Fréttir

Fjallkonan hrópar á vægð

Kvikmynd Herdísar Þorvaldsdóttur Fjallkonan hrópar á vægð er nú sýnd í Regnhboganum. Næstu sýningar eru föstudaginn 14. sept., laugardaginn 15. sept., og sunnudaginn 16. sept. og hefst sýning myndarinnar kl. 18:00 alla dagana.

Fjallkonan hrópar á vægð hefur verið tilnefnd til Fjölmiðlaverðlauna umhverfisráðuneytsinsin í ár ásamt tveimur öðrum verkefnum en úthlutun verðlaunanna fer fram á Degi íslenskrar náttúru nú á sunnudaginn.

Í áraraðir hefur Herdís Þorvaldsdólttir kveðið sér hljóðs, á fundum, í blöðum og alls staðar sem hún hefur stigið niður fæti, og bent á það, með góðum rökum, að lausaganga búfjár sé aðal-umhverfisvandi Íslendinga.

Oftar en ekki hefur hugprútt fólk látið sem hér væri um nöldur í elliærri kerlingu að ræða og frekar þótt uppákoman fyndin en nokkuð annað. Eru náttúruverndarsinnar þar ekki undanskildir.

Herdísi er þó ekki hlátur í hug og fer gegn öllu siðprýði í baráttu sinni gegn stöðnuðum hugsunarhætti og blindni gagnvart eins augljósum vanda og lausafjárganga búfjár er í raun og veru.

Sjá myndbrot úr Fjallkonan hrópar á vægð hér.

Mynd: Nokkrar úrklippur blaðagreina Herdísar, úr myndinni.




Tengdir viðburðir


Fjallkonan hrópar á vægð sýnd í Regnboganum
14. sep. 2012 18:00
Fjallkonan hrópar á vægð sýnd í Regnboganum
15. sep. 2012 18:00
Fjallkonan hrópar á vægð sýnd í Regnboganum
16. sep. 2012 18:00
Fjallkonan hrópar á vægð í Sjónvarpinu í kvöld
14. okt. 2012 20:15

Deildu með vinum

Orð í belg

Guðrún Tryggvadóttir - föstudagur 14. september, 2012 klukkan 17:52:41

Á sunnudaginn, á Degi umhverfisins kl. 16:00 – 18:00 stendur Herdís Þorvaldsdóttir náttúruunnandi fyrir gjörningi í BíóParadís við Hverfisgötu undir yfirskriftinni „Klæðum Fjallkonuna skrúði úr íslenskri flóru“ þar sem unnið er með framtíðarsýn á náttúru landsins. Gestum og gangandi er boðið að taka þátt í að fylla kort af Íslandi með íslenskum jurtum sem eru á válista. Hver og einn getur valið sína mynd af jurt, skreytt hana og klippt út og komið henni svo fyrir hvar sem hann óskar helst á Íslandskortinu. Og smám saman með sameiginlegu átaki verður landið alsett íslenskum fallegum jurtum. Heitt kaffi og kakó á könnunni og með því í boði.

Guðrún Tryggvadóttir - sunnudagur 14. október, 2012 klukkan 20:17:45

Fjallkonan hrópar á vægð í Sjónvarpinu í kvöld!

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið - mánudagur 14. janúar, 2013 klukkan 13:58:41

Starfshópur skilar tillögum um beitarstjórnun og sjálfbæra landnýtingu: http://www.umhverfisraduneyti.is/frettir/nr/2311

3 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Flokkar:

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Dagatal: Viðburðadagatal [404]

Menning: Kvikmyndir [34]

Náttúran: Húsdýr í sveit [16]

Náttúruauðlindir: Búfé [5]

Samfélagið: Listir [54]

Umhverfið: Náttúran [233]

Umhverfið: Náttúruspjöll [170]

Umhverfisverðlaun: Fjölmiðlaverðlaun umhverfisráðuneytisins [9]

Grænar síður:

Viðburðadagatal [1]

Húsdýr í sveit [41]

Listir [67]

Náttúran [21]

Náttúruspjöll [2]

Fjölmiðlaverðlaun umhverfisráðuneytisins [1]

Nýleg orð í belg

Spergilkál
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Grænkál og hvítkál
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Spergilkál
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Grænkál og hvítkál
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
VERNDUM LÍFRÍKI MÝVATNS
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.