Náttúran.is: Þjónustan
Náttúruspilin á netinu
Náttúran.is hefur útfært Náttúruspil - 52 góð ráð fyrir þig og umhverfið í netútgáfu. Þau geta þeir sem vilja sett á vefsíður sínar, án endurgjalds. Til þess þarf að setja inn örítinn kóðabút sem kallar á spilin. Við hverja hleðslu síðunnar er sótt spil út stokknum af handahófi og birt.
Hægt er að stilla af breidd spilsins en hæðin er föst 400 pixel. Til að stilla breiddina er sú tala sem hentar sett í kóðann á báða staðina sem 290 stendur í dæminu að neðan. Þeir sem hafa til þess þekkingu get líka búið sér til AJAX tengingu sem hleður nýju spili á tilteknum fresti. Þeim til upplýsinga er 290 í vefslóðinni breyta sem segir til um breiddina. Ekki er æskilegt að nota meiri breidd en 470 pixel því myndin er gerð í þeirri stærð og gæti orðið óskýr við stækkun.
Nokkuð hefur verið spurt um þennan möguleika og nú er hann orðinn að veruleika sem vonandi getur gagnast og glatt vini náttúrunnar.
Hér er kóðinn á íslensku spilin:
<iframe src="http://www.natturan.is/spilin/290/" width="290" height="400" marginheight="0" marginwidth="0" frameborder="0" scrolling="no"></iframe>
Hér kóðinn á ensku spilin:
<iframe src="http://www.natturan.is/spilin/en/290/" width="290" height="400" marginheight="0" marginwidth="0" frameborder="0" scrolling="no"></iframe>
nánar
Einar Bergmundur
26. apríl 2013 15:12
Uppruni: Náttúran.is
Smáforrit Náttúrunnar - Endurvinnslukortið
Náttúran.is hefur gefið út Endurvinnslukort fyrir iPhone og iPad og er það nú aðgengilegt í AppStore. Smáforritið er ókeypis og notkun þess líka. Þeir sem nota það yfir 3G eða 4G samband greiða fyrir gagnflutning sem reynt er að halda í lágmarki.
Tilgangur Endurvinnskortsins er að fræða um flokkun og endurvinnslu og einfalda leit að réttum stað fyrir hvern endurvinnsluflokk og stuðla þannig að betri flokkun ásamt betri og markvissari endurvinnslu.
Endurvinnslukortið verður einnig fáanlegt á ensku og fyrir Android innan skamms.
Helstu samstarfsaðilar við gerð Endurvinnslukortsins eru; Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Sorpa bs., Úrvinnslusjóður, Umhverfissjóður Landsbanka Íslands, Gámaþjónustan, Sorpstöð Suðurlands bs. og Reykjavíkurborg og þakkar Náttúran.is þeim fyrir gott samstarf.
Endurvinnslukortið fyrir iPhone og iPad má nálgast í App Store.
![]()
Með þvi að skanna inn QR kóðan má fara beint á forritð í iPhone eða iPad
Náttúran.is vonar að Endurvinnslukortið verði gagnlegt verkfæri og auki meðvitund um endurvinnslu og förgun úrgangs.
nánar
Einar Bergmundur / Guðrún Arndís Tryggvadóttir
21. apríl 2013 13:30
Uppruni:
Tökum höndum saman og stundum vistvæn innkaup!
Vistvæn innkaup snúast um að velja þá vöru sem er síður skaðleg umhverfinu og heilsu manna samanborið við aðrar vörur sem uppfylla sömu þörf og samtímis bera sama eða lægri líftímakostnað.
Til þess að auðvelda innkaup á vörum og þjónustu sem eru síður skaðleg umhverfi og heilsu hefur Náttúran.is tekið saman 11 viðmið sem spanna veigamestu þættina. Viðmiðin eru einföld og hjálpa til að nálgast markmiðið, það er að velja bestu vöruna út frá sjónarmiði heilsu, umhverfis og jafnvel félagslegum aðstæðum sem í daglegu tali eru nefnd sjálfbær þróun.
Hér í láréttu röðinni sérð þú táknmyndir fyrir viðmiðin og í lóðrettu röðinni táknmyndir ýmissa vörutegunda. Ef þú opnar flipann „Viðmið“ hér til hægri á síðunni og smellir á þessi tákn getur þú lesið þig til um hvert viðmið og vörutegund fyrir sig auk þess sem að auðvelt er að sjá hvaða viðmið eiga við hverja vörutegund þar sem viðeigandi viðmið eru sýnileg í láréttu línunni út frá vörunni.
Viðmiðin eru: Orka, eldsneyti, vatnsnotkun, ofnæmi, hættuleg efni / tilbúin efni, þungmálmar, öryggisblað, umhverfismerkingar, sanngirnisvottun, vinnuumhverfi og endurvinnsla.
Eitt eða fleiri af þessum viðmiðum eiga að meira eða minna leiti við um hverja einustu vöru. Um leið og við gerum okkur grein fyrir því eftir hverju þarf að leita til að velja vistvænstu vöruna verða vistvæn innkaup leikur einn.
En eins og með allt annað þá skapar æfingin meistarann. Jörðin okkar þolir ekki lengur þá rányrkju og vanvirðingu sem henni er sýnd í dag.
Tökum höndum saman og stundum vistvæn innkaup!
þessi grein er lengri, lesa meira...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
18. apríl 2013 14:16
Uppruni: Náttúran.is
Græn kort Náttúrunnar
Grænt Íslandskort er samvinnuverkefni Náttúran.is, fjölþjóðlega verkefnisins Green Map® System og Land- og ferðamálafræðistofu Háskóla Íslands. Græna Íslandskortið, Græna Reykjavíkurkortið og Lífræna Íslandskortið byggja á flokkunarkerfi Green Map og gagnagrunni Grænna síðna Náttúrunnar sem er árangur 8 ára rannsóknarvinnu á vistvænum kostum í viðskiptum og ferðamennsku á Íslandi.
Kortið birtist á íslensku á Natturan.is, ensku á Nature.is og á þýsku á Natur.is, í samhengi við það gríðarlega magn af umhverfisupplýsingum og vottunartengingum sem fyrir hendi eru á vefnum. Við gáfum út Grænt Reykjavíkurkort í prentútgáfu haustið 2010 og aftur sumarið 2011. Haustið 2012 gáfum við út Lífrænt Íslandskort í prentútgáfu og í ár kemur Grænt Íslandskort út í formi smáforrits (apps) fyrir snjallsíma og spjaldtölvur.
Öllum er frjálst að fá skráningu svo framarlega sem að starfsemin byggist á viðurkenndum vottunum eða aðferðafræði enda ekki ætlunin að grænþvo neinn sem ekki uppfyllir þau skilyrði sem sett eru við kortagerðina.
Tilgangur grænna korta er að gefa yfirsýn yfir þá fjölmörgu umhverfisvænu kosti sem fyrir eru í landinu og hvetja fjólk til að nýta sér þá og styðja frekar þau fyrirtæki sem vinna á umhverfismeðvitaðan hátt.
Þeir sem vilja sækja um skráningu á Græna kortið skrifi okkur á nature@nature.is. Grunnskráning er ókeypis!
Skoða Græna Reykjavíkurkortið.
Skoða og/eða kaupa prentútgáfu Græna Reykjavíkurkortsins hér á Náttúrumarkaði.
Skoða og/eða kaupa prentútgáfu Lífræna Íslandskortsins hér á Náttúrumarkaði.
Ef þú vilt vita meira, gera athugasemdir eða taka þátt í vinnu við kortin, þá skrifaðu okkur á nature@nature.is eða hringdu í síma 483 1500.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
10. apríl 2013 12:04
Uppruni: Náttúran.is
E efna tól Náttúrunnar
Náttúran.is hóf fyrir nokkru vinnu við E efna gagnagrunn en hann hefur verið stækkaður og færður í nýjan búning í handhægt form á sérstökum vef e.natturan.is sem virkar eins og app. Þar er m.a. hægt að leita eftir þeim E aukefnum sem birtast á innihaldsmiðum umbúða, í snjallsímanum eða á spjaldtölvu í versluninni og vera þannig upplýstur um hvort að innihaldsefni eru í grænum, rauðum eða gulum flokki.


