Heilsan: Líkaminn
Hreint loft - betri heilsa
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og velferðarráðuneytið bjóða til málþings um loftgæði og lýðheilsu þ. 24. apríl kl. 10 -12 á Nauthóli í Öskjuhlíð í aðdraganda Dags umhverfisins.
Á málþinginu verður fylgt úr hlaði nýju riti starfs hóps ráðuneytanna tveggja um loftgæði og heilsufar á Íslandi þar sem einnig eru settar fram tillögur til úrbóta.
Dagskrá:
10:00 Opnun og ávarp umhverfis- og auðlindaráðherra - Svandís Svavarsdóttir.
10:15 Skiptir loft máli? - áhrif loftgæða á heilsufar - Sigurður Þór Sigurðarson, yfirlæknir hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
10:30 Loftgæði innandyra - áhrif á vellíðan og heilsu - Árný Sigurðardóttir, framkv.stjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.
10:45 Loftgæði utandyra - þróun loftmengunar síðustu ár - Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun.
11:00 Hvað höfum við lært? Hverju getum við breytt?- Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða.
11:15 Pallborð þar sem framsögumenn sitja fyrir svörum.
11:45 Ávarp velferðarráðherra og fundarslit - Guðbjartur Hannesson.
Fundarstjóri er Stefán Thors, ráðuneytisstjóri í um hverfis- og auðlindaráðuneyti.
Málþingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir.
Grafík: Jörðin í mengunarskýjum, Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.
nánar
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
17. apríl 2013 10:05
Uppruni: Umhverfis- og auðlindaráðuneytið / Velferðarráðuneytið
Um snertiofnæmi fyrir Cocamidoprópýl betaine
Hægt er að vera með snertiofnæmi fyrir yfirborðsefninu cocamidoprópýl betaine sem er mjög oft notað í sápum. Efnið er unnið úr kókosolíu og dímetýlamínóprópýlamíni. Einkenni geta komið fram nokkrum klukkustundum eftir snertingu og geta innifalið rauða húð, bólgur, kláða og vökvafylltar blöðrur.
Cocamidoprópýl betaine er þekktur ofnæmisvaldur. Það getur verið ertandi fyrir húð, augu og lungu. Efnið er notað í hreinlætisvörum eins og í sjampói, handsápum og tannkremi auk þess að vera til staðar í mörgum snyrtivörum þar sem það er notað sem kvoðulausnar- eða þykkingarefni. Efnið er í freyðibaði, hreinsikremum, hreinsilausnum fyrir snertilinsur (augnlinsur) og í ýmsum kremum. Einnig í svitalyktareyðum, kremi til að fjarlægja farða, hárlitarefnum, hárlakki, fljótandi sápuefnum, sjampóum, rakkremi og í hárgeli.
Nauðsynlegt er að lesa innihaldslýsingu hverrar vöru fyrir sig, til að sjá hvort varan inniheldur cocamidoprópýl betaine eða skyld efni (sjá listann hér að neðan).
Forðast skal vörur sem innihalda eftirfarandi efni:
- 1-Propanaminium, N-(carboxymetýl)-N, N-dímetýl-3-((1-oxokókoshnetu)amínó)-hýdroxíð innra salt
- N-(2-Amínóetýl)-N-(2-(2-carboxýetoxý)etýl)beta-alanín, norkókó asýl afleiður, tvínatríum sölt
- N- (Carboxýmetýl)-N, N-dímetýl-3-((1- oxokókoshnetu)amínó)-1 própanam- iníum
- CADG
- Cocamidoprópýl betaine
- Cocamidoprópýl dímetýl glýsín
- Cocamfocarboxýpropríónat hýdroxíð
- Kvart ammóníum sambönd (carboxýmetýl) (3 cocoamídóprópýl) dim etýl, hýdroxíð innra salt
- beta-Alanín, N-(2-amínóetýl)-N-(2-(2-carboxýethoxý)etýl)-, norkókó asýl afleiður, dínatríum sölt
- Cocoamfódíprópríonat
- Cocoýl amíð própýlbetaine
- Dínatríum cocoamfódíprópríónat
- Mirataine CB
Frekari upplýsingar er að finna á ensku á veraldarvefnum (t.d. á slóðinni: www.allergeaze.com/PDFs/NA/NA22.PDF) og hjá húð- og ofnæmislæknum.
Grafík: Tákn sem notað er eingöngu hér á vefnum þegar fjallað er um ofnæmi almennt ©Náttúran.is.
nánar
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir
4. mars 2013 14:10
Uppruni: Náttúran.is
Um ofnæmi fyrir gúmmíefninu Thiuram mix
Það er hægt að hafa ofnæmi fyrir ótrúlegustu hlutum. Eitt af því sem hægt er að hafa ofnæmi fyrir er efni sem kallast í daglegu tali Thiuram mix eða Thiuram blanda. Efnið er notað til að hraða myndun fjölliða við framleiðslu á gúmmí, og er það í næstum öllum hlutum sem innihalda gúmmí. Það er því ekki svo auðvelt að komast hjá því að lenda í snertingu við Thiuram blönduna í samfélagi nútímans. Yfirleitt er um að ræða ofnæmi sem lýsir sér sem slæmt exem og sár á húð. Það getur verið langvarandi og erfitt viðureignar.
Næstum allir bílar eru klæddir að innan með plasti og gúmmí. Gúmmíhanskar, skór og innlegg geta innihaldið Thiuram blöndu. Gúmmístrengur í nærbuxum og sundbolir geta framkallað ofnæmisviðbrögð og skilið eftir sig rauða húð. Plastmálningin sem íbúðin er máluð með getur innihaldið Thiuram blöndu og getur slíkt valdið vægri útsetningu gegn efninu.
