Umhverfið: Vistvæn innkaupaviðmið

Vistvæn innkaupaviðmið

Til þess að auðvelda innkaup á vörum og þjónustu sem eru síður skaðleg umhverfi og heilsu hefur Náttúran.is tekið saman 11 viðmið sem spanna veigamestu þættina. Viðmiðin eru einföld og hjálpa til að nálgast markmiðið, það er að velja bestu vöruna út frá sjónarmiði heilsu, umhverfis og jafnvel félagslegum aðstæðum sem í daglegu tali eru nefnd sjálfbær þróun.

Viðmiðin eru: Orka, eldsneyti, vatnsnotkun, ofnæmi, hættuleg efni / tilbúin efni, þungmálmar, öryggisblað, umhverfismerkingar, sanngirnisvottun, vinnuumhverfi og endurvinnsla.

Hér til hægri, undir flipanum Viðmið sérð þú táknmyndir fyrir vistænu innkaupaviðmiðin í láréttu röðinni og í lóðrettu röðinni táknmyndir ýmissa vörutegunda. Ef þú smellir á þessi tákn getur þú lesið þig til um hvert viðmið og vörutegund fyrir sig auk þess sem að auðvelt er að sjá hvaða viðmið eiga við hverja vörutegund þar sem viðeigandi viðmið eru sýnileg í láréttu línunni út frá vörunni.

Eitt eða fleiri af þessum viðmiðum eiga að meira eða minna leiti við um hverja einustu vöru. Um leið og við gerum okkur grein fyrir því eftir hverju þarf að leita til að velja vistvænstu vöruna verða vistvæn innkaup leikur einn.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Náttúran er
19. apríl 2010 00:26
Uppruni: Náttúran.is
Deildu með vinum

Eldsneyti - viðmið

Eldsneyti 200% á 120x120p grunni

Eldsneytisnotkun er gefin til kynna með mismunandi einingum sem getur skapað vandamál þegar bornar eru saman vörur. Hér er um að ræða lítra, kW eða kWst.

Sem dæmi má nefna:

  • Eldsneytisnotkun bifreiða er mæld í lítrum á 100 km.
  • Eldneytisnotkun véla er oft mæld í kWst eða bara kW
  • Eldsneytisnotkun sláttuvéla er mæld i kW
  • Eldsneytisnotkun vöruflutninga er oft mæld i lítrum á tonn km.

þessi grein er lengri, lesa meira...



Finnur Sveinsson
8. apríl 2010 17:07
Uppruni: Náttúran.is
Deildu með vinum

Ræstingarsvið ISS komið með Svansvottun

Svanurinn- texti: Umhverismerki

Ræstingarsvið ISS Ísland hefur fengið vottun Norræna umhverfismerkisins Svansins fyrir ræstingarþjónustu. ISS er annað fyrirtækið í ræstiþjónustu til að fá Svansvottun en í fyrra fékk fyrirtækið Sólarræsting Svaninn.

Strangar kröfur Svansins tryggja  að fyrirtækið er í fremstu röð hvað varðar lágmörkun neikvæðra umhverfis- og heilsuáhrifa starfseminnar. ISS Ísland sem starfar á sviði fasteignaumsjónar er jafnframt fyrsta ISS fyrirtækið á heimsvísu til að fá slíka vottun. Svansvottunin nær þó til ræstingarsviðs fyrirtækisins hér á landi.

Umhverfisráðherra veitir leyfið föstudaginn 20. nóvember í húsnæði ISS og er fjölmiðlum boðið. “Það gleður mig að ISS hefur ákveðið að taka þátt í því með okkur að byggja upp sjálfbært samfélag. Það er ljóst að vistvæn innkaupastefna ríkisins hefur tilætluð áhrif sem lýsir sér í auknum áhuga á Svansvottun” segir Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.

Sjá fyrirtækin sem hafa Svansvottun hér á landi á Grænum síðum.

Sjá þá vöruflokka sem eru í boði af Svansvottuðum vörum hér á landi undir „Vörur/Vottað Svanurinn“ en í hverjum flokki finnur þú hvaða fyrirtæki flytja inn/dreifa viðkomandi vöruflokki. Samsvarandi flokkur er fyrir þjónustuflokkana undir „Þjónusta/Vottað Svanurinn“ hér á Grænum síðum.

Einnig er hægt að sjá gott yfirlit yfir aðilana hér á Græna Íslandskortinu.

Um ISS

ISS Ísland er sjálfstætt íslenskt fyrirtæki í eigu alþjóðafyrirtækisins ISS A/S, sem starfar í yfir 50 löndum. Á ræstingarsviði ISS starfa yfir 600 manns. ISS Ísland er stærsta ræstingarþjónustan á landinu og fyrsta ISS fyrirtækið í heiminum til að fá Svansvottun fyrir starfsemina. Viðskiptavinir fyrirtækisins á sviði ræstinga eru um 480 talsins, svo um er að ræða stóran hóp sem nú fær að njóta góðs af Svansmerkingu ISS og hefur vottun því mikil áhrif í samfélaginu. „Við erum ákaflega stolt yfir að fá umhverfisvottun Svansins” segir Guðmundur Guðmundsson, framkvæmdastjóri ISS Ísland. „Svanurinn tengir endanlega saman verkferla fyrirtækisins við umhverfisstefnu þess og tryggir viðskiptavinum ISS gæðaþjónustu, sem er vistvænni í framkvæmd. Okkur er það mikil ánægja að geta lagt okkar lóð á vogarskálarnar að umhverfisvænna atvinnulífi á Íslandi.“


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
19. nóvember 2009 13:38
Uppruni: Umhverfisstofnun
Deildu með vinum

Vistvæn innkaup og græn nýsköpun

Stefna um vistvæn innkaup var samþykkt af ríkisstjórn Íslands þann 13. mars 2009. Markmið stefnunnar er að minnka neikvæð umhverfisáhrif og þar með umhverfiskostnað vegna opinberra innkaupa. Einnig er þess vænst að þessi stefna muni leiða til þess að samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja batni þar sem þau muni þá þurfa að bjóða upp á umhverfisvænni valkosti en áður. Innkaupastefnan muni þannig leiða af sér nýsköpun. Vistvæn innkaup geta minnkað kostnað og aukið gæði vöru og þjónustu, samhliða því að taka umhverfiskostnað með í reikninginn. Innkaupastefna hins opinbera mun þannig að öllum líkindum auka framboð á vistvænum vörum og þjónustu sem getur ný st öllu samfélaginu.

