Næring: Í eldhúsinu

Fyrstu ræktuðu jurtirnar

Lukkupottur gr

Það er árleg hátíð þegar fyrstu ræktuðu jurtirnar eru teknar inn, jafnvel þótt það séu aðeins blaðbroddar. Þeir stækka fljótt. Þann 12. maí 2002 hef ég skrifað hjá mér: – Búið að vera heldur kalt og oft næturfrost. Skrýtið að vera að rækta úti í frostinu. Ég tíndi úr gróðurhúsinu sellerístilka, steinselju og blaðbeðju frá í fyrra, sem allt var að vaxa upp og ætlar að fara að mynda fræ. Þarna sat ég og hugsaði hvað ég gæti nú gert við þetta. Las í ítalskri kokkabók um rísottó, blautt með sterkum kryddjurtum.

Rísottó fyrir villijurtir og vorjurtir
Hitið olíu
setjið í marinn hvítlauk
setjið í hrísgrjónin og hafið í olíunni í 5 mín setjið í grænmetið, sem má vera villijurtir á vorin – kryddjurtir og hvaðeina sem kemur upp snemma í gróðurhúsi. Seinna um sumarið má það vera smátt skorinn kúrbítur, grænkál eða spínat. Setjið út á soð með ögn af salti, gjarnan grænmetissoð en aðeins lítið í einu og láta hrísgrjónin drekka það í sig í skömmtum. Endurtaka þetta nokkrum sinnum. Setjið yfir rifinn parmesanost, svartan pipar og smjör eða olíu.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Hildur Hákonardóttir
19. maí 2013 15:57
Uppruni: Hildur Hákonardóttir
Deildu með vinum

Tvær uppskriftir fyrir vorjurtir

Kerfill - Hildur Hákonardóttir

Eggjakaka með villijurtum
Til að halda upp á vorkomuna má gera eggjaköku með frönsku kryddfernunni fines herbes, sem samanstendur af kerfli, graslauk, fáfnisgrasi (estragon) og steinselju. Þessar fjórar jurtir fara prýðilega saman, hvað bragð snertir. En ástæðan fyrir hefðinni er líklega sú að þær hafa sprottið á sama tíma. Eigi maður gróðurhús geta ársgömul steinselja og fáfnisgras fengist á sama tíma og kerfill og graslaukur spretta úti. Annars er bara að gera tilraunir með þær kryddjurtir náttúrunnar sem finnast á hverjum stað. En vorjurtaeggjakaka skal það vera.

Villijurtarjómasósa fyrir pasta
Á vorin er líka tilvalið að gera villijurtarjómasósu fyrir pasta. Hvítlaukur og annar laukur, grænu stönglarnir af perlulauk ef maður á hann, er settur á pönnu og látinn meyrna í góðri olíu. Síðan er bætt út í tveimur lúkufyllum af fínt söxuðum, snemmsprottnum villijurtum (líka má nota bragðsterkt grænmeti, eins og karsa, steinselju eða klettasalat, spínat eða blaðbeðju). Ef graslaukur er notaður fer hann í með jurtunum. Þetta er aðeins látið taka sig á pönnunni og þá sett út á matskeið af góðu hveiti og hrært vel, svo hveitið jafnist. Þar næst er settur yfir vænn slurkur af matvinnslurjóma og aftur hrært kappsamlega uns sósan verður hæfilega þykk. Hafi maður gott soð við höndina má nota það til að drýgja rjómann, ef það þykir æskilegt, en þarf ekki bragðsins vegna. Þetta er svo saltað eða kryddað með pipar eftir smekk. Svo er bara að blanda saman við pasta, þarna fer skeljapasta vel og segja: Gerið þið svo vel!

Grafík: Kerfill, Hildur Hákonardóttir. Úr Ætigarðinum - handbók grasnytjungsins, eftir Hildi Hákonardóttur. Bókin er fáanleg hér á Náttúrumarkaðinum.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Hildur Hákonardóttir
9. maí 2013 09:14
Uppruni: Hildur Hákonardóttir
Deildu með vinum

Hreinlætisvörur Hreinlætisvörur Kaffivél Örbylgjuofn Frystivara Kælivara Eldhúsborð Eldhúsborð Vaskur Blóm Vefnaðarvörur Frystir Ísskápur Uppþvottavél Bakaraofn og vifta Bökunarofn og vifta Hreinlætisvörur Blöndunartæki Rafmagnsinnstunga Matvinnsluvél Kryddhilla Eldhúsinnrétting Brauð Pottar og pönnur Þurrvara Kaffi og te Matreiðslubækur Eldhúsið husid_eldhusid
BendillEf smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar

Eldhúsið - Pottar og pönnur

Mikið hefur verið í umræðunni að undanförnu í hvaða málmum best er að elda eða baka mat. Ál er ekki talið ákjósanlegt efni. Teflon mun geta eitrað matinn. Pottjárn er talinn öruggur kostur. Stál-pottar og pönnur með sérstökum lagskiptum botni eiga að gera vatn næsta ónauðsynlegt við suðu og fitu við steikingu. Slíkir pottar og pönnur hafa þó þann galla að vera mjög dýrir og það er því ekki á allra færi að eignast þá.

Ágætis lausn eru þykkir og góðir pottar og pönnur úr pottjárni. Þeir eru svo sterkir að þeir geta enst út lífið, sé vel hugsað um þá. Einnig ljá þeir matnum góðan skammt af járni sem oft er hörgull á í fæðunni. Glerpottar og eldföst mót úr leir eru einnig talin vera mjög góð lausn.

