Fréttir

Ætihvannarhóstatöflur

Nú er rétti tíminn til að skera hvönn og margt gott hægt að gera úr stönglum ætihvannarinnar [Angelica archangelica]. Seinna í sumar er síðan hægt að safna fræjum, þurrka og nota í brauð. Einn af eiginleikum ætihvannarinnar er að vinna gegn öndunarerfiðleikum og hósta og því tilvalið að nota þessa frábæru jurt til að útbúa hóstastillandi hálstöflur eða dropa.

 

 

Einfalt og skemmtilegt er að gera hvannarhóstatöflurnar. Maður tekur hvannarstöngul og sker langsum, treður í glerkrukku og hellir flórsykri yfir, eins mikið og hægt er að troða í krukkuna.

 

 

 

 

 

 

Látið liggja í 2-14 daga. Hristið krukkuna af og til. Flórsykurinn sýgur vökvann smám saman úr hvannarstönglunum. Stönglarnir eru síðan teknir upp úr krukkunni, vökvinn þykktur með aðeins meiri flórsykri og látið dropa eða sprautað með kúasprautu á smjörpappír. Látið þorna í 1-2 daga. Þá eru droparnir losaðir af smjörpappírnum og settir í ílát. Geymist þannig vel allan veturinn.

Uppskrift: Dr. Christian Osika.

Myndirnar sýna hvannardropagerð. Á efstu myndinni eru stönglarnir settir í krukku og flórsykri hellt yfir, hrista verður niður í krukkunni nokkrum sinnum til að geta fyllt hana alveg. Á myndinni t.v. er verið að toga stönglana upp úr krukkunni. Myndin t.h. er af Daníel Tryggva 5 ára að sprauta hvannardropum á smjörpappír.
Ljósmyndir: Guðrún Tryggvadóttir ©Náttúran.is


 

 




Deildu með vinum

Orð í belg

Guðrún Tryggvadóttir - mánudagur 30. júlí, 2012 klukkan 20:22:11

Já það er í lagi að stönglarnir séu svolítið trénaðir en ég mæli með að þú prófir þetta því þetta eru æðislegir hóstadropar að eiga til á veturna. Og já fræin eru að verða tilbúin víðast hvar og þau eru frábær í brauð. Bara passa að nota þau sparlega því þau eru mjög bragðsterk.

1 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Flokkar:

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Grasagudda: Í pottinum [118]

Grasagudda: Jurtalyf [14]

Grasagudda: Lækningajurtir [179]

Heilsan: Uppskriftir [62]

Nýleg orð í belg

Eldhúsgarðurinn - einföld leið til að gera sér gróðurreit hvar sem er
Hæ, þeir eru 2 metrar, fást í 4 metrum í byggingarvöruverslunum og þeir saga þá ...
Guðrún Tryggvadóttir 17. 06. 2013 13:41:
Eldhúsgarðurinn - einföld leið til að gera sér gróðurreit hvar sem er
hæ elsku Gunna mín. Ég finn ekki á vefnum hvað þið hafið bogana langa. ER ...
kristbjörg 17. 06. 2013 12:57:
Umhverfisráðherra telur umhverfisráðuneytið geta verið ónauðsynlegt
http://sigurduringi.is/umhverfis-og-audlindaraduneytid/
Sigurður Ingi Jóhannsson 11. 06. 2013 21:51:
Umhverfisráðherra telur umhverfisráðuneytið geta verið ónauðsynlegt
http://vefir.pressan.is/ordid/2013/06/09/sigurdur-yfirlysingagladi/
af Pressunni 11. 06. 2013 21:46:
Hunang og kanell
Við getum ekki svarað því hvaða magn er ráðlegt enda greinin aðeins þýdd af okkur. ...
Guðrún Tryggvadóttir 31. 05. 2013 11:32:
Hunang og kanell
Ótrúlegt og svolítið eins og þetta sé þýtt á google translate. Yfirlýsingarnar hér eru svo ...
hh 31. 05. 2013 09:02:
Göngum gegn Monsanto
Göngum gegn Monsanto á laugardaginn kl. 17:00 http://www.facebook.com/events/371999209586441/?notif_t=plan_user_invited
Guðrún Tryggvadóttir 23. 05. 2013 21:16:
Spergilkál
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Grænkál og hvítkál
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.