Fréttir

Þriðjudagsganga í Viðey

Þriðjudaginn 12. júní verður boðið upp á göngu með leiðsögn í Viðey. Þessi önnur ganga sumarsins er helguð fuglalífinu í Viðey, en það stendur í miklum blóma í júní og ungar farnir að skríða úr eggjum. Yfir 30 tegundir fugla verpa í Viðey og því margt spennandi að sjá fyrir áhugasama fuglaskoðara. Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur og ljósmyndari fer fyrir göngunni en hann hefur gefið út afar fallegar og fræðandi bækur um fugla Íslands. Kærkomið tækifæri til að njóta hressandi útiveru, fuglalífs og fallegrar náttúru í túnfæti borgarinnar.

Í sumar eru aukaferðir á þriðjudagskvöldum til Viðeyjar frá Skarfabakka  kl. 18:15 og 19:15.  Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið þessi kvöld og upplagt að njóta kvöldverðar í eynni áður en leiðsögn byrjar. Gangan með Jóhanni Óla hefst kl. 19:30 við Viðeyjarstofu og tekur eina og hálfa til tvær klukkustundir.

Að göngu lokinni er hægt að tylla sér niður í Viðeyjarstofu og fá sér hressingu áður en haldið er heim á leið en seinasta ferjan fer úr eynni kl. 22:00. Gjald í ferjuna fram og til baka er kr.1000 fyrir fullorðna og kr.500 fyrir börn 7-15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Við minnum á að handahafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu. Leiðsögnin er ókeypis og öllum opin.

Ljósmyndir: Guðlaugur Ottesen Karlsson.




Tengdir viðburðir


Þriðjudagsganga í Viðey
12. jún. 2012 18:15


Deildu með vinum

0 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Flokkar:

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Ferðaþjónusta: Fuglaskoðun [40]

Ferðaþjónusta: Náttúruskoðun [20]

Landið: Útivera [83]

Náttúruauðlindir: Fuglar [48]

Náttúrufræði: Fuglar [49]

Samfélagið: Fjölskyldan [147]

Viðburðir: Útivera [73]

Grænar síður:

Fuglaskoðun [14]

Náttúruskoðun [20]

Útivera [25]

Fuglar [1]

Fuglar [2]

Fjölskyldan [1]

Útivera [3]

Nýleg orð í belg

18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
VERNDUM LÍFRÍKI MÝVATNS
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
Bláa tunnan
Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.
Guðrún Tryggvadóttir 21. 03. 2013 08:51:
Bláa tunnan
Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með ...
Daði 19. 03. 2013 17:40:
Heimildarmyndin Hvellur frumsýnd
Heimildarmyndin Hvellur verður sýnd í síðast sinn í kvöld þ. 14. mars í Bíó Paradís ...
Guðrún Tryggvadóttir 14. 03. 2013 11:36:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.