Fréttir

Bláa tunnan

Hvað má fara í tunnuna?
Í bláu tunnuna má setja öll dagblöð, tímarit, markpóst og annan prentpappír auk þess má setja fernur, umbúðapappír, sléttan pappa og karton frá og með 1. febrúar 2009. Bláu tunnurnar eru sömu stærðar og svörtu og grænu heimilistunnurnar.

Hvað kostar bláa tunna?
Verð fyrir bláu tunnuna er 7.400 kr. á ári. Tunnan er eign borgarinnar og leiguverð innifalið í árlegu sorphirðugjaldi fyrir tunnuna.

Hvernig er losun háttað?
Bláu tunnurnar eru losaðar á þriggja vikna fresti. Þar sem mikill markpóstur er í umferð um jól og áramót er aukalosun í desember og heildarfjöldi losanna á ári því 18. Tunnurnar eru sóttar inná lóðir íbúa við losun líkt og svörtu og grænu heimilistunnurnar. Ef tunnan er höfð í læstri sorpgeymslu þarf að koma lykli að geymslunni til Umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar sem kemur honum áfram til losunaraðila.

Panta bláu tunnuna: sorphirda@reykjavik.is.





Deildu með vinum

Orð í belg

Sigrún - þriðjudagur 22. júlí, 2008 klukkan 20:01:36

Hvaða blá tunna?
Við í stóru fjölbýlishúsunum er ekki boðið uppá neitt. Svo að mestu leiti fara dagblóð og fernur í sorplúgurnar.
Ætlar borgin ekki að hafa einver úrræði fyrir þessi hús. Sem voru byggð fyrir um 40 árum, og þá óraði engan fyrir að sorp yrði verðmætt. Eða að þetta mikið af ruslpósti kæmi inná hvert heimili. Og ekki heldur allar fernurnar og plastumbúðirnar.

Guðrún Tryggvadóttir - þriðjudagur 22. júlí, 2008 klukkan 20:24:00

Sæl Sigrún, ég sendi fyrirspurna á sorphirda@sorphirda.is til að fá úr því skorið hvort að fjölbýishúsum standi bláa tunnan til boða eða ekki. Mun setja svarið hér inn þegar það berst!

Sorphirðan - Reykjavíkurborg - Blá tunna - miðvikudagur 23. júlí, 2008 klukkan 06:47:23

Sæl Sigrún, Íbúum borgarinnar í fjölbýlishúsum stendur bláa tunnan til boða eins og öðrum. Hægt er að panta bláu tunnuna í síma 411 8500 eða með tölvupósti á sorphirda@reykjavik.is. Til að panta tunnuna fyrir fjöleignarhús þarf samþykki íbúa hússins þar sem gjöldin af tunnunni skiptast á allar íbúðirhlutfallslega.Sjá nánar hér: http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/tabid-1000/1502_read-6740
Með kveðju,
Sigríður Ólafsdóttir, rekstrarstjóri sorphirðu Reykjavíkurborgar

Kári - föstudagur 22. júní, 2012 klukkan 00:55:19

Má setja nýju 1l mjólkurfernurnar með plasttappanum í bláu tunnuna?

Guðrún Tryggvadóttir - föstudagur 22. júní, 2012 klukkan 10:52:48

Anna - föstudagur 6. júlí, 2012 klukkan 09:38:40

Í húsinu okkar eru 3 íbúðir og ein blá tunna sem allir greiða af. Risið ber út dagblöð og setur alltaf afgangsblöðin í tunnuna þannig að hún er alltaf full. Er hægt að fá aðra tunnu og láta þau greiða sérstaklega fyrir hana? þ.e. ekki deila niður á allt húsið?

Guðrún Tryggvadóttir - föstudagur 6. júlí, 2012 klukkan 10:43:05

Sæl Anna. Náttúran getur því miður ekki svarað þessu. Hafðu samband við þjónustuaðilann þ.e. Reykjavíkurborg ef þú ert í Reykjavík, annars við viðkomandi sveitarfélag.

Daði - þriðjudagur 19. mars, 2013 klukkan 17:40:38

Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með stóra lokinu og á hjólum ? 3 bláar tunnur er of lítið fyrir 36 íbúðir.

Guðrún Tryggvadóttir - fimmtudagur 21. mars, 2013 klukkan 08:51:58

Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.

9 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Flokkar:

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Endurvinnsla : Bylgjupappi [28]

Endurvinnsla : Dagblöð/tímarit [58]

Endurvinnsla : Fernur [34]

Endurvinnsla : Sléttur pappi [32]

Endurvinnsla : Þjónusta [64]

Garðurinn: Endurvinnsla [93]

Húsráð: Úrgangur-Endurvinnsla [57]

Umhverfið: Innkaup og förgun [214]

Grænar síður:

Bylgjupappi [8]

Dagblöð/tímarit [7]

Fernur [7]

Sléttur pappi [6]

Þjónusta [26]

Endurvinnsla [8]

Innkaup og förgun [2]

Nýleg orð í belg

18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
VERNDUM LÍFRÍKI MÝVATNS
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
Bláa tunnan
Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.
Guðrún Tryggvadóttir 21. 03. 2013 08:51:
Bláa tunnan
Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með ...
Daði 19. 03. 2013 17:40:
Heimildarmyndin Hvellur frumsýnd
Heimildarmyndin Hvellur verður sýnd í síðast sinn í kvöld þ. 14. mars í Bíó Paradís ...
Guðrún Tryggvadóttir 14. 03. 2013 11:36:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.