Fréttir

Fræðsluferð Landverndar um Vonarskarð og víðerni Vatnajökulsþjóðgarðs

Landvernd og Ferðafélag Íslands standa fyrir fræðsluferð um Vonarskarð og víðerni í Vatnajökulsþjóðgarði dagana 10.-12. ágúst (til vara: 17.-19. ágúst): föstudagur til sunnudags.

Skoðuð verða jarðhitasvæði og eldstöðvar í Vonarskarði við miðju landsins, út frá sérstöðu og náttúruverndargildi.

  • Föstudagur: Brottför frá Mörkinni 6 kl. 16. Ekið frá Reykjavík í náttstað í Nýjadal.
  • Laugardagur: Ekið að morgni dags inn á Gæsavatnaleið að Gjóstuklifi. Þaðan er gengið yfir sanda Rauðár að jarðhitasvæðinu við Laugakúlu. Farið í bað í Varmá sem rennur úr kolsýruhverum sunnan undir Kúlunni. Stærsta eldstöð landsins, Bárðarbunga, rís tilkomumikil yfir víðerninu í Vonarskarði. Litfögur líparítfjöll, Eggja og Skrauti, móbergsfjöll og grásvartir sandar einkenna landslagið. Frá hverasvæðinu er gengið meðfram Eggju og um Mjóháls tilbaka í Nýjadal. Drjúg dagleið (8-12 tímar). Mikilvægt að fólk sé vel búið og nestað.
  • Sunnudagur: Lagt verður af stað heim eftir góða hvíld. Á leiðinni til Reykjavíkur verða Kvíslaveitur skoðaðar og ef til vill litið inn í Veiðivötn. Heimkoma áætluð um kl. 19.

Leiðsögumaður verður Kristján Jónasson, jarðfræðingur.

Skráning í ferðirnar er hjá FÍ í síma 568 2533 eða með því að senda tölvupóst á fi@fi.is.




Tengdir viðburðir


Fræðsluferð um Vonarskarð og víðerni Vatnajökuls

10. ágú. 2012 16:00



Deildu með vinum

0 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Flokkar:

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Ferðaþjónusta: Fræðsluferðir [12]

Ferðaþjónusta: Náttúruskoðun [20]

Félög og samtök: Leiðandi umhverfissamtök [94]

Félög og samtök: Náttúruvernd [480]

Landið: Ferðalög [46]

Landið: Útivera [85]

Samfélagið: Félög og samtök [438]

Útivera: Náttúruganga [21]

Grænar síður:

Fræðsluferðir [5]

Náttúruskoðun [20]

Leiðandi umhverfissamtök [2]

Náttúruvernd [40]

Ferðalög [9]

Útivera [25]

Félög og samtök [83]

Náttúruganga [4]

Nýleg orð í belg

Eldhúsgarðurinn - einföld leið til að gera sér gróðurreit hvar sem er
Hæ, þeir eru 2 metrar, fást í 4 metrum í byggingarvöruverslunum og þeir saga þá ...
Guðrún Tryggvadóttir 17. 06. 2013 13:41:
Eldhúsgarðurinn - einföld leið til að gera sér gróðurreit hvar sem er
hæ elsku Gunna mín. Ég finn ekki á vefnum hvað þið hafið bogana langa. ER ...
kristbjörg 17. 06. 2013 12:57:
Umhverfisráðherra telur umhverfisráðuneytið geta verið ónauðsynlegt
http://sigurduringi.is/umhverfis-og-audlindaraduneytid/
Sigurður Ingi Jóhannsson 11. 06. 2013 21:51:
Umhverfisráðherra telur umhverfisráðuneytið geta verið ónauðsynlegt
http://vefir.pressan.is/ordid/2013/06/09/sigurdur-yfirlysingagladi/
af Pressunni 11. 06. 2013 21:46:
Hunang og kanell
Við getum ekki svarað því hvaða magn er ráðlegt enda greinin aðeins þýdd af okkur. ...
Guðrún Tryggvadóttir 31. 05. 2013 11:32:
Hunang og kanell
Ótrúlegt og svolítið eins og þetta sé þýtt á google translate. Yfirlýsingarnar hér eru svo ...
hh 31. 05. 2013 09:02:
Göngum gegn Monsanto
Göngum gegn Monsanto á laugardaginn kl. 17:00 http://www.facebook.com/events/371999209586441/?notif_t=plan_user_invited
Guðrún Tryggvadóttir 23. 05. 2013 21:16:
Spergilkál
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Grænkál og hvítkál
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.