- Grænt efni sem eru almennt talin hættulaus eða jafnvel holl.
- Gult efni sem vert er að kynna sér betur og móta eigin afstöðu til.
- Rautt efni sem almennt eru talin varasöm eða jafnvel hættuleg.
Skoðanir eru skiptar um þessi efni og því er vert að hver fyrir sig afli sér upplýsinga og móti eigin skoðun á málinu. Það er fyrir öllu að vita hvað við látum ofan í okkur og smyrjum á húðina. Þú getur beitt skynsemi þinni og þekkingu til að velja frekar þau aukefni sem hafa jákvæð áhrif og þannig haft áhrif á markaðinn. Ef við neytendur stöndum saman, þá getum við breytt ansi miklu í veröldinni.
Grafík: Skjáskot af nýja tólinu á e.natturan.is.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
2. apríl 2013 15:41
Uppruni: Náttúran.is

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | maí |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | maí |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | maí |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | maí |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jún |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jún |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jún |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jún |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jún |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | júl |
sunnudagur 19. maí
00:00 - 23:59
Sáðalmanak: Ávextir
Sjá grein: Sáðalmanak fyrir maí 2013

Nýleg orð í belg
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.
Guðrún Tryggvadóttir 21. 03. 2013 08:51:
Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með ...
Daði 19. 03. 2013 17:40:
Heimildarmyndin Hvellur verður sýnd í síðast sinn í kvöld þ. 14. mars í Bíó Paradís ...
Guðrún Tryggvadóttir 14. 03. 2013 11:36:
+ Fleiri ummæli


Náttúran.is á Facebook.




