Fræðsla: Námskeið
Sumarhúsið og garðurinn - Námskeið á vorönn 2013
Áframhald verður á hinum vinsælu námskeiðum sem Sumarhúsið og garðurinn hefur staðið fyrir á höfuðborgarsvæðinu og víða um land síðastliðin tvö ár. Á höfuðborgarsvæðinu verða námskeiðin haldin í sal á þriðju hæð hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Hús 2, Engjavegi 6. Námskeiðin verða haldin á mánudögum og fimmtudögum auk þess sem fyrirtækjum og starfsmannahópum er boðið upp á kryddjurtanámskeið sem haldin eru á þeirra vinnustað eða annars staðar ef þess er óskað. Landsbyggðin á einnig kost á námskeiðum, en námskeið hafa m.a. verið haldin á Ísafiði, í Vestmannaeyjum á Akranesi, á Hvolsvalli, á Skagaströnd, á Patreksfirði og fleiri stöðum.
Námskeið á vorönn 2013
Matjurtarækt - Námskeið um ræktun, umhirðu og notkun matjurta
Leiðbeinendur: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingar.
- Tvö mánudagskvöld 28. jan. og 4. febrúar kl 19:30-22:00. Verð kr. 12.800.
- Tvö fimmtudagskvöld 14. og 21. febrúar kl 19:30-22:00. Verð kr. 12.800.
- Tvö mánudagskvöld 25. feb. og 4. mars kl 19:30-22:00. Verð kr. 12.800.
Skráning hér:
Kryddjurtir - námskeið um ræktun kryddjurta og notkun þeirra í matseld
Leiðbeinendur: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingar.
- Mánudagskvöld 28. janúar kl 17:00-19:00. Verð kr. 4.500.
- Mánudagskvöld 4. febrúar kl 17:00-19:00. Verð kr. 4.500.
- Fimmtudagskvöld 14. febrúar kl 17:00-19:00. Verð kr. 4.500.
- Fimmtudagskvöld 21. febrúar kl 17:00-19:00. Verð kr. 4.500.
Skráning hér:
Ræktun ávaxtatrjáa
Leiðbeinandi: Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingur.
- Tvö fimmtudagskvöld 31. jan. og 7. febrúar kl. 19:30-22:00. Verð kr. 12.800.
- Tvö mánudagskvöld 11. og 18. febrúar kl. 19:30-22:00. Verð kr. 12.800.
- Tvö fimmtudagskvöld 28. feb. og 7. mars kl. 19:30-22:00. Verð kr. 12.800.
Skráning hér:
Ræktun berjarunna:
Leiðbeinendur: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingar
- Fimmtudagskvöld 31. janúar kl. 17:00 - 19:00. Verð kr. 4.500.
- Mánudagskvöld 11. feb kl. 17:00 - 19:00. Verð kr. 4.500.
- Fimmtudagskvöld 28. mars kl. 17:00 - 19:00. Verð kr. 4.500.
Skráning hér:
Kennslustaður: Salur D á þriðju hæð hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Hús 2, Engjavegi 6.
Ljósmynd: Daníel Tryggvi Guðrúnar sons gægist út á milli tómata og piparmintuplöntu, Guðrún A. Tryggvadóttir
nánar
Auður I. Ottesen
2. apríl 2013 00:04
Uppruni: Sumarhúsið og garðurinn ehf
Námskeið - Aðlögun að lifrænum búskap - fyrstu skrefin
Námskeið verður haldið á vegum Lífrænu akademíunnar í Reykjavík föstudaginn 19. apríl 2013 um lífræna aðlögun, framleiðslureglur, leiðbeiningar, eftirlit og vottun, aðlögunarstuðning, vinnslu og markaðssetningu lífrænna afurða. Kjörið tækifæri fyrir bændur og aðra sem hyggjast hefja lífræna ræktun og afla sér þekkingar.
Skráning: ord@bondi.is og tun@tun.is eigi síðar en 10. apríl.
þátttökugjald: Kr. 6.500
Fundarstaður og tímasetning auglýst síðar.
Lífræna akademían er samstarfsverkefni fag- og hagsmunaaðila á sviði lífrænnar framleiðslu.
Bændasamtök Íslands, Vottunarstofan Tún og VOR, Félag framleiðanda í lífrænum búskap.
Ljósmynd: Guðfinnur Jakobbson, lífrænn bóndi í Skafholti, Guðrún A. Tryggvadóttir.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
27. mars 2013 10:57
Uppruni: Bændasamtökin / VOR - Verndun Og Ræktun - félag framleiðenda í lífrænum búskap / Vottunarstofan Tún ehf
Lifandi víxlverkan - námskeið í lífefldri ræktun
N