Listinn hér að neðan er ekki tæmandi en gefur þó vissa vísbendingu við hvað er að eiga. Thiuram blanda getur verið í eftirfarandi hlutum:
- Hönskum, skóm, innleggjum
- Í nærfötum og sundbolum
- Í sárabindum og lækningatækjum
- Í tækjum sem notuð eru við blóðskilun nýrna
- Í hljólbörðum og slöngum t.d. garðslöngum
- Í plasti og kennaratyggjói
- Í plöntueitri í landbúnaði og í skordýraeitri
- Í efnum sem virka fælandi á dýr
- Í svömpum og augnskuggum, snyrtivörum
- Í gúmmílökum, koddum og hitapokum
- Í hettum og smokkum
- Í blöðrum, alls kyns leikföngum
- Í lími í skó og í veggfóðurslími
- Í sápum og sjampóum
- Í lyfinu Antabus sem er notað gegn alkóhólisma
- Í plastmálningu
En hvaða lausnir eru þá til? Hægt er að ganga í leðurskóm og skór úr plasti eru skárri en skór með gúmmísólum. Einnig eru góðu gömlu tréklossarnir æskilegir. Forðast skal gúmmíhanska og nota í staðinn vínylhanska. Einnig má nota hanska úr neopreni ef vínylhanskar henta ekki.
Til eru sárabindi sem innihalda ekki Thiuram blöndu. Þau eru t.d. gerð úr viskósa, pólýamíði, elastani og bómull. Nota má pressusárabindi eins og Tensopress og Setopress. Ef nota þarf sjúkrasokka er gott að nota þá sem gerðir eru úr Lycra eða næloni.
Fullt af leiðbeiningum um ofnæmi gegn Thiuram blöndu er að finna á internetinu. Gallinn er sá að flestar þær síður eru á ensku. Hér fylgir þó listi yfir nokkrar upplýsingasíður um Thiuram blöndu ofnæmi. Gangi ykkur vel að finna frekari upplýsingar:
http://www.dermnetnz.org/dermatitis/rubber-antioxidant-allergy.html
www.truetest.com/PatientPDF/Thiuram-Mix-Patient-Info.pdf
www.cutaneousallergy.org/downloads/patient/standard/thiuram.pdf
http://contactallergy.com/contact_allergy_069.htm
Grafík: Tákn sem notað er eingöngu hér á vefnum þegar fjallað er um ofnæmi almennt ©Náttúran.is.
nánar
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir
1. mars 2013 17:31
Uppruni: Náttúran.is
Eplaedik sem svitalyktareyðir
Dýfið klút í eplaedik, og strjúkið handarkrikana eftir bað eða sturtu. Það er gott fyrir húðina og heldur bakteríubúskapnum í skefjum en það eru eimitt bakteríurnar sem eiga sök á því að svitalykt myndast. Auk þess virkar eplaedikið frískandi á húðina án þess að hafa neikvæð áhrif á sýrustig húðarinnar.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Siiri Lomb
19. febrúar 2013 15:40
Uppruni: Náttúran.is
Skrúbb með eplaediki
Þvoðu andlitið með mildri hreinsimjók, setjið síðan þvottapoka í heitt vatn. Leggið þvottapokann síðan laust á andlitið í eina til tvær mínútur. Setjið síðan bómullarservíettu í volgt vatn með tveim til þremur teskeiðum af eplaediki. Leggið þetta á andlitið og setjið heita þvottapokann yfir klútinn á andlitinu. Látið vera á í 5 mínútur og skolið síðan af með heitu vatni og nuddið andlitið vel með þvottapokanum. Með þessu losna dauðar húðfrumur og húðin fer aftur að ljóma. Endurtakið vikulega.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Siiri Lomb
11. febrúar 2013 11:25
Uppruni: Náttúran.is

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | maí |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | maí |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | maí |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | maí |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jún |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jún |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jún |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jún |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jún |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | júl |
þriðjudagur 21. maí
00:00 - 23:59
Sáðalmanak: Rót
Sjá grein: Sáðalmanak fyrir maí 2013
13:15 - 16:15
Málþing um Búrfellshraun
Sjá grein: Búrfellshraun - Málþing til minningar um Guðmund Kjartansson jarðfræðing
17:30
Undirbúningsfundur fyrir gönguna gegn Monsanto
Sjá grein: Göngum gegn Monsanto

Nýleg orð í belg
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.
Guðrún Tryggvadóttir 21. 03. 2013 08:51:
Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með ...
Daði 19. 03. 2013 17:40:
Heimildarmyndin Hvellur verður sýnd í síðast sinn í kvöld þ. 14. mars í Bíó Paradís ...
Guðrún Tryggvadóttir 14. 03. 2013 11:36:
+ Fleiri ummæli


Náttúran.is á Facebook.




