Fréttir

Fyrirspurn til Matvælastofnunar

Þann 1. janúar sl. tók gildi Reglugerð nr. 1038/2010 um merkingu og rekjanleika erfðabreyttra matvæla og erfðabreytts fóðurs.

Náttúran.is beinir þeirri spurningu til Matvælastofnunar, hvernig eftirliti og merkingum á matvörum með erfðabreyttu innihaldi skuli háttað og hvort að enn séu á markaði vörur sem ekki hafa verið merktar skv. hinni nýju reglugerð og ef svo er, hvenær stofnunin muni innleiða merkingarskilduna og hvernig henni verði framfylgt.

Svar Matvælastofnunar verður birt hér á síðunni um leið og það berst.

Samklippa: Varúð erfðabreytt! Nokkrar af þeim fjölmörgu vörutegundum sem innihalda erfðabreytt hráefni. Guðrún A. Tryggvadóttir.





Deildu með vinum

Orð í belg

frá MAST - þriðjudagur 3. janúar, 2012 klukkan 09:42:04

Varðandi fyrirspurn sem borist hefur til MAST

Matvælastofnun hefur móttekið fyrirspurn þína og hefur hún verið send
Jónínu Stefánsdóttur til úrlausnar. Ef þú ert ekki sátt/-ur við úrlausnina
er það vel þegið að þú hafir samband aftur innan mánaðar.

Með kærri kveðju,
Ingunn Ólafsdóttir

Guðrún Tryggvadóttir - miðvikudagur 18. janúar, 2012 klukkan 11:02:25

Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla og fóðurs var innleidd í lok desember 2010 af Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu (nr. 1038/2010). Fóðurhlutinn tók gildi þann 1. sept. 2011 og matvælahlutinn núna 1. janúar 2012. Þau erfðabreyttu matvæli sem eru hér á markaði eiga því að vera merkt. Heilbrigðiseftirlitin fara með eftirlit með því að ákvæðum vegna matvæla sé framfylgt en Matvælastofnun hefur eftirlit með erfðabreyttu fóðri. Merkingin er þannig að ef matvæli inniheldur erfðabreyttan efnisþátt
eða er framleitt úr erfðabreyttri lífveru skal matvælið merkt "erfðabreytt" eða "framleitt úr erfðabreyttri lífveru".

Það er framleiðenda og innflytjenda að tryggja það að vörur þeirra séu rétt merktar og að farið sé að öllum þeim reglum sem um þau gilda, þ.a.m. reglum um merkingu á erfðabreyttum matvælum. Hvorki Matvælastofnun og né heilbrigðiseftirlitin geta yrirfarið hverja einustu vöru sem er á markaði, m.t.t. þess hvort þær séu erfðabreyttar eða ekki, og gert á þeim mælingar, heldur munum við í eftirliti okkar beina sjónum okkar af þeim vörum sem líklegastar eru til að innihalda erfðabreytta efnisþætti, t.d soja, maís og
hrísgrjón, bæði hefðbundin og lífræn því þó að erfðabreytt sé bannað til notkunar í lífrænni framleiðslu hafa fundist erfðabreyttir efnisþættir í lífrænum vörum.

María - fimmtudagur 26. janúar, 2012 klukkan 12:12:45

er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.

Guðrún Tryggvadóttir - fimmtudagur 26. janúar, 2012 klukkan 23:57:28

Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má líta svarið. Það er um að gera að spyrja MAST og heilbrigðiseftirlitin að þessu því við getum ekki vitað hvernig málið stendur varðandi merkingar í einstaka verslunum frá degi til dags né er það á okkar ábyrgð. Við getum bara vakið athygli á málinu og hvatt neytendur til að gera kröfur en ég er persónulega þeirrar skoðunar að upplýsingar sem þessar ættu að vera opnar almenningi, þ.e. hver er búin að merkja hjá sér og hver ekki.

Lesandi - þriðjudagur 31. janúar, 2012 klukkan 18:23:06

Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu.
Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið á þeim vettvangi!

5 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Flokkar:

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Stofnanir: Stjórnsýsla - umhverfi og náttúru [178]

Eftirlit: Matvælaeftirlit [35]

Næring: Öryggi matvæla [64]

Tækni: Erfðatækni [121]

: Erfðabr. matvæli [87]

Nýleg orð í belg

Spergilkál
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Grænkál og hvítkál
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Spergilkál
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Grænkál og hvítkál
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
VERNDUM LÍFRÍKI MÝVATNS
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.