Fréttir

Fræðaþing um Urriðafossvirkjun

Fræðaþing um málefni Urriðafossvirkjunar verður haldið í félagsheimilinu Þingborg mánudaginn 5. maí kl. 20:00. Við hvetjum sem flesta til að mæta og hlusta á hagsmunaaðila og færustu sérfræðinga þjóðarinnar fjalla um Urriðafossvirkjun og áhrif hennar á samfélagið og umhverfið.

Framsöguerindi flytja:

  1. Fulltrúi Landsvirkjunar
    Urriðafossvirkjun frá sjónarhóli Landsvirkjunar.
  2. Páll Einarsson, jarðfræðingur
    Flekaskilin á Suðurlandsundirlendi, jarðskjálftar og sprungur.
    Fjallað verður um orsakir jarðskjálfta á Suðurlandi og hvernig þeir tengjast hreyfingum jarðskorpuflekanna, bæði stóru flekanna tveggja, Norður-Ameríkuflekans og Evrasíuflekans, og litla flekans, Hreppaflekans, sem liggur milli þeirra. Jarðskjálftar verða þegar jarðskorpan á flekaskilunum brotnar eða hrekkur á misgengjum sem koma fram á yfirborðinu sem raðir af opnum sprungum og sprunguhólum.
  3. Fulltrúi Flóahrepps
    Samningur Landsvirkjunar og Flóahrepps, jákvæð og neikvæð áhrif.
  4. Arnar Þór Stefánsson, lögmaður
    Álitamál er varða aðalskipulag Flóahrepps og Urriðafossvirkjun. M.a. lögmæti þess samkomulags sem Landsvirkjun gerði við Flóahrepp 19. júlí 2007 og leiddi til þess að Urriðafossvirkjun var sett á aðalskipulag hreppsins. Þá mun hann velta því upp hvort Landsvirkjun geti þvingað sveitarstjórn til að setja virkjunina inn á aðalskipulag og hvort sveitarfélagið verði skaðabótaskylt fari svo að virkjunin fari ekki inn á eða verði tekin út af skipulagi.
  5. Guðmundur Páll Ólafsson, líffræðingur
    Þjórsá og þorskurinn - ástarsaga?
  6. Ragnhildur Sigurðardóttir, vistfræðingur
    Lífríki Þjórsár og laxveiðihlunnindin.
    Um áhrif Urriðafossvirkjunar á lífríki Þjórsár, fokhættu af efnishaugum á bökkum árinnar og afleiðingar virkjunarinnar á laxastofninn og laxveiðihlunnindi íbúa Flóahrepps. Hversu áreiðanlegar eru lausnir Landsvirkjunar til varnar lífríkis Þjórsár og hver eru óleystu vandamálin?
  7. Harpa Hreggviðsdóttir, íbúi í Flóahreppi
    Framtíðarsýn íbúa Flóahrepps
  8. Pallborðsumræður og fyrirspurnir
Allir velkomnir!
Myndin er af Urriðafossi. Ljósmynd: Árni Tryggvason.



Deildu með vinum

0 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Flokkar:

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Dagatal: Viðburðadagatal [404]

Félög og samtök: Náttúruvernd [476]

Landið: Suðurland [208]

Samfélagið: Umhverfismál [1272]

Viðburðir: Fundir og ráðstefnur [538]

Grænar síður:

Viðburðadagatal [1]

Náttúruvernd [40]

Suðurland [44]

Umhverfismál [36]

Nýleg orð í belg

Göngum gegn Monsanto
Göngum gegn Monsanto á laugardaginn kl. 17:00 http://www.facebook.com/events/371999209586441/?notif_t=plan_user_invited
Guðrún Tryggvadóttir 23. 05. 2013 21:16:
Spergilkál
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Grænkál og hvítkál
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Spergilkál
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Grænkál og hvítkál
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.