Fréttir

Brennisteinsvetni í Hveragerði mælist yfir mörkum WHO

Hæstu toppar brennisteinsvetnismengunar í Hveragerði fara yfir heilsuverndarviðmið Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), en sólarhringsmeðaltal er töluvert undir þeim viðmiðum. Þetta kemur fram í mælingum Umhverfisstofnunar. Engin viðmið eru til hér á landi um þessa mengun, en þau eru í vinnslu í umhverfisráðuneytinu.

Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá stofnuninni, segir tilgangslaust að horfa til vinnuverndarmarka í þessu sjónarmiði, en Orkuveita Reykjavíkur miðar við þau í frétt á heimasíðu sinni sem rataði í fjölmiðla um helgina. "Vinnuverndarmörkin eiga ekkert erindi í þessa umræðu," segir Þorsteinn.

Ástæðan sé sú að vinnuverndarmörk verndi ekki heilsu þeirra sem eru viðkvæmir fyrir og gilda aðeins á vinnustöðum. Þau miði jafnvel við að grípa þurfi til ryk- og gasgríma og séu oft 100 sinnum hærri en þau sem gildi fyrir almenning.

Þorsteinn segir brennisteinsvetnismengun í Reykjavík hafa aukist með tilkomu virkjana Orkuveitunnar á Hellisheiði. Fólk, sérstaklega í austurborginni, geti fundið fyrir ógleði og höfuðverkjum vegna hennar, sérstaklega í froststillum. Mælingar í Hveragerði eru ný hafnar og því ekki til samanburðartölur yfir vetrartímann.

Ljósmynd: Blásandi borhola í Hverahlíð, Guðrún Tryggvadóttir.





Deildu með vinum

Orð í belg

Guðrún Tryggavdóttir - fimmtudagur 19. nóvember, 2009 klukkan 13:06:32

Til glöggvunar vísa ég í þær upplýsingar um rannsóknir á áhrifum brennisteinsvetnis á heilsu manna sem koma fram í vandaðri skýrslu þeirra Ingibjargar Elsu Björnsdóttur og Björns Pálssonar: http://www.natturan.is/greinar/5266/ sem lögð var fram sem athugsemd við auglýstar breytingar á aðalskipulagi Ölfuss 1002-2014 í september sl.

Guðrún Tryggvadóttir - fimmtudagur 21. júní, 2012 klukkan 07:58:47

Vil minna á að málið er ekki nýtt af nálinni. Sjá líka grein í DV í gær: „Við getum ekki samþykkt það að Orkuveitunni verði gefin heimild til að halda áfram að menga andrúmsloftið,“ segir Hallgrímur Þ. Magnússon

2 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Flokkar:

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Mengun: Brennisteinn [26]

Mengun: Loftmengun [50]

Samfélagið: Umhverfismál [1269]

Umhverfið: Mengun [239]

Nýleg orð í belg

18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
VERNDUM LÍFRÍKI MÝVATNS
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
Bláa tunnan
Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.
Guðrún Tryggvadóttir 21. 03. 2013 08:51:
Bláa tunnan
Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með ...
Daði 19. 03. 2013 17:40:
Heimildarmyndin Hvellur frumsýnd
Heimildarmyndin Hvellur verður sýnd í síðast sinn í kvöld þ. 14. mars í Bíó Paradís ...
Guðrún Tryggvadóttir 14. 03. 2013 11:36:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.