Tækni: Tæki
Metanreiknivél Orkuseturs
Á vef Orkuseturs er reiknivél sem hjálpar fólki að bera saman stofn- og rekstrarkostnað metanbíla og hefbundinna bíla með afar einföldum hætti. Reiknivélin sýnir að spara má mörg hundruð þúsund í eldsneytiskostnað og nú eru metanbifreiðar líka á hagstæðara verði. Aukabónusinn er svo tilheyrandi gjaldeyrissparnaður og minni útblástur gróðurhúsalofttegunda.
Sjá metanreiknivél á vef Orkuseturs.
Engin afsökun
Það hefur sjaldan verið mikilvægara að draga úr gjaldeyriskostnaði Íslandinga. Innfluttningur á jarðefnaeldsneyti er stór kostnaðarliður fyrir þjóðarbúið og talsverður hluti af dýrmætum gjaldeyri fer í að knýja fjölskyldubíla landsmanna. Það eru ekki allir nógu meðvitaðir um tilvist og kosti innlenda og umhverfisvæna eldsneytisins metans. Metan eða hauggas er framleitt úr sorpi hér á Íslandi og er afar umhverfisvænt. Það sem meira er að metan er miklu ódýrara og metanbílar eru að engu frábrugðnir hefbundnum bílum í gæðum. Vegna afslátta á vörugjöldum eru metanbílar í raun bæði ódýrari í innkaupum og rekstri. Í Reykjavík er enný á aðeins ein metanstöð en hún er hinsvegar á besta stað í Artúnsbrekkunni í alfaraleið fyrir stóran hluta bæjarbúa.
Stærsti hluti metanbíla hefur bensíntank til vara sem eykur sveigjanleikann og tryggir að enginn lendir vandræðum þó að metanið þrjóti fjarri metanstöðinni.
Það má því segja að enginn afsökun sé fyrir borgarbúa að kaupa EKKI metanbíl næst þegar ný bifreið er tekin í notkun. Vegna þess að:
- Metanbílar búa yfir sömu gæðum og hefðbundnir bílar
- Metanbílar eru miklu ódýrari í rekstri
- Metanbílar nota innlent eldsneyti
- Metanbílar eru ódýrari í innkaupum
- Metanbílar eru umhverfisvænir
- Metanbílar stuðla ekki að hnattrænni hlýnun
- Metanbílar spara gjaldeyri
- Metnabílar eru ekki flóknari í akstri en hefðbundnir bílar
- Metanbílar geta skipt yfir í bensín þegar metanið þrýtur
Enn ein ástæða til að skipta yfir í metan
Með tilkomu breytinga á lögum nr. 29/1993 (http://www.althingi.is/altext/139/s/pdf/0658.pdf) sem samþykktar voru á Alþingi þ. 1. janúar 2011 er tollstjóra heimilt að endurgreiða vörugjald af ökutækjum sem hefur verið metanbreytt þannig að ökutækið nýtir metan í stað bensíns eða dísilolíu og hefur verið skráð sem slíkt hjá Umferðarstofu. Fjárhæð endurgreiðslu vörugjalds skv. 1. mgr. skal vera 20% af kostnaði við breytinguna samkvæmt reikningi breytingaverkstæðis en þó ekki hærri en 100.000 kr. Vörugjald skal því aðeins endurgreitt að ökutæki sé yngra en sex ára við breytingu, miðað við framleiðsluár, og útbúið að lágmarki 78 lítra metangeymi.
nánar
Orkusetur
19. mars 2013 10:12
Uppruni: Orkusetur
Endurvinnslukortið komið í AppStore
Náttúran.is hefur gefið út Endurvinnslukort fyrir iPhone og iPad og er það nú aðgengilegt í AppStore. Smáforritið er ókeypis og notkun þess líka. Þeir sem nota það yfir 3G eða 4G samband greiða fyrir gagnflutning sem reynt er að halda í lágmarki.
Tilgangur Endurvinnskortsins er að einfalda leit að réttum stað fyrir hvern endurvinnsluflokk og stuðla þannig að betri flokkun ásamt betri og markvissari endurvinnslu.
Endurvinnslukortið verður einnig fáanlegt fyrir Android innan skamms.
Helstu samstarfsaðilar við gerð Endurvinnslukortsins eru; Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Sorpa bs., Úrvinnslusjóður, Umhverfissjóður Landsbanka Íslands, Gámaþjónustan og Sorpstöð Suðurlands bs. og þakkar Náttúran.is þeim fyrir gott samstarf.
Endurvinnslukortið fyrir iPhone og iPad má nálgast í App Store.
![]()

