Næring: Vörur
Hver eru umhverfisáhrif íslensks matvælaiðnaðar?
Matís, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Háskóli Íslands og Samtök iðnaðarins halda opið málþing um íslenskan matvælaiðnað, umhverfismál og vistvæna nýsköpun, laugardaginn 20. apríl kl. 13-17 í Háskólatorgi Háskóla Íslands. Þar verður fjallað um græna hagkerfið og stefnu stjórnvalda í þeim málum. Sagt verður frá Evrópuverkefnunum Ecotrofoods (www.ecotrophelia.eu) og Converge (www.convergeproject.org) og hvernig staðið er að því að minnka umhverfisáhrif í matvælaiðnaði á Íslandi. Þá verður efnt til sýningar og kynningar á verkefnum nemenda í vistvænni nýsköpun matvæla og afhent verðlaun fyrir besta verkefnið.
Dagskrá viðburðarins í heild er eftirfarandi:
13.00-15.00 Málþing
13.00-17.00 Sýning
15.00-16.00 Verðlaunaafhending í keppni nemenda um vistvæna nýsköpun matvæla
Dagskrá málþings:
13.00-13.20 Græna hagkerfið og íslensk matvælaframleiðsla. Skúli Helgason, formaður nefndar um eflingu græns hagkerfis á Íslandi.
13.20-13.40 Umhverfismál og íslenskur matvælaiðnaður. Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfismála hjá Samtökum iðnaðarins
13.40-14.00 Verðmætasköpun og áskoranir í umhverfismálum, Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís
14.00-14.20 Vistvæn nýsköpun matvæla. Fanney Frisbæk, verkefnisstjóri orku- og umhverfistækni, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
14.20-14.40 Converge verkefnið. Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands
14.40-15.00 Umræður
Fundarstjóri: Guðjón Þorkelsson, sviðsstjóri, Matís.
Myndin er samklippa ljósmynda Guðrúnar Tryggvadóttur.
nánar
Matís
17. apríl 2013 11:16
Uppruni: Háskóli Íslands - HÍ / Matís ohf. / Nýsköpunarmiðstöð Íslands / Samtök iðnaðarins
Kjötvörur á Náttúrumarkaði

Að borða lítið af kjöti er eitt það umhverfisvænsta sem hægt er að gera. Það þarf mikið magn vatns, heys, korns og ekki síst lands til þess að framleiða hvert kíló af kjöti. Íslenskt kjöt er þó betra en flest annað kjöt í Evrópu að þessu leyti.
Íslenska fjallalambið gengur um frjálst úti í guðsgrænni náttúrunni og er því umhverfisvænt á vissan hátt þó að segja megi að ein mestu umhverfisspjöll Íslandssögunnar, eyðingu skóga og gróðurs, megi rekja til stjórnlausrar sauðfjárbeitar.
Við framleiðslu kjöts er oft hægt að finna leyfar af hormónum, eiturefnum og lyfjum sem hafa verið notuð við framleiðslu kjötsins. Við lífræna ræktun kjöts er bannað að nota hormóna, að nota tilbúinn áburð og eiturefni á tún og engi þar sem fóður er ræktað og síðast en ekki síst er alveg bannað að nota lyf í fyrirbyggjandi tilgangi. Það þýðir að einungis er leyfilegt að nota lyf til að lækna sjúk dýr en ekki til að koma í veg fyrir að þau verði sjúk. Ofnotkun lyfja er verulegt vandamál, bæði fyrir dýr og manneskjur þar sem að æ fleiri bakteríur eru að verða ónæmar fyrir lyfjunum.
Matvælastofnun er ábyrg fyrir eftirliti með dýraheilbrigði og innlendum og innfluttum kjötvörum sem seldar eru hér á landi.
Enn sem komið er bjóðum við ekki ferskvöru til sölu hér á vefnum en öllum er velkomið að selja vörur í gegnum Náttúrumarkaðinn. Skoða kjötvörudeild Náttúrumarkaðarins.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Náttúran er
27. júlí 2012 13:15
Uppruni: Náttúran.is
Sjávarfang á Náttúrumarkaði
Fiskur er holl uppspretta próteins og vítamína. Hann inniheldur einnig Omega-3 fitusýrur sem eru fyrirbyggjandi gegn mörgum sjúkdómum.
Nokkrir aðilar hafa þróað staðla og vottunarkerfi fyrir sjálfbæra nýtingu sjávarfangs. Umfangsmest þeirra er Marine Stewardship Council (MSC), en einnig hafa Friends of the Sea, KRAV í Svíþjóð, Naturland í Þýskalandi og stjórnvöld nokkurra ríkja þróað slík kerfi að einhverju marki. Vottunarstofan Tún hefur aflað sér faggildingar til vottunar samkvæmt MSC kerfinu. Tún hefur þegar veitt níu íslenskum fiskvinnslu- og fisksölufyrirtækjum MSC vottun á rekjanleika afurða úr sjálfbærum fiskveiðum, og tveimur íslenskum fiskveiðiútgerðum MSC vottun um sjálfbærar fiskveiðar sem gera út á þorsk, ýsu og steinbít.
