Fréttir

Ofvirk á nammibarnum

Sú var tíðin að börn fengu að kaupa sér nammi yfir búðarborð fyrir smápeninga, svona rétt neðan í litla græna plastpoka. Á þeim tíma sem liðinn er síðan börnin mín voru lítil hafa hins vegar öll viðmið í þessum efnum brostið. Nú halda foreldrar börnum sínum til beitar í risastórum nammibörum í verslunum, þar sem miklu er hægt að moka á stuttum tíma fyrir lítið verð. Líklega eru nammibarirnir m.a. notaðir sem verðlaun, t.d. ef börnin hafa vælt óvenjulítið í búðarferðinni eða kannski beðið alla vikuna eftir að nammidagurinn rynni upp bjartur og fagur. Mig grunar sem sagt að foreldrar telji sig gera börnunum sínum greiða með því að veita þeim aðgang að þessum litskrúðugu kræsingum. En um leið er hugsanlega verið að stuðla að ofvirkni eða annarri hegðunarröskun, sem fáum þykir hátíðlegt að fást við, nema kannski þeim sem selja ritalín til að bregðast við vandanum. Rannsóknir benda nefnilega til að tiltekin litarefni í matvælum geti stuðlað að ofvirkni í börnum, og þessi litarefni eru að öllum líkindum til staðar í ríkum mæli í margnefndum nammibörum.

Varúðarmerkingar í nágrannalöndunum
Hugsanleg tengsl litarefna við ofvirkni í börnum eru ekki nýjar fréttir. Ég veit ekki hvenær fyrstu vísbendingarnar um þessi tengsl komu fram, en elstu niðurstöður sem ég man eftir að hafa séð eru frá árinu 2000. Síðar hafa fleiri rannsóknir bent í sömu átt, þó að skaðsemi litarefnanna hvað þetta varðar hafi ekki beinlínis verið sönnuð. Líkurnar þykja þó það miklar að Evrópusambandið hefur talið sig knúið til aðgerða. Með Evrópureglugerð nr. 1333/2008 um aukefni í matvælum var þannig lögfest sú skylda að öll matvæli (önnur en áfengir drykkir) sem innihalda umrædd litarefni skuli merkt með áletruninni “Getur haft óæskileg áhrif á hegðun og einbeitingu barna” (e: “May have an adverse effect on activity and attention in children”). Merkingarskyldan tók gildi í löndum Evrópusambandsins 20. júlí 2010, en ekki er enn búið að fella þessi ákvæði inn í íslenskt regluverk.

Hvaða efni eru þetta?

Litarefnin sem um ræðir tilheyra öll nema eitt flokki svonefndra azo-litarefna. Efnin eru oftast auðkennd með E-númerum, en framleiðendur mega þó tiltaka heiti þeirra í staðinn. Þar með flækist málið fyrir neytendur sem vilja forðast þessi efni, því að heitin á bak við E-númerin eru margvísleg. Eftirfarandi upptalning gefur nokkurn veginn tæmandi yfirlit yfir umrædd efni og mismunandi heiti þeirra:

* E102  Tatrasín (Cl Food Yellow 4, FD&C Yellow #5)
* E104  Kínólíngult (Cl Food Yellow 13, FD&C Yellow #10) (ekki azo-litarefni)
* E110  Sunset Yellow (Cl Food Yellow 3, FD&C Yellow #6, Orange, Orange Yellow, Para-orange, Yellow S)
* E122  Asórúbín (Karmósín, Cl Food red 3)
* E124  Ponceau (Cl Food red 7, Kochenillerautt A, New coccine, Nykockin)
* E129  Allúra rautt (Cl Food red 17)

Frostpinnar og fleira gott
Nammibarirnir eru ekki einu staðirnir þar sem þessi efni er að finna. Reyndar get ég ekkert fullyrt um málið hvað nammibarina varðar, því að enn hef ég hvergi séð nammibar með innihaldslýsingu, sem seljendum er þó skylt að setja upp!!! Það gefur manni reyndar tilefni til að óttast að þeir gleymi líka að hengja upp varúðarmerkin þegar reglugerðin tekur gildi hérlendis. Nei, efnin eru sem sagt víðar í notkun, svo sem í einhverjum drykkjum og í ýmsu sælgæti, jafnt innfluttu sem íslensku. Þessi litarefni eru meira að segja í flestum gerðum frostpinna frá a.m.k. öðrum af stærstu ísframleiðendunum hérlendis.

Þetta VAR bannað
Reyndar voru azo-litarefni bönnuð hérlendis þegar börnin mín fengu nammi í litlum grænum pokum. Bannið var hins vegar afnumið árið 1997 til samræmis við regluverk Evrópska efnahagssvæðisins. Neytendasamtök hérlendis og erlendis (m.a. í Danmörku) hafa um árabil ýmist barist fyrir því að þessi efni verði bönnuð eða hvatt framleiðendur til að hætta notkun þeirra, enda nóg til af öðrum efnum til sömu nota. Reglan um varúðarmerkingu er skref í þessa átt, en enn þykir mönnum skaðsemin ekki nægjanleg sönnuð til að hún réttlæti algjört bann. (Þarna er Varúðarreglunni að vísu snúið á haus).

Skilaboð til foreldra

Skilaboðin til foreldra eru einföld: Varist þessi efni. Börnin ykkar og þið sjálf eigið betra skilið!


