Umhverfið: Umhverfismerki
AB Agriculture Biologique
AB Agriculture Biologique er franskt vottunarmerki um lífræna framleiðslu á landbúnaðarafurðum og vottar að varan hefur verið framleidd á lífrænan hátt og uppfylla öll skilyrði lífrænnar ræktunar skv. 9. og 15. grein Evrópureglugerðar (EEC) 2092/91. Matvæli þurfa að innihalda a.m.k. 95% lífrænt ræktað hráfefni til að fá BIO-vottun.
nánar
Náttúran er
24. apríl 2013 08:44
Uppruni: Náttúran.is
EarthCheck Certified
EarthCheck (áður Green Globe) er viðmiðunar-og vottunarkerfi sem stuðlar að sjálfbærri ferðaþjónustu. Það er byggt á Dagskrá 21 og gefur fyrirtækjum og samfélögum tækifæri á að vinna á markvissan hátt að umhverfismálum. EarthCheck leggur áherslu á þá meginý ætti tengda umhverfinu, félags- og efnahagsmálum sem hafa mest áhrifa á umhverfið. Fyrirtæki í ferðaþjónusta og samfélög innan Earthcheck eru afð finna um allan heim og í helstu greinum innan ferðaþjónustunnar.
EarthCheck Certified er merki þeirra fyrirtækja og og samfélaga sem náð hafa Earthcheck fullnaðarvottun. Sjá þá aðila á Íslandi sem náð hafa fullnaðarvottun EarthCheck hér á grænum síðum.
Sjá alþjóðlegan vef EarthCheck.
Grænir hælar hafa umsjón með vottunarkerfi EarthCheck hér á landi.
nánar
Náttúran
26. mars 2013 10:30
Uppruni: Náttúran.is
PEFC
PEFC er umhverfismerki óháðu samtakanna Programme for the Endorsement of Forest Certification. PEFC merkið tryggir að viðkomandi skógarafurðir séu framleiddar úr sjálfbærum skógum. Framleiðsluvörur merktar PEFC eru t.d. pappír, viðarkol, viður, viðarhúsgögn, pappamál o.m.fl.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
19. mars 2013 19:16
Uppruni:
Astma- og ofnæmissamtök Norðurlanda
Merki Astma- og ofnæmisstamtaka Norðurlanda.
Landssamtök astma- og ofnæmissjúklinga á Norðurlöndum veita ofnæmisprófuðum og samþykktum vörum í viðkomandi landi leyfi til að bera merki Astma- og ofnæmissamtakanna til þess að auðvelda astma- og ofnæmissjúklingum að finna vörur sem prófaðar hafa verið á viðurkenndan hátt og ekki eru taldar valda ofnæmi.
nánar
Náttúran er
15. mars 2013 11:13
Uppruni: Náttúran.is
Plastmerkingar
Plastmerkin sjö gefa til kynna að plastefnið sé endurnýtanlegt eða endurvinnanlegt. Á Íslandi er úrvinnslugjald á heyrúlluplast og umbúðaplasti úr plastfilmu, stífu plasti, frauðplasti og öðru plasti. Gjaldið er lagt á til að greiða fyrir meðhöndlun umbúðanna og endurnýtingu eftir að þær hafa þjónað upphaflegum tilgangi sínum. Sjá nánar á vef Úrvinnslusjóðs.
Til þess að gera endurvinnslu plasts mögulega er nauðsynlegt að merkja tegundirnar sérstaklega því plast getur verið mjög mismunandi að eiginleikum.
Plastiðnaðurinn og aðrir hagsmunaaðilar hafa því komið sér saman um að merkja plastumbúðir og plasthluti með tölustaf í þríhyrningi (1 – 7) og skammstöfun fyrir viðkomandi tegund t.d. Nr. 2, HDPE; High Density PolyEthylene.
- PETE (Polyetylentereftalat).
- HDPE- PE-HD (Polyetylen, mikill þéttleiki).
- PVC (Polyvinylklorid).
- PE-LD (Polyetylen, lítlll þéttleiki).
- PP (Polypropylen).
- PS (Polystyren).
- Aðrar plasttegundir
nánar
Náttúran er
11. mars 2013 11:35
Uppruni: Náttúran.is

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | maí |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | maí |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | maí |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | maí |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jún |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jún |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jún |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jún |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jún |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | júl |
föstudagur 24. maí
00:00 - 23:59
Sáðalmanak: Óhagstætt
Sjá grein: Sáðalmanak fyrir maí 2013

Nýleg orð í belg
Göngum gegn Monsanto á laugardaginn kl. 17:00 http://www.facebook.com/events/371999209586441/?notif_t=plan_user_invited
Guðrún Tryggvadóttir 23. 05. 2013 21:16:
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
+ Fleiri ummæli


Náttúran.is á Facebook.