Út frá sjónarmiði orkusparnaðar:

  • Best er að nota þá stærð af potti sem þú þarft hverju sinni og velja þá hellu sem passar þeim potti.
  • Velja skal potta sem snerta eldavélarhelluna allan hringinn.
  • Það skiptir máli að loka pottinum meðan á suðu stendur.
  • Best er að nota ekki meira vatn á matinn en þú þarft til þess að sjóða hann.

nánar

Náttúran er
11. apríl 2013 10:32
Uppruni: Náttúran.is
Deildu með vinum

Úr eldhúsi Helgu Mogensen

Úr eldhúsi Helgu Mogensen

Á síðustu þrjátíu árum hefur Helga Mogensen tekið þátt í uppbyggingu margra helstu grænmetisveitingastaða landsins og deilt reynslu sinni og þekkingu í grænmetismatargerð, landanum til ánægju og heilsubótar.

Helga Mogensen hefur nú sett á markað sælkeramat undir heitinu „Úr eldhúsi Helgu Mogensen“. Hugmyndafræði Helgu er einföld. Hún vill bjóða landsmönnum og -konum upp á hollan og hreinan sælkeramat, sem er matreiddur af ást og virðingu við neytandann. Engin geymsluefni eða önnur aukaefni.

Indverskur grænmetisréttur
Indverski grænmetisrétturinn er bragðgóður og ljúfur. Í réttinum eru rauðar linsubaunir, sem eru mjög próteinríkar, gulrætur, spínat, laukur og hvítlaukur ásamt kókósmjólk og dásamlegum indverskum kryddum. Hann er skreyttur salthnetum og með réttinum fylgja hýðishrísgrjón. Helga mælir með hnetusósunni og fersku salati með þessum. Rétturinn er borinn fram í handhægu glasi sem er endurvinnanlegt.

Indverskur lambapottréttur
Lambapottrétturinn er guðdómlegur. Það eru strákarnir í Kjöthöllinni sem sjá um að í lambrétturinn fer aðeins súper gott lambakjöt. Síðan er það laukur, gulrætur, kúrbítur og ferskir tómatar. Sósan er löguð úr kókósmjólk, maukuðu chillí ásamt girnilegum kryddum og tómatpúrru og hvítlauk. Með réttinum fylgja hýðishrísgrjónum og mangó-chutney. Toppaðu þennan með myntu-engifersósunni og þú iðar af sælu. Pottrétturinn er borinn fram í handægum endurvinnanlegum umbúðum.

Tælenskur kjúklingabaunaréttur
Rétturinn er svo einfaldur en samt svo ljúffengur.Þessi er bragðmeiri en sá indverski. Hann inniheldur kjúklingabaunir, sætar kartöflur, gulrætur, lauk, papriku og kókósmjólk, sítrónugras, karrý og önnur himnesk krydd. Með réttinum fylgja hýðishrísgrjón. Með þessum rétt er nauðsynlegt að fá sér hnetusósu eða myntu-engiferssósu. Þessi inniheldur ekki hvítlauk.

Réttirnir Úr eldhúsi Helgu Mogensen er hæt að nálgast í Frú Laugu, Melabúðinni, Fjarðarkaupum og Lifandi Markaði ásamt Sputnik versl, Vísir Laugavegi.

Helga leggur mikið upp úr samspili ólíkra hráefna sem kitla bragðlaukana og leikur sér að samsetningu og útliti til að gera matarstundina ánægjulega. Umbúðirnar þola örbylgjuofn en eins er ekkert auðveldara en að skella þeim á pönnuna og hita.

Elskum umhverfið!

Allar umbúðirnar eru endurvinnanlegar og hvetur Helga viðskiptavini sína til að flokka umbúðir eftir notkun.


nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
8. apríl 2013 11:53
Uppruni:
Deildu með vinum

LED-ljós gegn matarúrgangi

Ávextir uppstilling 2

Talsmenn velska fyrirtækisins Sedna halda því fram að draga megi verulega úr úreldingu matvöru í verslunum með því einu að nota díóðuljós (LED) í stað hefðbundinnar lýsingar þar sem ferskri matvöru er stillt upp. Díóðuljósin hafa það fram yfir hefðbundin ljós að senda hvorki frá sér hitageisla, útfjólubláa geisla né innrauða geisla. Séu þau notuð er því minni hætta á því en ella að matvæli „svitni“ í umbúðunum og verði óseljanleg. Samtals er áætlað að um 300.000 tonn af matvælum fari til spillis í breskum verslunum árlega, einkum vegna ófullnægjandi geymslu.
(Sjá frétt EDIE í dag).

Ljósmynd: Guðrún A. Tryggvadóttir.


nánar

Stefán Gíslason
11. mars 2013 12:15
Uppruni: 2020.is
Deildu með vinum

1234789

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012   2013  
jan   feb   mar   apr   maí  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Nýleg orð í belg

18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
VERNDUM LÍFRÍKI MÝVATNS
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
Bláa tunnan
Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.
Guðrún Tryggvadóttir 21. 03. 2013 08:51:
Bláa tunnan
Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með ...
Daði 19. 03. 2013 17:40:
Heimildarmyndin Hvellur frumsýnd
Heimildarmyndin Hvellur verður sýnd í síðast sinn í kvöld þ. 14. mars í Bíó Paradís ...
Guðrún Tryggvadóttir 14. 03. 2013 11:36:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.