Með þvi að skanna inn QR kóðan má fara beint á forritð í iPhone eða iPad
Náttúran.is vonar að Endurvinnslukortið verði gagnlegt verkfæri og auki meðvitund um endurvinnslu og förgun úrgangs.
nánar
Einar Bergmundur
22. desember 2012 11:34
Uppruni: Náttúran.is
Raftæki á Náttúrumarkaði
Framleiðsla á einföldustu raftækjum hefur gríðarlega neikvæð umhverfisáhrif. Þess vegna keppast framleiðendur víða um heim nú um að sýna lit og minnka umhverfisáhrif framleiðslu sinnar. En ekki taka allir þátt í því og bíða þangað til að fyrirskipanir berast t.d. frá ESB sem þvinga þá til að minnka umhverfisáhrifin.
Við getum tekið þátt í því að „umhverfisvæni verði markaðsforskot“ með því að velja einfaldlega frekar að versla við umhverfisvæna framleiðendur og velja frekar vörur sem bera umhverfisvottun.
Ýmis spilliefni og krabbameinsvaldandi efni, t.a.m. kadmíum og kvikasilfur geta verið mjög skaðleg fyrir umhverfið. Þess vegna er líka mikilvægt að gömlu tölvunni sé ekki bara hent í ruslið heldur henni komið í endurvinnslu.
Orkunotkun tækja er skilgreind með orkumerkjum s.s. Energy Star og Evrópska orkumerkinu. Sjá orkuviðmið Náttúrunnar. Allar upplýsingar sem snerta umhverfisáhrif, umhverfismerki og orkunotkun finnur þú við hverja vöru hér á raftækjadeildinni.
Öllum er velkomið að selja og kynna vörur í gegnum Náttúrumarkaðinn. Skoða raftækjadeild Náttúrumarkaðarins.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Náttúran er
3. október 2012 16:40
Uppruni: Náttúran.is

Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar
Skrifstofan - Raftæki
Framleiðsla á einföldustu raftækjum hefur gríðarlega neikvæð umhverfisáhrif. Þess vegna keppast framleiðendur víða um heim nú um að sýna lit og minnka umhverfisáhrif framleiðslu sinnar. En ekki taka allir þátt í því og bíða þangað til að fyrirskipanir berast t.d. frá ESB sem þvinga þá til að minnka umhverfisáhrifin. Við getum tekið þátt í því að „umhverfisvæni verði markaðsforskot“ með því að velja einfaldlega frekar að versla við umhverfisvæna framleiðendur og velja frekar vörur sem bera umhverfisvottun.
Ýmis spilliefni og krabbameinsvaldandi efni, t.a.m. kadmíum og kvikasilfur geta verið mjög skaðleg fyrir umhverfið. Þess vegna er líka mikilvægt að gömlum tækjum sé ekki bara hent í ruslið heldur komið í endurvinnslu.
Orkunotkun tækja er skilgreind með orkumerkjum s.s. Energy Star og Evrópska orkumerkinu. Þú getur kynnt þér orkunotkun tækisins með því að lesa upplýsingar sem oft má finna á tækinu eða nota þar til gerðum mæli. Þannig færðu fullvissu um orkunotkun hvers tækis fyrir sig og getur reiknað út hvað það kostar umhverfið og budduna þína á ári.
Um 10% raforkunotkunar heimilistækja fer oft á tíðum í svokallaða biðstöðu eða "Stand by" notkun. Hafa ber í huga að í biðstöðu eyða rafmagnstæki orku án notkunar. Tæki í biðstöðu skila engu til notenda nema hærri rafmagnsreikningi. Biðstaða tækja er oft kölluð rafmagnsleki enda seytlar hægt og bítandi út raforka engum til gagns. Auðveldasta leiðin til að minnka biðstöðu-notkun er að slökkva alveg á tækjum og helst að taka úr sambandi.
nánar
Náttúran er
25. maí 2012 09:38
Uppruni: Náttúran.is
Endurvinnslukort Náttúrunnar fyrir snjallsíma og spjaldtölvur
Í dag, á Degi umhverfisins og 5 ára afmæli vefsins, kynntum við Endurvinnslukorts-app sem er fyrsta græna appið af þremur sem við áformum að klára nú í ár.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra var fyrst til að prófa appið á hátíðarhöldum dagsins í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnesi. Appið er til samtykktar hjá Apple fyrir iPhone og ætti að birtast á næstu dögum í AppStore. Android útgáfa er einnig væntanleg á Market innan skamms. Endurvinnslukortið er ókeypis.
Appið eða snjallsímaforritið er hannað til þess að hjálpa öllum að finna næstu móttökustöð, sjá hvort hún sé opin þegar við hyggjumst losa okkur við rusl og sýnir okkur leiðina á korti. Auk þess eru ítarlegar upplýsingar um 113 endurvinnsluflokka og annað fræðsluefni um endurvinnslu að finna á kortinu.
Endurvinnslukorts-appið verður einnig gefið út á ensku undir heitinu The Recycle Map og þjónar þannig einnig landsmönnum sem ekki tala fullkomna íslensku og erlendum ferðamönnum.
Tilgangur Endurvinnslukortsins er að gefa almenningi eins fullkomið yfirlit og mögulegt er yfir hvar á landinu sé tekið við hvaða flokkum til endurvinnslu. Endurvinnslukortið er eitt af fjölmörgum samfélagslegum verkefnum sem Náttúran.is hefur ráðist í að eigin frumkvæði en ekkert slíkt yfirlit var til, í aðgengilegu formi fyrir allan almenning, áður en ráðist var í gerð fyrsta Endurvinnslukortsins á vef Náttúrunnar haustið 2008. Vefkortið hefur einnig verið uppfært og þjónustuupplýsingar auknar. Endurvinnslukorts-appið hefur verið í þróun frá hausti 2011 og mun halda áfram að vera í stöðugri þróun enda eiga nú miklar breytingar sér stað á sviði endurvinnslumála á Íslandi.
Grafík: Hnappur Endurvinnslukortsins sem sýnir ruslatunnu með vængjum enda er undirtitill Endurvinnslukortsins „þar sem ruslið þitt fær annað líf“. Hönnun Guðrún A. Tryggvadóttir.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
25. apríl 2012 21:41
Uppruni: Náttúran.is

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | maí |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | maí |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | maí |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | maí |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jún |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jún |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jún |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jún |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jún |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | júl |
þriðjudagur 21. maí
00:00 - 23:59
Sáðalmanak: Rót
Sjá grein: Sáðalmanak fyrir maí 2013
13:15 - 16:15
Málþing um Búrfellshraun
Sjá grein: Búrfellshraun - Málþing til minningar um Guðmund Kjartansson jarðfræðing
17:30
Undirbúningsfundur fyrir gönguna gegn Monsanto
Sjá grein: Göngum gegn Monsanto

Nýleg orð í belg
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
+ Fleiri ummæli


Náttúran.is á Facebook.




