Fræðsla: Störf
Laust er til umsóknar starf við Sesseljuhús umhverfis- og fræðslusetur
Sesseljuhús er fræðslusetur um umhverfismál og sýningarhús um sjálfbærar byggingar. Þar fer fram fjölbreytt fræðsla um umhverfismál og sjálfbæra þróun og er m.a. boðið upp á umhverfisnám fyrir bandaríska háskólanemendur. Haldin eru málþing, fundir og námskeið þar sem allir eru velkomnir. Sesseljuhús sér einnig um rekstur Gistiheimilis Sólheima.
Starfssvið
- Frekari uppbygging á starfsemi Sesseljuhúss.
- Frekari uppbygging á Gistiheimili Sólheima ásamt ferðaþjónustu, s.s. endurbætur á gistiheimili, umsókn um umhverfisvottun og bókanir.
- Móttaka og leiðsögn innlendra og erlendra hópa.
- Skipulagning sjálfbærni- og umhverfisnáms fyrir innlenda og erlenda nemendur, auk kennslu.
- Umbætur í umhverfismálum á Sólheimum.
- Aðstoð við skipulagningu afmælisdagskrár í tilefni af 10 ára afmæli Sesseljuhúss.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun í umhverfis- og/eða ferðamálafræðum, eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
Um tímabundið starf til eins árs er að ræða og þarf umsækjandi að geta hafið störf þann 16. apríl. Húsnæði á Sólheimum er í boði.Umsókn ásamt ferilskrá berist forstöðumanni Sesseljuhúss, Katrínu Magnúsdóttur, á netfangið katrin@solheimar.is fyrir 17. febrúar. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í gegnum tölvupóst og í síma 480 4483.
nánar
Katrín Magnúsdóttir
11. febrúar 2012 10:11
Uppruni: Sesseljuhús
Umhverfisstofnun auglýsir starf sérfræðings um friðlandið Surtsey laust til umsóknar
Hjá Umhverfisstofnun er laust til umsóknar starf sérfræðings um friðlandið Surtsey á deild náttúruverndar. Surtsey var friðlýst árið 1965 og árið 2006 var friðlýsingin endurskoðuð og friðlandið stækkað umtalsvert. Árið 2009 komst Surtsey á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna og árið 2010 opnaði stofnunin Surtseyjarstofu í Vestmannaeyjum.
Helstu verkefni sérfræðingsins eru:
- Dagleg umsjón með gestastofu í Vestmannaeyjum.
- Umsjón með friðlandinu Surtsey.
- Umsagnir og álitsgerðir í náttúruverndarmálun.
Gerð er krafa um háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. í jarðfræði, náttúrulandfræði, líffræði eða umhverfis- og auðlindafræði. Framhaldsmenntun er kostur.
Að öðru leyti verða eftirfarandi kröfur um þekkingu, reynslu og hæfni hafðar til viðmiðunar við val á starfsmanni:
- Þekking á umhverfismálum og náttúruvernd.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu og almennum rekstri.
- Reynsla af miðlun upplýsinga og fræðslu til mismunandi hópa.
- Þekking á friðlandinu.
- Reynsla af útivist.
- Kunnátta í íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli.
- Samstarfshæfni og sveigjanleiki í samskipum.
Starfsaðstaða sérfræðingsins er í Vestmannaeyjum og skal hann vera búsettur þar.
Næsti yfirmaður sérfræðingsins er deildarstjóri deildar náttúruverndar, Ólafur A. Jónsson, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar um starfið ásamt Sigrúnu Valgarðsdóttur starfsmannastjóra í síma 591 2000.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst. Gert er ráð fyrir að gagnkvæmur reynslutími sé sex mánuðir við ráðningu.
Umsóknir skulu sendar til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík eða á netfangið umhverfisstofnun@umhverfisstofnun.is fyrir 28. nóvember 2010.
nánar
Umhverfisstofnun
14. nóvember 2010 22:18
Uppruni: Umhverfisstofnun
Græn störf - málþing um vistvæna nýsköpun
Á degi umhverfisins 25. apríl boða umhverfisráðuneytið, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Félag umhverfisfræðinga til málþings um vistvæna nýsköpun og nýjar áherslur í atvinnuuppbyggingu. Málþingið fer fram í Iðnó frá kl. 13:00 til 15:00.
Margar þjóðir heims hafa nú mikinn áhuga á að leggja sig fram við að skapa atvinnutækifæri á sviði vistvænnar nýsköpunar, þróunar og þjónustu. Fyrirsjáanlegt er að umsvif á þessum vettvangi aukist mjög í nánustu framtíð og í nýrri skýrslu Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna er því spáð að markaðir fyrir umhverfisvænar vörur og þjónustu muni tvöfaldast fram til 2020. Hér á landi eru margvísleg tækifæri á þessu sviði, sem skapað geta störf og aukið útflutning.
Á málþinginu munu sjö fyrirtæki kynna starfsemi sína og framtíðarsýn. Þá verður efnt til pallborðsumræðna um þau tækifæri sem bjóðast íslenskum fyrirtækjum á þessu sviði.
Dagskrá:
- Ávarp Kolbrúnar Halldórsdóttur umhverfisráðerra.
- Marorka - þróar orkustjórnunarkerfi fyrir skip til að draga úr olíunotkun og mengun
- Gavia Travel - sérhæfir sig í fuglaskoðunarferðum fyrir erlenda ferðamenn
- Saga Medica – sérhæfir sig í rannsóknum og framleiðslu á hágæða náttúruvörum úr jurtum