Umhverfisstofnun mun innleiða vistvæna innkaupastefnu og verða fyrirmynd fyrir aðrar stofnanir og fyrirtæki. Stofnunin mun bjóða öðrum stofnunum aðstoð við innleiðingu stefnunnar. Unnið verður í samvinnu við Ríkiskaup vegna þróunar viðmiða í rammasamninga. Loks mun Umhverfisstofnun miðla upplýsingum og bjóða upp á fræðslu til fyrirtækja.

Kristín Linda ræddi um að upplýsingagjöf og samstarf væru lykilatriði í því ferli sem felst í vistvænum innkaupum og grænni nýsköpun. Fyrirtæki þurfa fljótt og örugglega að fá upplýsingar um breytingar á kröfum opinberra innkaupaðila. Þeim þarf síðan að gefa tækifæri til að svara breyttum forsendum og þróa nýjar lausnir. Mikilvæg forsenda árangurs er að um þetta sé gott samstarf milli opinberra aðila og einkafyrirtækja. Stjórnvöld þurfa styðja við þróun nýrra lausna. Miðlun upplýsinga og fræðsla er lykilatriði til þess að allir hafi upplýsingar og skilning á breyttum kröfum og verkferlum. Samstarf við atvinnulífið er nauðsynlegt til þess að koma upplýsingum til skila, ekki síst til smærri fyrirtækja.

Svanurinn, norræna umhverfismerkið mun leika stórt hlutverk í hinu nýja vistvæna umhverfi. Tilgangur Svansins er að ýta undir sjálfbæra þróun samfélagsins svo komandi kynslóðir hafi jafna möguleika og við til að mæta þörfum sínum. Svanurinn gerir strangar kröfur um ótal þætti, bæði varðandi umhverfisþætti og heilsu fólks. Svansmerking er tækifæri fyrir öll fyrirtæki, hvort sem þau eru þegar leiðandi fyrirtæki eða græn sprotafyrirtæki. Mögulegt er að votta 66 vöru- og þjónustuflokka. Ávinningur fyrirtækja af Svansvottun er margvíslegur, s.s. bætt frammistaða í umhverfismálum, rekstrarsparnaður, bætt ímynd og fleira.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Umhverfisstofnun
18. nóvember 2009 14:12
Uppruni: Umhverfisstofnun
Deildu með vinum

Loftslagsvænir og lífrænir Náttúrubolir

Náttúran.is hefur nú annað árið í röð látið merkja sér EarthPositive™ stuttermaboli en við fyrstu innkaup hér á Nátttúrumarkaði yfir 7.000 IKR netto fylgir bolur með sem gjöf. Bolirnir eru til í mismunandi stærðum og þremur litum, bæði fyrir dömur og herra. Einnig er hægt að kaupa bolina staka. Sjá gjafavörudeildina.

Hvað er EarthPositive?
EarthPositive™ er byltingarkennd græn markaðssetning á fatalínu fyrir auglýsingaiðnaðinn en BROS er nú að hefja innflutning á línunni Climate Neutral T-shirts (lofslagsvænir stuttermabolir) en þeir eru lífræn- og sanngirnisvottuð framleiðsla (6 vottanir) sem framleidd er eingöngu með sjálfbærri vind- og sólarorku þar sem allt ferlið er grandskoðað með tilliti til umhverfisáhrifa frá ræktun til afhendingar til viðksiptavinarins. The Carbon Trust hefur þróað fyrstu líftíma- kolefnislosunarvottun CO2 vottunina sem sýnir kolefnislosun sem hver einstök vara er ábyrg fyrir. Vottunin er einstök á heimsvísu en stuttermabolir Náttúrunnar frá EarthPositve eru einmitt vottaðir af Carbon Trust. Sjá nánar um Carbon label.

Heildarlosun v. framleiðslu og flutning EarthPositive stuttermabolar er:
Dömubolur 576g, herrabolur 671g.

Náttúrubolirnir eru til áprentaðir með hvítu merki Náttúrunnar í takmörkuðu upplagi og gildir tilboð þetta á meðan birgðir endast. Óskir þú eftir að fá Náttúrubol eða Náttúruspil skrifar þú okkur á nature@nature.is og ef bolur verður fyrir valindu tekur þú fram hvaða stærð og  hvaða lit þú óskar eftir.

Sjá svartan Náttúru stuttermabol fyrir herra - M.
Sjá svartan Náttúru stuttermabol fyrir dömur - M.
Sjá dökkbláan Náttúru stuttermabol fyrir dömur - S.
Sjá rauðan Náttúru stuttermabol fyrir dömur - S.


nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
31. júlí 2009 10:28
Uppruni: Náttúran.is
Deildu með vinum

123456789101112

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012   2013  
jan   feb   mar   apr   maí   jún   júl   ágú   sep   okt   nóv   des  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Nýleg orð í belg

Spergilkál
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Grænkál og hvítkál
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Spergilkál
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Grænkál og hvítkál
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
VERNDUM LÍFRÍKI MÝVATNS
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.