Fréttir

Kolefnisjöfnuð borg í eyðimörkinni

Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa tekið forystuna í loftslagsmálum í Mið-Austurlöndum með byggingu fyrstu kolefnisjöfnuðu borgar heims. Vinna er nýlega hafin við Masdar-borg, úthverfi í Abu Dhabi, höfuðborg SAF, en þar verður aðeins notuð endurnýjanleg orka og allur úrgangur endurunninn.

Í borginni verður notast við háþróuðustu gerðir sólarraforku auk þess sem samgöngum verður sinnt með neðanjarðar-léttlest. Arkitektar segja að borgin muni nota 75% minna rafmagn og 50-60% minna vatn en venjuleg borg af sömu stærð.

Sameinuðu arabísku furstadæmin búa við eina mestu kolefnislosun í heimi miðað við höfðatölu, sökum eyðimerkurloftslags og mjög mikillar notkunar olíu og gass við orkuöflun. Masdar er einnig heitið á orkufyrirtæki stjórnvalda sem ætlað er að þróa nýjungar í orkuöflun.

Masdar-borg á að opna árið 2016 og þar er gert ráð fyrir 50 þúsund íbúum, en einnig á borgin að vera miðstöð rannsóknasamfélags á sviði endurnýjanlegra orkugjafa og sjálfbærrar þróunar. Verkefnið kostar 22 milljarða dollara og leggur ríkisstjórn SAF fjóra milljarða til.

Áhersla er lögð á að nota kolefnislosunarheimildir frá CDM-verkefnum samkvæmt sveigjanleikaákvæðum Kýótó-bókunarinnar til að kolefnisjafna borgina.
Mynd: Viðskiptablaðið. Myndatexti: Áhugasamir virða fyrir sér módel af Masdar, kolefnisjöfnuðu borginni sem verður orðin íbúðarhæf árið 2016 ef áætlanir ganga eftir.



Deildu með vinum

0 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Flokkar:

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Tækni: Orka og eldsneyti [211]

Tækni: Sjálfbær [70]

Umhverfið: Heimurinn [422]

Umhverfið: Orka [254]

Umhverfið: Umhverfisstjórnun [185]

: Kolefnisjöfnun [12]

Grænar síður:

Orka og eldsneyti [34]

Sjálfbær [13]

Heimurinn [2]

Orka [75]

Umhverfisstjórnun [22]

Nýleg orð í belg

18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
VERNDUM LÍFRÍKI MÝVATNS
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
Bláa tunnan
Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.
Guðrún Tryggvadóttir 21. 03. 2013 08:51:
Bláa tunnan
Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með ...
Daði 19. 03. 2013 17:40:
Heimildarmyndin Hvellur frumsýnd
Heimildarmyndin Hvellur verður sýnd í síðast sinn í kvöld þ. 14. mars í Bíó Paradís ...
Guðrún Tryggvadóttir 14. 03. 2013 11:36:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.