- Carbon Recycling International - breytir útblæstri frá jarðvarmavirkjunum í eldsneyti
- HBT - þróar og framleiðir orkusparandi lausnir fyrir stórnotendur í orkufrekum iðnaði
- Farmers Market – ný tir náttúruleg hráefni við framleiðslu tískufatnaðar
- Prókatín - framleiðir prótínmjöl í dýrafóður úr aflofti frá jarðvarmavirkjunum
- Umhverfisráðherra afhendir Kuðunginn og útnefnir Varðliða umhverfisins
- Pallborðsumræður um vistvæna nýsköpun og fjölgun grænna starfa. Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar, Baldur M. Helgason, sjóðstjóri hjá Auði Captial, Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfismála hjá Samtökum Iðnaðarins og Anna G. Sverrisdóttir, formaður umhverfisnefndar Samtaka ferðaþjónustunnar. Björn H. Barkarson, frá Félagi umhverfisfræðinga, stýrir umræðum.
Fundarstjóri er Magnús Jóhanesson, ráðuneytisstjóri.
Græn störf eru tengd hreinni tækni eða stuðla að bættri umhverfisvitund og draga úr umhverfisáhrifum hefðbundinna starfa. Græn störf byggja á því að fjárfesta í aukinni framleiðni með betri nýtingu, t.d. orku og hráefna, og komast þannig hjá sóun á aðföngum og fjármagni. Áhersla er á skilvirkni framleiðsluferla, notagildi og skilvirkni í notkun, fjárfest er í lokuðum kerfum og búin eru til verðmæti úr úrgangi. Horft er til náttúrunnar sem byggir á hringrás og afurðir eins verða að aðföngum annars.nánar
Guðmundur Hörður Guðmundsson
15. apríl 2009 10:55
Uppruni: Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Rannsókn á markaðsímynd fyrirtækja sem nota visthæfa orkugjafa
Land- og ferðamálafræðiskor HI og Rannsóknamiðstöð ferðamála auglýsa eftir áhugasömum nemendum til að rannsaka markaðsímynd fyrirtækja í ferðaþjónustu sem nýta visthæft eldsneyti. Um er að ræða meistaranám í ferðamálafræðum við Háskóla ÍslandsVerkefnið mun m.a. leitast við að kanna viðhorf ferðamanna til nýtingar umhverfisvæns eldneytis og kortleggja hvort tveggja afstöðu ferðamanna og áhrif á markaðsstöðu fyrirtækja í ferðaþjónustu sem nýta visthæft eldsneyti. Verkefnið er samvinnuverkefni Rannsóknamiðstöðvar ferðamála, land- og ferðamálafræðiskorar Háskóla Íslands og íslenskrar NýOrku. Nemandi mun hafa starfsaðstöðu á NýOrku. Fyrir hendi er fjármögnun nemanda (laun) í þrjá mánuði. Áframhaldandi fjármögnun er háð umsóknum um áframhaldandi styrki.
Meistaranám í ferðamálafræðum við HÍ er að öllu jöfnu tveggja ára rannsóknanám (120e) á sérhæfðu sviði ferðamálafræða að loknu BS námi sem gefur prófgráðuna magister scientiarum, MS. Námið samanstendur af sjálfstæðu rannsóknaverkefni (60e eða 90e) og námskeiðum (60e eða 30e). Frekari upplýsingar um meistaranám við land- og ferðamálafræðiskor HÍ er að finna hér.
Áhugasamir hafi samband við Rannveigu Ólafsdóttur í síma 5255482 eða á netfang ranny@hi.is
nánar
Rannveig Ólafsdóttir
9. júlí 2008 01:05
Uppruni: Háskóli Íslands - HÍ
5.250 ný umhverfisstörf á Íslandi fyrir árið 2020?
Fram til ársins 2020 gætu skapast 425.000 ný störf á Norðurlöndunum við þróun á endurnýjanlegum orkugjöfum og loftslagsvænni tækni! Þetta kemur fram í úttekt sem birtist nýlega í tímaritinu Arbeidsliv i Norden. Hins vegar gæti skortur á menntuðu fólki, ekki síst verkfræðingum, reynst Þrándur í götu þessarar miklu atvinnusköpunar.
Ef við grípum til okkar ágætu höfðatöluútreikninga, má samkvæmt þessu reikna með að á Íslandi verði til um 5.250 ný störf í þessum geira fram til ársins 2020.
Nú er bara að skoða bæklinginn, fletta upp á bls. 10 og æfa sig í sænskunni. Þar er sagan öll.
nánar
Stefán Gíslason
13. desember 2007 15:26
Uppruni: Stefán Gíslason

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | maí |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | maí |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | maí |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | maí |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jún |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jún |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jún |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jún |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jún |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | júl |
sunnudagur 19. maí
00:00 - 23:59
Sáðalmanak: Ávextir
Sjá grein: Sáðalmanak fyrir maí 2013

Nýleg orð í belg
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.
Guðrún Tryggvadóttir 21. 03. 2013 08:51:
Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með ...
Daði 19. 03. 2013 17:40:
Heimildarmyndin Hvellur verður sýnd í síðast sinn í kvöld þ. 14. mars í Bíó Paradís ...
Guðrún Tryggvadóttir 14. 03. 2013 11:36:
+ Fleiri ummæli


Náttúran.is á Facebook.




