Fréttir

Ergo býður umhverfisstyrki

Ergo auglýsir styrki til frumkvöðlaverkefna á sviði umferðar- og umhverfismála til umsóknar

Í frétt á vef Ergo segir: Eitt af markmiðum fyrirtækisins hefur verið að stuðla að fjölgun umhverfishæfari bíla á Íslandi. Liður í því hefur meðal annars verið að bjóða viðskiptavinum upp á græn bílalán á hagstæðum kjörum sem eru sérstaklega sniðin að umhverfishæfum bílum.

Til að fylgja eftir grænni stefnu Ergo og sýna enn frekari stuðning við Grænan apríl hefur Ergo nú ákveðið að veita 1.000.000 króna í styrki til grænna verkefna. Veittir verða tveir styrkir að fjárhæð 500.000 krónur hver til að styrkja frumkvöðlaverkefni á sviði umferðar- og umhverfismála.

Einstaklingar og fyrirtæki geta sótt um styrkina. Viðskiptaáætlun þarf að fylgja umsókninni ásamt skýringu á því til hvers nýta skal styrkinn. Tímafrestur til að senda inn umsókn er til 11. maí 2012 en styrkjum vegna ársins 2012 verður úthlutað þann 31. maí. Öllum umsóknum verður svarað. Guðrún Bergmann, einn af frumkvöðlum verkefnisins Grænn apríl mun koma að úthlutun styrkjanna ásamt fulltrúum Ergo.

Ljósmynd: Ergo Berti að spjalli við félaga á Kaffi París.





Deildu með vinum

Orð í belg

Ergo - miðvikudagur 4. júlí, 2012 klukkan 20:35:09

Úthlutað hefur verið úr umhverfisstyrk Ergo 2012. Þeir sem hlutu styrki í ár eru Radiant Games og Sæþór Ásgeirsson. Radiant Games eru að hanna og þróa tölvuleik fyrir börn sem fræðir þau um endurnýtanlega orku. Sæþór Ásgeirsson hefur verið að þróa vindmyllur fyrir Íslenskar aðstæður.

Ergo óskar þeim til hamingju með styrkinn og vonar að hann nýtist þeim vel til að halda nýsköpun sinni áfram

1 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Flokkar:

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Samfélagið: FyrirtækI [40]

Samfélagið: Umhverfismál [1272]

Nýleg orð í belg

Göngum gegn Monsanto
Göngum gegn Monsanto á laugardaginn kl. 17:00 http://www.facebook.com/events/371999209586441/?notif_t=plan_user_invited
Guðrún Tryggvadóttir 23. 05. 2013 21:16:
Spergilkál
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Grænkál og hvítkál
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Spergilkál
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Grænkál og hvítkál
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.