Fréttir

Vatnavinir fá hin virtu Alþjóðlegu verðlaun í sjálfbærum arkitektúr 2011

Vatnavinir hafa hlotið hin virtu alþjóðlegu verðlaun í arkitektúr „Global Award for Sustainable Architecture 2011“ fyrir verkefnið Heilsulandið Ísland.  Verðlaunin eru veitt af Locus Foundation sem hefur það að markmiði að veita arkitektum er starfa víða um heim viðurkenningu fyrir framþróun á sviði sjálfbærni í arkitektúr.  Yfir 200 tilnefningar bárust til verðlaunanna og eru fimm viðurkenningar veittar á ári hverju. Vatnavinir samanstanda af alþjóðlegum hópi fagfólks sem koma úr ólíkum greinum byggingarlistar, hönnunar, markaðssetningar, ferðamennsku, heimspeki og listum.

Verðlaunin, eru nú veitt í fimmta sinn, en fyrri verðlaunahafar telja m.a. Snöhetta, arkitektar að Óperuhúsinu í Osló.   Formleg verðlaunaafhending verður  í Cité de l´Architecture í París í maí. Eitt af markmiðum Locus Foundation er að efla alþjóðlegt samstarf sérfræðinga á sviði sjálbærni og að efla aukna vitund fagaðila sem almennings um nauðsyn samfélagslegrar ábyrgðar við mótun manngerðs umhverfis. Arkitektarnir og félagarnir í Vatnavinum Olga Guðrún Sigfúsdóttir, Sigrún Birgisdóttir  og Jörn Frenzel kynna verkefni Vatnavina í Cité de l´Architecture í París og taka þátt í ráðstefnu á vegum Unesco og Locus Foundation „ Rediefining progress: Architecture for a new Humanism“ í lok maí á þessu ári.

Vefsíða Vatnavina: www.vatnavinir.is
Vefsíða Locus Foundation: www.locus-foundation.org, www.global-award.org

Vatnavinir hafa unnið að hugmyndafræði sem byggir á fjölbreyttri uppbyggingu atvinnulífs og sjálfbærri nýtingu auðlinda Íslands með heilsutengdri ferðaþjónustu í nánum tengslum við jarðvarma og náttúru landsins. Undir yfirskriftinni Heilsulandið Ísland hafa þau kortlagt staði og möguleika, og unnið að endurbótum á eldri laugum og baðstöðum ásamt því að koma að uppbyggingu nýrra heilsulinda víðsvegar um landið. Baðmenning Íslendinga er einstök á heimsvísu og byggir hún á einstökum náttúrgæðum landsins. Vatnið, bæði heitt og kalt er ómengað og gætt fjölbreyttum eiginleikum og er aðdráttarafl fyrir innlenda sem erlenda gesti. Verkefnið Heilsulandið Ísland hefur að markmiði að byggja á  einstakri staðarmyndun heitra lauga á Íslandi og nýta laugarnar til stuðla að fjölbreyttri heilsutengdri afþreyingu og upplifunum fyrir ferðamenn.  Verkefnið fjallar um að virkja samvinnu þeirra fjölmörgu aðila sem koma að atvinnusköpun og ferðaþjónustu um land allt.

Vestfirðir voru í farabroddi á landsvísu með stofnun Vatnavina Vestfjarða vorið 2009.  Vatnavinir Vestfjarða er samstarfsnet landeigenda og staðarhaldara lauga á Vestfjörðum, sveitarfélaga og Markaðsstofu Vestfjarða ásamt Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða (ATVEST) og Vatnavinum sem hlúðu að verkefninu. Ellefu staðarhaldara heitra lauga á Vestfjörðum tóku þátt í að skapa þetta tengslanet fjölbreyttra lauga og að bjóða upp á margvíslega þjónustu fyrir ferðamenn.  Vatnavinir hafa sinnt ráðgjafarhlutverki með hugmyndavinnu, greiningu, þróun og hönnun staðanna. Markmiðið er að þróa vestfirsk aðdráttarafl á heimsvísu tengt vatni, baðmenningu, náttúru, heilsu og útivist og auka þannig verðmætasköpun innan svæðisins. Verkefnið Vatnavinir Vestfjarða hlaut Eden verðlaun Evrópusambandsins og viðurkenningu sem Tourist Destination of Excellence Award fyrir vatnatengda ferðaþjónustu árið 2010.  Að auki vinna Vatnavinir að þróun á jafnt stórum sem smáum heilsutengdum ferða – og meðferðarstöðum um land allt jafnt í þéttbýli, dreifbýli og náttúrulegu umhverfi.

Stofnendur Vatnavina eru: Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir heimspekingur og fjallaleiðsögumaður, Anna G. Sverrisdóttir ferða- og spa- ráðgjafi, Caroline Tayar markaðas- og iðnhönnuður, Igor Micevic grafískur hönnuður, Jörn Frenzel arkitekt og stundakennari við „School of Design thinking“, María Sjöfn Dupuis Davíðsdóttir iðnhönnuður og listamaður, Olga Guðrún Sigfúsdóttir arkitekt FAÍ og stundakennari við LHÍ, Sigrún Birgisdóttir arkitekt FAÍ, lektor og fagstjóri við LHÍ og Sigurður Þorsteinsson markaðs- og iðnhönnuður.

Frekari upplýsingar fást hjá: Olgu Guðrúnu Sigfúsdóttur, olga@vatnavinir.is, s: 6911144 og Sigrúnu Birgisdóttur sigrunbirgis@lhi.is, s: 8683497





Deildu með vinum

0 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Flokkar:

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Í fararbroddi: Nýsköpun [38]

Í fararbroddi: Verðlaunuð [23]

Samfélagið: Hönnun og listir [102]

Samfélagið: Nýsköpun [183]

Tækni: Sjálfbær [70]

Umhverfið: Umhverfisverðlaun [41]

Grænar síður:

Nýsköpun [17]

Verðlaunuð [9]

Hönnun og listir [48]

Nýsköpun [160]

Sjálfbær [13]

Umhverfisverðlaun [21]

Nýleg orð í belg

18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
VERNDUM LÍFRÍKI MÝVATNS
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
Bláa tunnan
Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.
Guðrún Tryggvadóttir 21. 03. 2013 08:51:
Bláa tunnan
Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með ...
Daði 19. 03. 2013 17:40:
Heimildarmyndin Hvellur frumsýnd
Heimildarmyndin Hvellur verður sýnd í síðast sinn í kvöld þ. 14. mars í Bíó Paradís ...
Guðrún Tryggvadóttir 14. 03. 2013 11:36:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.