilegar leiðbeiningar sem auðvelda fólki að taka upp sjálfbæran og umhverfisvænni lífsstíl.

Vefurinn gengir mikilvægu hlutverki í upplýsingamiðlun og menntun almennings og fyrirtækja. Þar er hægt að fá upplýsingar um umhverfismál heimilisins, um orkusparnað, vistvæn innkaup, betri nýtingu matvæla, sorpflokkun, um hvernig skuli flokka hluti og hvar sé hægt að skila hverjum hlut, þar er að finna skilgreiningar á hverjum flokki fyrir sig, sem oft vefst fyrir fólki. Einnig geymir vefurinn fróðleik um  hvernig hægt sé að forðast hættuleg efni við innkaup á vörum, þar er yfirlit yfir aukaefni í matvörum og skilgreiningar á umhverfismerkingum.“

Þá  opnaði ráðherra í dag nýtt Endurvinnslukort Náttúrunnar.is sem sérstaklega er hannað fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Tilgangur Endurvinnslukortsins er að gefa almenningi  nákvæmt yfirlit yfir hvar á landinu sé tekið við hvaða úrgangsflokkum til endurvinnslu. Það er öllum aðgengilegt, bæði á íslensku og ensku án endurgjalds, og verður að finna á www.natturan.is á næstu dögum. Eigendur Náttúrunnar.is eru Guðrún Tryggvadóttir og Einar Bergmundur Arnbjörnsson.

Ljósmynd: Við afhendingu Kuðungsins í morgun, Guðrún Tryggvadóttir framkvæmdastjóri Einar Bergmundur Arnbjörnsson tæknistjóri Náttúrunnar.is og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra. Ljósm. Árni Tryggvason.





Deildu með vinum

Orð í belg

Guðrún A. Tryggvadóttir - miðvikudagur 25. apríl, 2012 klukkan 18:25:10

Viðtal við okkur Einar í Síðdegisþættinum á Rás 2 í dag: http://www.ruv.is/sarpurinn/siddegisutvarpid/25042012

1 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Flokkar:

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Dagatal: Merkisdagar [103]

Í fararbroddi: Verðlaunuð [23]

Samfélagið: Umhverfismál [1272]

Samfélagið: Umhverfisvefir [99]

Umhverfið: Umhverfisverðlaun [41]

Umhverfisverðlaun: Kuðungurinn [20]

Grænar síður:

Verðlaunuð [9]

Umhverfismál [36]

Umhverfisvefir [21]

Umhverfisverðlaun [21]

Kuðungurinn [19]

Nýleg orð í belg

Göngum gegn Monsanto
Göngum gegn Monsanto á laugardaginn kl. 17:00 http://www.facebook.com/events/371999209586441/?notif_t=plan_user_invited
Guðrún Tryggvadóttir 23. 05. 2013 21:16:
Spergilkál
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Grænkál og hvítkál
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Spergilkál
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Grænkál og hvítkál
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.