Fréttir

Málning Hreyfilhitari Hjólbarðar Hjólbarðar Bíll reið Vatnsnotkun Hjólbarðar Hiti Rafmagn Eldsneyti Hreinsiefni Verkfæri Eiturefni Lýsing Ferðalög Geymsla
Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar

Bílskúrinn - Orka og eldsneyti

Bensín og dísel úr jarðolíu eru algengustu orkugjafarnir fyrir farartæki en það er mikilvægt að þróa betri tækni og finna nýja orkugjafa til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af völdum þessara orkugjafa. Almenningur og löggjafinn vilja sjá sparneytna, hagkvæma og mengunarlitla bíla en er það framkvæmanlegt og hvaða möguleikar eru í stöðunni?
Fljótvirkasta aðgerðin til að draga úr bensín og dísel eyðslu er að minnka óþarfa notkun og hvetja til þess að keypt séu sparneytnari tæki. Þetta þekkja bíleigendur mætavel því vörugjöld á bíla fara eftir koltvísýringslosun til að hvetja nýja kaupendur að velja litla sparneytna bíla. Eldsneytisverð er síðan skattlagt mikið eins og allir þekkja til að draga úr notkun. Þetta er ein aðferðin, að draga saman seglin. Önnur aðgerð og stórtækari er að reyna að nota aðra orkugjafa.

Orkuskipti
Að skipta um orku í samgöngum er risavaxin aðgerð og fyrir utan framleiðslu og dreifingu á nýrri orku þarf að skoða aðlögun að þeim vélum sem til eru fyrir. Best er ef ný orkutegund gengur án mikilla vandkvæða á eldri farartæki. Það gengur aldrei áreynslulaust en þær eldsneytistegundir sem eru hvað skástar í þessu samhengi eru t.d. lífdísel og etanól. Núverandi vélar eru þróaðar fyrir það eldsneyti sem þeim er ætlað að brenna til að hámarka nýtni og endingu. Því koma alltaf upp margvísleg vandamál þegar annað eldsneyti er notað en til er ætlast. Verra er ef nýtt eldsneyti kallar á miklar breytingar á eldri búnaði. Þar má nefna t.d. metan sem krefst plássfrekra og sterkra gaskúta með tilheyrandi kostnaði og rýrnunar á notagildi bílsins. Metanið er kannski betri valkostur fyrir nýjar gerðir bifreiða því þá má hanna yfirbyggingu bílsins strax frá upphafi með tilliti til gaskútanna. Erfiðasti valkosturinn er ef skipta ætti yfir í nýja orku með algerlega nýjum vélargerðum. Hér mætti nefna vetnisrafbíla. Slík aðgerð væri mjög dýrt dæmi sem myndi kosta breytingar á innviðum þjóðfélagsins og tæki mörg ár að framkvæma.

Þegar rætt eru um orkuskipti í samgöngum á Íslandi þá hugsa kannski flestir um eldsneytið á einkabílinn. Hlutfall einkabílsins af eldsneytisnotkuninni er samt frekar lítið borið saman við skip og flugvélar. Dísel og flotaolía er notuð á skipaflotann, vinnuvélar, sendi- og vörubílar, rútur og strætisvagna. Þessi tæki eru í notkun allan daginn, knúin áfram af stórum vélum og eyða miklu eldsneyti. Togari eyðir kannski tonni af díselolíu á klukkustund og stór vinnuvél fer léttilega með 200 lítra yfir daginn borið saman við fólksbíl sem eyðir kannski 100 lítrum á mánuði. Ekki má heldur gleyma flugvélaflotanum en millilandaþota fer með mörg tonn af eldsneyti í hverri ferð. Orkuskipti í samgöngum verður því að horfa til allra þátta.

Sjá nánari umfjöllun í greininni „Orkusparnaður í samgöngum, hvað ber framtíðin í skauti sér“.





Deildu með vinum

Orð í belg

Jóhann - laugardagur 16. júní, 2012 klukkan 10:25:26

Dísilbifreiðar bannaðar í Osló: http://www.ruv.is/frett/disilbilar-bannadir-i-oslo

1 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Flokkar:

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Bílskúrinn: Áhöld [17]

Bílskúrinn: Farartæki [96]

Bílskúrinn: Ferðalög [28]

Bílskúrinn: Hiti [15]

Bílskúrinn: Hjólbarðar [28]

Bílskúrinn: Hreinlætisvörur [21]

Bílskúrinn: Raftæki [36]

Bílskúrinn: Reiðhjól [51]

Bílskúrinn: Hreyfilhitari [15]

Húsið: Bílskúrinn [30]

Húsráð: Bílskúrinn [36]

Orka: Bíódísel [22]

Orka: Endurnýjanleg [62]

Orka: Etanól [14]

Orka: Jarðefnaeldsneyti [15]

Orka: Lífdísel [12]

Orka: Metan [42]

Orka: Rafhlöður [16]

Orka: Rafmagn [77]

Orka: Vetni [26]

Tækni: Orka og eldsneyti [212]

Umhverfið: Eldsneyti [45]

Umhverfið: Orka [255]

Vistvænt: Eldsneyti [42]

Grænar síður:

Farartæki [5]

Ferðalög [2]

Hjólbarðar [1]

Hreinlætisvörur [4]

Raftæki [2]

Reiðhjól [5]

Bílskúrinn [2]

Bíódísel [11]

Endurnýjanleg [63]

Etanól [1]

Jarðefnaeldsneyti [3]

Lífdísel [5]

Metan [12]

Rafhlöður [4]

Rafmagn [58]

Vetni [5]

Orka og eldsneyti [43]

Eldsneyti [17]

Orka [75]

Eldsneyti [24]

Nýleg orð í belg

Eldhúsgarðurinn - einföld leið til að gera sér gróðurreit hvar sem er
Hæ, þeir eru 2 metrar, fást í 4 metrum í byggingarvöruverslunum og þeir saga þá ...
Guðrún Tryggvadóttir 17. 06. 2013 13:41:
Eldhúsgarðurinn - einföld leið til að gera sér gróðurreit hvar sem er
hæ elsku Gunna mín. Ég finn ekki á vefnum hvað þið hafið bogana langa. ER ...
kristbjörg 17. 06. 2013 12:57:
Umhverfisráðherra telur umhverfisráðuneytið geta verið ónauðsynlegt
http://sigurduringi.is/umhverfis-og-audlindaraduneytid/
Sigurður Ingi Jóhannsson 11. 06. 2013 21:51:
Umhverfisráðherra telur umhverfisráðuneytið geta verið ónauðsynlegt
http://vefir.pressan.is/ordid/2013/06/09/sigurdur-yfirlysingagladi/
af Pressunni 11. 06. 2013 21:46:
Hunang og kanell
Við getum ekki svarað því hvaða magn er ráðlegt enda greinin aðeins þýdd af okkur. ...
Guðrún Tryggvadóttir 31. 05. 2013 11:32:
Hunang og kanell
Ótrúlegt og svolítið eins og þetta sé þýtt á google translate. Yfirlýsingarnar hér eru svo ...
hh 31. 05. 2013 09:02:
Göngum gegn Monsanto
Göngum gegn Monsanto á laugardaginn kl. 17:00 http://www.facebook.com/events/371999209586441/?notif_t=plan_user_invited
Guðrún Tryggvadóttir 23. 05. 2013 21:16:
Spergilkál
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Grænkál og hvítkál
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.