Fréttir

Óbreytt ástand: Hverjum í hag?

Nýtt landslag - nýjar áskoranir - Staða landbúnaðar á Íslandi í breyttum heimi. Ráðstefna á Bifröst föstudaginn 13. apríl.

Ráðstefnunni er ætlað að kynna og miðla því sem efst er á baugi í ríkjandi þróun landbúnaðarumhverfisins hér á landi og útí heimi; hvetja til uppbyggilegrar umræðu um kosti og galla núverandi fyrirkomulags; ræða framtíðargildi breyttrar eða óbreyttrar landbúnaðarstefnu; og að lokum, þau tækifæri sem liggja inn í framtíð. Liggur framtíðin í óbreyttu ástandi? Ef ekki, hverju þarf að breyta í núverandi landbúnaðarstefnu til að tryggja bændum eðlileg kjör og sókn til fjölþættari atvinnutækifæra, - innan eða utan ESB? Eru bændur sáttir við status-quo? Hver er sýn bænda inn í framtíð?

Nokkrar spurningar sem leitast verður við að svara: Hverjir eru kostir og gallar núverandi fyrirkomulags; hverjir eru valkostir neytenda; hvernig er hægt að tryggja að hagsmunir bænda og neytenda fari saman eða er það óhjákvæmilegt að takmarka val neytenda til að gæta hagsmuna bænda? Hvaða leiðir má fara til að tryggja þokkalega afkomu bænda og sátt við neytendur og samfélagið? Viljum við hamla á móti ríkjandi þróun - eða laga hana að breyttum aðstæðum? Hvaða áhrif hefur aðild Íslands að WTO? Hver er þróunin þar innan og er sú þróun langt frá þeirri þróun sem á sér stað innan ESB? Hvaða áhrif hefur það á stöðu íslenskra bænda náist samkomulag um nýtt regluverk innan WTO?

Einnig verður komið inn á umræðuna um sjálfbærni, endimörk vaxtar í takmörkuðum heimi", siðferði, vistspor, lífræna framleiðsla, iðnaðarlandbúnað, fæðuöryggi og „grenndar"-framleiðslu.

Sérfræðingar á sviði landbúnaðar-, neytenda- og matvælamála halda fyrirlestra og hagsmunaðilar úr ólíkum undirgreinum atvinnugreinarinnar segja frá reynslu sinni.

Dagskrá föstudaginn 13. apríl

Fyrirlesarar

  • 10.30 - 10.40 Bryndís Hlöðversdóttir Rektor Háskólans á Bifröst
  • 10.40 - 11.05 Þórólfur Matthíasson Hagfræðingur, prófessor, Háskóla Íslands
  • 11.05 - 11.35 Veli-Pekka Talvela Yfirmaður alþjóðamála í landbúnaðar- og skógræktarráðuneyti Finnlands
  • 11.35 - 12.00 Daði Már Kristófersson Náttúruauðlindahagfræðingur, dósent við Háskóla Íslands
  • 12.00 - 12.30 Kristín Vala Ragnarsdóttir Forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ
  • 12:30 - 13:30 Hádegismatur
  • 13:30 - 15:30 Ýmis erindi

Neytendasamtökin - Brynhildur Pétursdóttir, Neytendasamtökin (NS)

Landssamband Kúabænda - Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri LK

Lífræn ræktun og matvælaframleiðsla - Eygló Björk Ólafsdóttir, Móðir Jörð, Vallanesi

Fulltrúar launþega - Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ

Sauðfjárræktin - Sindri Sigurgeirsson, sauðfjárbóndi

15:30–16:30 Hringborðsumræður (panel)




Tengdir viðburðir


Óbreytt ástand: Hverjum í hag?

13. apr. 2012 10:30



Deildu með vinum

0 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Flokkar:

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Fræðsla: Skólar [48]

Viðburðir: Fundir og ráðstefnur [538]

Nýleg orð í belg

Göngum gegn Monsanto
Göngum gegn Monsanto á laugardaginn kl. 17:00 http://www.facebook.com/events/371999209586441/?notif_t=plan_user_invited
Guðrún Tryggvadóttir 23. 05. 2013 21:16:
Spergilkál
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Grænkál og hvítkál
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Spergilkál
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Grænkál og hvítkál
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.