Fréttir

Mistekist að hefta brennisteinsmengun vegna jarðvarmavirkjana

Nú er ljóst að Orkuveita Reykjavíkur ræður ekki við brennisteinsmengun á Hellisheiði. Á ársfundi fyrirtækisins kom fram að brennisteinsmengun mun ekki standast heilsuverndarmörk árið 2014 við óbreyttar aðstæður og verða yfir þeim mörkum sem stjórnvöld hafa sett til að verja heilsu almennings, en brennisteinsvetni veldur sjúkdómum í öndunarfærum. Undirrituð náttúruverndarsamtök krefjast þess að fundin verði ásættanleg lausn á málinu.

Eftir að nýting jarðhita var aukin á Hellisheiðarsvæðinu fyrir fáum árum hefur mælst mun meiri styrkur brennisteinsvetnis á höfuðborgarsvæðinu og í sveitarfélögum í nágrenni virkjunarinnar. Brennisteinsvetni getur haft áhrif á heilsu fólks, gróður og mannvirki. Höfuðverkur og ógleði eru fylgifiskar brennisteinsmengunar og í miklu magni eru áhrifin mjög hættuleg. Minna er vitað um langtímaáhrif viðvarandi mengunar á heilsu fólks, en vísbendingar gefa til kynna að brennisteinsvetni geti valdið umtalsverðu heilsutjóni. Nýlegar rannsóknir hérlendis gefa vísbendingu um að brennisteinsmengun hafi neikvæð áhrif á heilsu fólks, en í rannsókninni er sýnt fram á tengsl milli aukinnar brennisteinsmengunar og aukinnar sölu á astmalyfjum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta þarf að rannsaka frekar.

Í ljósi upplýsinga frá OR er einsýnt að ekki er verjandi að reisa fleiri jarðvarmavirkjanir á svæðinu. Jarðvarmavinnsla til raforkuframleiðslu á Íslandi er ekki sjálfbær á meðan vinnslan er jafn ágeng og raun ber vitni. Þá fylgir jarðvarmavirkjunum mikið rask á yfirborði og lausnir hafa ekki verið fundnar á því hvernig megi halda brennisteinsmengun í lágmarki og hvað eigi að gera við affallsvatnið. Auk þessa er nýtingin einungis 12-15% þegar um rafmagnsframleiðslu er að ræða sem verður að teljast sóun á auðlindum þjóðarinnar.

Það hníga því öll rök að því að fresta allri frekari jarðvarmavinnslu til raforkuframleiðslu á svæðinu á meðan ekki hefur fundist lausn á þeim mengunarvandamálum sem fylgja virkjununum. Með tilliti til nýrra jarðvarmavirkjana á svæðinu er ábyrgð kjörinna sveitarstjórnarfulltrúa og þingmanna sem nú fjalla um rammaáætlun afar mikil. Undirrituð náttúruverndarsamtök krefjast þess að náttúran og heilsa fólks fái notið vafans og hugmyndir um frekari virkjanir á svæðinu verði settar á ís.

Ljósmynd: Borholustrókur á Hellisheiði, Guðrún A. Tryggvadóttir.





Deildu með vinum

Orð í belg

Smugan - laugardagur 23. júní, 2012 klukkan 13:01:30

Grafalvarlegt að heilu sveitarfélögin séu á þynningarsvæði virkjana: http://smugan.is/2012/06/grafalvarlegt-ad-heilu-sveitarfelogin-seu-a-thynningarsvaedi-virkjana/

Ellert Grétarsson - þriðjudagur 26. júní, 2012 klukkan 10:47:20

Tilraunadýr í lýðheilsutilraun OR: http://blogg.smugan.is/elgurinn/2012/06/26/tilraunadyr-i-lydheilsutilraun-or/

2 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Flokkar:

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Félög og samtök: Leiðandi umhverfissamtök [94]

Félög og samtök: Náttúruvernd [480]

Landið: Suðurland [209]

Landið: Vesturland [39]

Mengun: Brennisteinn [26]

Orka: Jarðhiti [38]

Samfélagið: Félög og samtök [438]

Samfélagið: Umhverfismál [1282]

Tækni: Orka og eldsneyti [212]

Umhverfið: Mengun [239]

Umhverfið: Orka [255]

Öryggi og vá: Orka [8]

Grænar síður:

Leiðandi umhverfissamtök [2]

Náttúruvernd [40]

Suðurland [44]

Vesturland [7]

Jarðhiti [4]

Félög og samtök [83]

Umhverfismál [41]

Orka og eldsneyti [43]

Mengun [3]

Orka [75]

Nýleg orð í belg

Eldhúsgarðurinn - einföld leið til að gera sér gróðurreit hvar sem er
Hæ, þeir eru 2 metrar, fást í 4 metrum í byggingarvöruverslunum og þeir saga þá ...
Guðrún Tryggvadóttir 17. 06. 2013 13:41:
Eldhúsgarðurinn - einföld leið til að gera sér gróðurreit hvar sem er
hæ elsku Gunna mín. Ég finn ekki á vefnum hvað þið hafið bogana langa. ER ...
kristbjörg 17. 06. 2013 12:57:
Umhverfisráðherra telur umhverfisráðuneytið geta verið ónauðsynlegt
http://sigurduringi.is/umhverfis-og-audlindaraduneytid/
Sigurður Ingi Jóhannsson 11. 06. 2013 21:51:
Umhverfisráðherra telur umhverfisráðuneytið geta verið ónauðsynlegt
http://vefir.pressan.is/ordid/2013/06/09/sigurdur-yfirlysingagladi/
af Pressunni 11. 06. 2013 21:46:
Hunang og kanell
Við getum ekki svarað því hvaða magn er ráðlegt enda greinin aðeins þýdd af okkur. ...
Guðrún Tryggvadóttir 31. 05. 2013 11:32:
Hunang og kanell
Ótrúlegt og svolítið eins og þetta sé þýtt á google translate. Yfirlýsingarnar hér eru svo ...
hh 31. 05. 2013 09:02:
Göngum gegn Monsanto
Göngum gegn Monsanto á laugardaginn kl. 17:00 http://www.facebook.com/events/371999209586441/?notif_t=plan_user_invited
Guðrún Tryggvadóttir 23. 05. 2013 21:16:
Spergilkál
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Grænkál og hvítkál
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.