Í ýmsum reglum um fisk úr sjálfbærum fiskveiðum er yfirleitt alltaf tekið tillit til hversu stór aukaaflinn er miðað við veiðiaðferð og orkunotkun. Að þessu leyti eru færa- og línuveiðar (þar sem fiskurinn „velur“ að vera veiddur) taldar umhverfisvænni en neta og togveiðar. Almennt er talið að fyrir hvert kílógramm af fiski sem er veiddur þurfi um einn líter að eldsneyti. Frá orkusjónarmiði er verið að afla minni orku með meiri.
Því miður hafa fitusækinn þrávirk efni þann leiðinlega ferðavana að ferðast frá heitum löndum til kaldari. Því safnast þessi efni frekar upp í lífverum á norðurhveli en við miðbaug. Yfirleitt eru áhrif þeirra lítil í neðstu þrepum fæðukeðjunnar en ofar í keðjunni verður magnið meira og getur haft áhrif á lífverur. Þetta er til dæmis ástæða þess að ísbirnir og háhyrningar á norðurhveli eru með tiltölulega mikið magn eiturefna í líkamanum. Mannfólkið er eins og ísbirnir og háhyrningar efst í fæðukeðjunni.
Enn sem komið er bjóðum við ekki ferskvöru til sölu hér á vefnum en öllum er velkomið að selja vörur í gegnum Náttúrumarkaðinn. Skoða sjávarfangsdeild Náttúrumarkaðarins.
Matvælastofnun er ábyrg fyrir eftirliti með fiskmeti sem selt eru hér á landi.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Náttúran er
7. mars 2012 15:54
Uppruni: Náttúran.is
Heilsutengd matvæli og markfæði - vöruþróun, framleiðsla, rannsóknir og markaðssetning
Matvæladagur MNÍ árið 2011 verður haldinn þann 18. október nk á Hilton Reykjavík Nordica Hóteli.
Yfirskrift Matvæladagsins að þessu sinni er Heilsutengd matvæli og markfæði, Íslensk vöruþróun, þar sem fjallað verður meðal annars um íslenska vöruþróun, framleiðslu, rannsóknir og markaðssetningu.:
Dagskrá
10:30 – 12:00 Uppsetning veggspjalda & kynningarbása
11:15 – 12:00 Afhending ráðstefnugagna
12:00 – 12:30 Ávarp formanns MNÍ - Herdís Maríanne Guðjónsdóttir, Formaður MNÍ. - Setning & kynning á efni dagsins
Ávarp iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, Iðnaðarráðherra.
Afhending Fjöreggsins, Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins.
Vöruþróun
12:30 - 12:50 Ævintýramarkaðssetning; ull – fiskur - fæðubótarefni - Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri SagaMedica.
12:50 – 13:05 Byggi, íslenskt morgunkorn - frá akri til morgunverðar - Arnar Snær Rafnsson, gæðastjóri, Árla. Friðrik Arelíusson, framkvæmdastjóri, Árla.
13:05 – 13:25 Brauðbakstur úr íslensku hráefni, Iðunn Geirsdóttir, matvælafræðingur, Myllan. Ólafur Eggertsson, bóndi, Þorvaldseyri.
13:25 – 13:40 Íslensk sköpun – lífræn hollusta - Eymundur Magnússon, búfræðingur, Móðir Jörð, Vallanesi. Eygló Björk Ólafsdóttir, viðskiptafræðingur, Móðir Jörð, Vallanesi.
13:40 – 13:55 Hleðsla, íslenskur próteindrykkur - Kristín Halldórsdóttir, gæðastjóri, Mjólkursamsalan Akureyri.
13:55 – 14:10 Hámark, íslenskur próteindrykkur - Pétur Helgason, matvælafræðingur, Vífilfell
14:10 – 14:15 Kynning: Norræna Næringarfræðiráðstefnan 2012 - Guðrún Kristín Sigurgeirsdóttir, Matvæla- og næringarfræðingur verkefnastjóri Rannsóknarstofu í næringarfræði.
14:15 – 14:40 Kaffihlé Veggspjalda- og vörukynningar
14:40 – 15:05 Fagur fiskur í sjó, umfjöllun um þættina & áhrif þeirra - Sveinn Kjartansson, matreiðslumaður, Fylgifiskar. Gunnþórunn Einarsdóttir, sérfræðingur, nýsköpun & neytendur, Matís.