(Þessi pistill er m.a. byggður á fréttum á heimasíðu Neytendasamtakanna 1. febrúar og 25. janúar 2011, frétt á heimasíðu dönsku neytendasamtakanna (Forbrugerrådet) 13.júlí 2010 og grein í 3. tbl. Neytendablaðsins 2007. Upplýsingar um nafngiftir litarefnanna eru fengnar úr lista á heimasíðu Matvælastofnunar).




Deildu með vinum

Orð í belg

Stefán Gíslason - sunnudagur 17. apríl, 2011 klukkan 11:45:18

Leiðrétting á nammibarapistli.
Í bloggpistli mínum um nammibari 16. mars sl. kom fram að seljendum væri skylt að merkja nammibarina með innihaldslýsingu. Eftir að pistillinn birtist í Mogganum á dögunum fékk ég ábendingu um að þarna hefði ég ekki farið með rétt mál. Í reglugerð um merkingu matvæla nr. 503/2005 stendur nefnilega í 28. grein: "Þegar vöru er dreift án umbúða, eða pakkað á sölustað eða sett í umbúðir til beinnar sölu til neytenda, skal seljandi vörunnar geta veitt kaupanda upplýsingar um þau atriði sem tilgreind eru í 6. gr. þessarar reglugerðar, sbr. einnig ákvæði 27. gr". Seljandinn þarf með öðrum orðum ekki að merkja nammibarinn með innihaldslýsingu, en er skyldugur til að upplýsa um innihaldið ef einhver spyr.

Um leið og ég kem þessari leiðréttingu á framfæri og þakka fyrir ábendinguna, biðst ég velvirðingar á mistökunum. Ég byggði þetta á munnlegri heimild, sem annað hvort var ekki nógu nákvæm, eða þá að mig misminnti um innihald hennar. Almennt fylgi ég þeirri reglu að leita frumheimildar, en þarna fórst það sem sagt fyrir.

Hins vegar breytir þetta ekki meginniðurstöðunni, þ.e.a.s. að í sælgæti á nammibörum og í fleiri matvælum sé að finna litarefni sem grunuð eru um að stuðla að ofvirkni eða annarri hegðunarröskun - og að í löndum Evrópusambandsins sé skylt að setja sérstaka varúðarmerkingu á matvæli sem innihalda þessi tilteknu litarefni. Þangað til sú regla hefur verið innleidd á Íslandi er ástæða til að hvetja foreldra til að spyrja um efnainnihald sælgætis á nammibörum, þ.e.a.s. ef þau ætla að kaupa svoleiðis fyrir börnin sín og langar ekki til að fóðra þau á efnum sem gætu stuðlað að ofvirkni eða annarri hegðunarröskun.

Guðrún Tryggvadóttir - mánudagur 18. apríl, 2011 klukkan 22:47:08

Hvernig getur staðið á því að engin krafa sé um merkingar sælgætis sem selt er án umbúða. Þetta er algerlega óviðunandi. Ef seljandi vörunnar (starfsfólk í verslunum) á aðeins að þurfa að svara fyrispurnum, ef það er spurt, þá af hverju ætti það sama ekki að gilda um vörur í pakkningum? Lausavara sem er óvarin fyrir hvers konar mengun er sem sagt undanþegin bæði heilbrigðiseftirliti og skýrum upplýsingum og viðvörunum um innihaldsefni og ofnæmisvalda? Af hverju ættum við að sætt okkur við þetta?

2 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Flokkar:

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Fjölskyldan: Barnauppeldi [24]

Heilsan: Heilbrigt líferni [9]

Næring: Öryggi matvæla [64]

Umhverfið: Öryggi og vá [127]

Öryggi og vá: Hættuleg efni [170]

Öryggi og vá: Tilbúin efni [49]

Nýleg orð í belg

Eldhúsgarðurinn - einföld leið til að gera sér gróðurreit hvar sem er
Hæ, þeir eru 2 metrar, fást í 4 metrum í byggingarvöruverslunum og þeir saga þá ...
Guðrún Tryggvadóttir 17. 06. 2013 13:41:
Eldhúsgarðurinn - einföld leið til að gera sér gróðurreit hvar sem er
hæ elsku Gunna mín. Ég finn ekki á vefnum hvað þið hafið bogana langa. ER ...
kristbjörg 17. 06. 2013 12:57:
Umhverfisráðherra telur umhverfisráðuneytið geta verið ónauðsynlegt
http://sigurduringi.is/umhverfis-og-audlindaraduneytid/
Sigurður Ingi Jóhannsson 11. 06. 2013 21:51:
Umhverfisráðherra telur umhverfisráðuneytið geta verið ónauðsynlegt
http://vefir.pressan.is/ordid/2013/06/09/sigurdur-yfirlysingagladi/
af Pressunni 11. 06. 2013 21:46:
Hunang og kanell
Við getum ekki svarað því hvaða magn er ráðlegt enda greinin aðeins þýdd af okkur. ...
Guðrún Tryggvadóttir 31. 05. 2013 11:32:
Hunang og kanell
Ótrúlegt og svolítið eins og þetta sé þýtt á google translate. Yfirlýsingarnar hér eru svo ...
hh 31. 05. 2013 09:02:
Göngum gegn Monsanto
Göngum gegn Monsanto á laugardaginn kl. 17:00 http://www.facebook.com/events/371999209586441/?notif_t=plan_user_invited
Guðrún Tryggvadóttir 23. 05. 2013 21:16:
Spergilkál
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Grænkál og hvítkál
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.