Dagatal: Tímamælingar
Gömlu íslensku mánaðaheitin og gregoríanska tímatalið

Hin gömlu íslensku mánaðaheiti eru þessi:
- þorri hefst föstudag í 13. viku vetrar (19. – 26. janúar)
- góa hefst sunnudag í 18. viku vetrar (18. – 25. febrúar)
- einmánuður hefst þriðjudag í 22. viku vetrar (20. – 26. mars)
- harpa hefst sumardaginn fyrsta, fimmtudag í 1. viku sumars (19. – 25. apríl)
- skerpla hefst laugardag í 5. viku sumars (19. – 25. maí)
- sólmánuður hefst mánudag í 9. viku sumars (18. – 24. júní)
- heyannir hefjast á sunnudegi 23. – 30. júlí
- tvímánuður hefst þriðjudag í 18. viku sumars (22. – 29. ágúst)
- haustmánuður hefst fimmtudag í 23. viku sumars (20. – 26. september)
- gormánuður hefst fyrsta vetrardag, laugardag í 1. viku vetrar (21. – 28. október)
- ýlir hefst mánudag í 5. viku vetrar (20. – 27. nóvember)
- mörsugur hefst miðvikudag í 9. viku vetrar (20. – 27. desember)
Á skífunni hér að ofan sést hvernig gömlu mánaðaheiti skarast við gregoríanska tímatalið sem við notumst við í dag.
Samkvæmt gömlum heimildum voru enn eldri mánaðanöfn, þau er notuð voru til forna enn meira lýsandi fyrir þau verk sem bændur og búaiið unnu á tilteknum tímum og lýsir vel nálægðinni við náttúruna og nauðsyn þess að vinna ákveðin verk á réttum tíma. Fornu mánaðanöfnin eru eftirfarandi:
- gaukmánuður/sáðtíð u.þ.b. 12. apríl – 11. maí
- eggtíð/stekktíð u.þ.b. 12. maí – 11. júní
- sólmánuður/selmánuður u.þ.b. 12. júní – 11. júlí
- miðsumar/heyannir u.þ.b. 12. júlí – 11. ágúst
- tvímánuður/heyannir u.þ.b. 12. ágúst – 11. september
- kornskurðarmánuður/haustmánuður u.þ.b. 12. september – 11. október
- górmánuður u.þ.b. 12. október – 11. nóvember
- ýlir/frermánuður u.þ.b. 12. nóvember – 11. desember
- jólmánuður/mörsugur/hrútmánuður u.þ.b. 12. desember – 11. janúar
- þorri u.þ.b. 12. janúar – 11. febrúar
- gói u.þ.b. 12. febrúar – 11. mars
- einmánuður u.þ.b. 12. mars – 11. apríl
Nákvæm dagsetning er mismunandi eftir árum.
Grafík: Árstíðaskífa, Guðrún Tryggvadóttir ©Náttúran.is.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
28. janúar 2013 12:21
Uppruni: Árni BJörnsson / Björn Halldórsson / Náttúran.is / Vísindavefur HÍ
Sumarsólstöður verða í kvöld kl. 23:09
Samkvæmt Almanaki Þjóðvinafélagsins eru sumarsólstöður nákvæmlega kl. 23:09 kvöldið 20. júni. Þá er bara að gera sig tilbúin/nn til að fara út í guðsgræna náttúruna og baða sig í dögginni en hún á að vera svo heilnæm, að menn læknist af kláða og 18 öðrum óhreinindum í holdi við að velta sér í henni allsber. Og um leið má óska sér.
Tímasetning sumarsólstaða hnikast örlítið milli ára, eftir því hvernig stendur á hlaupári. Á sólstöðum stefnir ofanvarp snúningsáss jarðar á braut jarðar beint á miðju sólar. Þessi atburður er því á tilteknu augnabliki innan dagsins.
Við sumarsólstöður sest sólin ekki á stöðum norðan við norðurheimskautsbaug. Norðurheimskautsbaugur er á 66°34'N og sker norðurhluta Grímseyjar og er miðaður við rétta stefnu í miðju sólar og er þá ekki tekið tillit til ljósbrots í andrúmsloftinu. Þegar tekið er tillit til ljósbrotsins og þess að sólarupprás og sólarlag eru miðuð við síðustu geisla sólar, þ.e. efri rönd sólarkringlunnar, þá sest sólin ekki um sumarsólstöður við nær alla norðurströnd Íslands, eða á stöðum norðan við 65°50'N.
Halli snúningsáss jarðar er nokkuð stöðugur um 23,44° frá því að vera hornréttur á braut jarðar um sólina. Þessi halli breytist þó með reglulegri sveiflu um 2° á 40.000 ára fresti. Þessi langtímasveifla kemur fram í veðurfarsbreytingum á jörðinni. Nú um stundir veldur þessi sveifla því að norðurheimskautsbaugurinn færist norður á bóginn um 15 m á ári og mun fara norður fyrir Grímsey eftir nokkra áratugi.
Skoða má sólargang á Íslandi á vef Veðurstofunnar.
Ljósmynd: Blágresi, Guðrún A. Tryggvadóttir.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
20. júní 2012 22:16
Uppruni: Náttúran.is / Veðurstofa Íslands

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | maí |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | maí |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | maí |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | maí |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jún |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jún |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jún |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jún |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jún |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | júl |
fimmtudagur 23. maí
00:00 - 11:00
Sáðalmanak: Rót
Sjá grein: Sáðalmanak fyrir maí 2013
12:00 - 19:00
Sáðalmanak: Blóm
Sjá grein: Sáðalmanak fyrir maí 2013
19:00 - 23:59
Sáðalmanak: Óhagstætt
Sjá grein: Sáðalmanak fyrir maí 2013
20:00 - 22:00
„Do the Math“ eftir 350.org
Sjá grein: „Do the Math“ eftir 350.org
20:00 - 22:00
„Do the Math“ eftir 350.org
Sjá grein: „Do the Math“ eftir 350.org

Nýleg orð í belg
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
+ Fleiri ummæli


Náttúran.is á Facebook.