ámskeiðið „Lifandi víxlverkan, kosmískir straumar - jarðneskt ferli“ á grundvelli 2. fyrirlestrar úr Landbúnaðarnámskeiði Rudolf Steiner, verður haldið í Skaftholti laugardaginn 13. október frá 10:00-16:00.
Leiðbeinandi er Henk-Jan Meijer.
Námskeiðsgjald eru þrjúþúsund krónur og er hádegisverður innifalinn.
Vinsamlegast skráið þátttöku á skaftholt@simnet.is.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
5. október 2012 10:58
Uppruni: Náttúran.is / Skaftholt sjálfseignarstofnun
Íslenskar lækningajurtir - námskeið
Námsflokkar Hafnarfjarðar – Miðstöð símenntunar gengst fyrir námskeiði um íslenskar lækningajurtir í gamla Lækjarskóla við Skólabraut í Hafnarfirði. Það mun garðyrkjufræðingurinn Steinn Kárason miðla af reynslu sinni.
Á námskeiðinu verður fjallað um algengar íslenskar drykkjar- og lækningajurtir og leiðbeint um söfnun þeirra, þurrkun, verkun og notkun. Stikklað verður á stóru í sögulegu samhengi og áhersla lögð á sjálfbærni og virðingu við náttúruna.
Fjallað verður m.a. um blóðberg, birki, mjaðjurt, vallhumal, ætihvönn, fjallagrös, horblöðku, maríustakk og kúmen. Einnig verða gefin dæmi um, te og seyði og einfaldar uppskriftir, s.s. hvannasúpu.
Söfnun jurta í fögru umhverfi er ánægjulegt og lærdómsríkt viðfangsefni og kjörið fyrir samhentar fjölskyldur og einstaklinga unga sem aldna.
Námskeiðið verður haldið miðvikudag 3.október frá kl. 18:00-20:00. Nánari upplýsingar og skráning er hjá Námsflokkar Hafnarfjarðar Miðstöð Símenntunar, sími: 585-5860 netfang: nhms@hafnarfjordur.is.
Ljósmynd: Verkun Ætihvannarfræja, Sveinn Kárason.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir / Steinn Kárason
30. september 2012 14:30
Uppruni:
Boðið til fræsöfnunar í Guðmundarlundi
Skógræktarfélag Kópavogs efnir til fræðslugöngu laugardaginn 22. september um Guðmundarlund í nágrenni Elliðavatns undir leiðsögn Kristins H. Þorsteinssonar garðyrkjufræðings. Lagt verður upp í gönguna frá aðalinngangi Guðmundarlundar kl. 11:00 og lýkur fræðslugöngunni kl. 13:00.
Hægt verður að safna fræi af ýmsum tegundum trjáa og runna. Kristinn ætlar að fræða fólk um gróður í Guðmundalundi, sýna hvernig tína á fræ, hreinsa þau og verka. Þá fer fram verkleg kennsla í sáningu fræja bæði í bakka og beint á útjörð.
Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér poka undir fræin.
Sérstakur gestur hjá okkur verður Auður Jónsdóttir garðyrkjufræðingur, sérfræðingur í sáningu og uppeldi matjurta.
Allir velkomnir!
Sjá kort og leiðsögn á vef Skógræktarfélags Kópavogs.
Ljósmynd: Furukönglar, Guðrún A. Tryggvadóttir.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
21. september 2012 14:12
Uppruni: Náttúran.is / Skógræktarfélag Íslands

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | maí |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | maí |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | maí |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | maí |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jún |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jún |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jún |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jún |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jún |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | júl |
miðvikudagur 22. maí
00:00 - 23:59
Sáðalmanak: Rót
Sjá grein: Sáðalmanak fyrir maí 2013

Nýleg orð í belg
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
+ Fleiri ummæli


Náttúran.is á Facebook.