15:05 – 15:20 Fisksósur, lítið nýtt lúxus hráefni - Ómar Bogason, verkefnisstjóri, Brimberg. Arnljótur Bjarki Bergsson, sviðsstjóri, Matís
15:20 – 15:35 Þörungar, þang & heilsa - Rósa Jónsdóttir, fagstjóri á líftækni og lífefnasviði Matís. Þóra Valsdóttir, verkefnastjóri á nýsköpunar og neytendasviði Matís. Hörður G. Kristinsson, rannsóknarstjóri, Matís.
15:35 – 15:50 Lýsi; aldagömul lífsnauðsyn - Árni Geir Jónsson, sölustjóri, Lýsi Hf. Adolf Ólason, markaðsstjóri, Lýsi Hf.
15:50 – 16:05 Prófitt, íslensk lína fæðubótarefna - Björn Jónsson, framkvæmdastjóri, Katla.
16:05 – 16:20 Samantekt, fyrri hluti - Sveinn Margeirsson, fundarstjóri.
16:20 – 16:25 Kynning: eHap, Heilsuvitund og Framgangur verkefnis & næstu skref - HeleGray, næringarrekstrarfræðingur, forstöðum. starfsmenntad. Iðunnar.
16:25 – 16:50 Kaffihlé - Veggspjalda- og vörukynningar.
Rannsóknir og fræðsla
16:50 – 17:10 Merkingar á umbúðum matvæla Zulema Sullca Porta, sérfræðingur, MAST. Næringar- & heilsufullyrðingar.
17:10 – 17:25 Þarf að D-vítamínbæta íslensk matvæli? - Laufey Steingrímsdóttir, Prófessor í næringarfræði, HÍ.
17:25 – 17:40 D-vítamín, ráðlagðar skammtastærðir - Guðbjörg Kristín Ludvigsdóttir, læknir, Landspítali.
17:40 – 18:00 Samantekt, seinni hluti, umræður & ráðstefnuslit - Sveinn Margeirsson, fundarstjóri.
Fundarstjóri: Sveinn Margeirsson, Ph.D. forstjóri Matís
Þátttökugjald: Fyrir 14. október, 4.500 kr, eftir það og á staðnum 5.500 kr. 3.000 kr fyrir nemendur.
Nánari upplýsingar veitir Fríða Rún Þórðardóttir, 898 8798 frida@isport.is.
nánar
Matís
17. október 2011 12:08
Uppruni: Matvæla- og næringafræðifélag Íslands
Matvörur á Náttúrumarkaði
Í matvörudeidlinni finnur þú allar mat og drykkjarvörur eða allt vöruúrval Náttúrumarkaðarins sem er ætlað til manneldis. Hér í matvörudeildinni leitumst við við að setja fram sem nákvæmastar upplýsingar og birta innihalds, framleiðslu- og vottunarupplýsingar á sem nákvæmastan hátt. Regla er að allar upplýsingar sem er að finna á umbúðunum séu hér vel læsilegar. Það á við bæði um samsetningu framleiðslunnar sem og rotvarnarefni og önnur aukaefni s.s. bragðaukandi efni, skildu þau vera fyrir hendi í vörunni. E-númer eru oft notuð til að auðkenna aukaefni og er tilgangurinn bæði að einfalda innihaldslýsingar og að auðvelda fólki að varast tiltekin efni, svo sem vegna ofnæmisáhrifa (óþols). Sumar vörur eru aðeins kynntar en aðrar er hægt að panta og fá heimsendar.
Enn sem komið er bjóðum við ekki ferskvöru til sölu hér á vefnum en öllum er velkomið að selja eða kynna vörur í gegnum Náttúrumarkaðinn. Skoða matvörudeild Náttúrumarkaðarins.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Náttúran er
12. ágúst 2011 10:31
Uppruni: Náttúran.is

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | maí |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | maí |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | maí |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | maí |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jún |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jún |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jún |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jún |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jún |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | júl |
fimmtudagur 23. maí
00:00 - 11:00
Sáðalmanak: Rót
Sjá grein: Sáðalmanak fyrir maí 2013
12:00 - 19:00
Sáðalmanak: Blóm
Sjá grein: Sáðalmanak fyrir maí 2013
19:00 - 23:59
Sáðalmanak: Óhagstætt
Sjá grein: Sáðalmanak fyrir maí 2013
20:00 - 22:00
„Do the Math“ eftir 350.org
Sjá grein: „Do the Math“ eftir 350.org
20:00 - 22:00
„Do the Math“ eftir 350.org
Sjá grein: „Do the Math“ eftir 350.org

Nýleg orð í belg
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
+ Fleiri ummæli


Náttúran.is á Facebook.




