:

Degi umhverfisins fagnað 25. apríl

Dagur umhverfisins verður haldinn hátíðlegur á morgun þann 25. apríl. Að þessu sinni ber daginn upp á 250 ára fæðingarafmæli náttúrufræðingsins og læknisins Sveins Pálssonar sem dagurinn er tileinkaður og bera hátíðarhöldin þeirra tímamóta nokkur merki.

Dagskráin hefst í raun daginn á undan, þ.e. þriðjudaginn 24. apríl, með málþingi um Svein Pálsson þar sem fjallað verður um hann frá ólíkum verkum hans og hugðarefnum. Að málþinginu standa Læknafélag íslands, Landgræðsla ríkisins, Mýrdalshreppur og umhverfisráðuneytið.

Eins og kunnugt er var Sveinn annálaður fræðimaður, rithöfundur, læknir og ferðagarpur sem var frumkvöðull í rannsóknum á náttúru landsins og þá sérstaklega jöklunum. Hann er talinn meðal fyrstu Íslendinganna sem vöktu athygli á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar, og vegna þess var fæðingardagur hans valinn sem Dagur umhverfisins. Málþingið hefst kl. 15 í sal 132 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands og er öllum opið. Nánari upplýsingar má finna hér.

Á Degi umhverfisins, miðvikudaginn 25. apríl, verður hátíðarsamkoma umhverfisráðuneytisins í Listasafni Sigurjóns kl. 10:30 þar sem Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhendir viðurkenningar fyrir störf á sviði umhverfismála. Kuðungurinn verður veittur fyrirtæki sem hefur skarað fram úr í umhverfismálum og Varðliðar umhverfisins er viðurkenning sem veitt er grunnskólabörnum fyrir verkefni á sviði umhverfismála.

Þá verður Sveins minnst með veglegum hætti í Vík í Mýrdal, þar sem hann bjó og starfaði um áratuga skeið. Hefst dagskrá þar kl. 15, á Guðlaugsbletti, þar sem umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir mun afhjúpa minnisvarða um Svein. Að lokinni hátíðardagskrá í Félagsheimilinu Leikskálum verður farið að leiði Sveins í gamla kirkjugarðinum á Reyni en gerðar hafa verið endurbætur á legsteini Sveins auk aðkomu garðsins og nánasta umhverfi.

Ljósmynd: Á Búrfelli, ©Árni Tryggvason.


nánar

Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
24. apríl 2012 12:20
Uppruni: Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Deildu með vinum

Aðalfundur Íslandsstofu

Aðalfundur Íslandsstofu verður haldinn föstudaginn 27. apríl, kl. 11:00 - 13:00 á Grand Hótel Reykjavík.

Dagskrá

  • Setning fundar - Friðrik Pálsson, formaður stjórnar
  • Ávarp utanríkisráðherra - Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra
  • Litið yfir árið - Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri
  • Þrautseigja lítilla þjóða - David Gardner, ritstjóri alþjóðamálefna hjá Financial Times

Fundarstjóri er Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentors og fulltrúi í stjórn Íslandsstofu.

Að loknum framsöguerindum kl. 12.30 verður boðið upp á veitingar. Vinsamlega tilkynnið þátttöku með tölvupósti á islandsstofa@islandsstofa.is eða í síma 511 4000

Ljósmynd: Dettifoss, ©Árni Tryggvason.


nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
24. apríl 2012 11:03
Uppruni: Íslandsstofa
Deildu með vinum

Fræðslufundur MAST um eftirlit með lyfjanotkun í dýrum

MAST

Matvælastofnun heldur fræðslufund um eftirlit með lyfjanotkun og lyfjaleifum í dýrum fimmtudaginn 26. apríl kl.15:00 - 16:00. Á fundinum verða kynntar nýjar reglur um rafræna skráningu dýralækna á dýralyfjum. Nýja rafræna skráningarkerfið HEILSA verður jafnframt kynnt þar sem dýralæknum ber að skrá notkun og ávísun lyfseðilsskyldra lyfja í dýr. Skráningarkerfið hefur þegar tekið gildi fyrir nautgripi og hross og munu aðrar dýrategundir fylgja í kjölfarið. Tilgangur skráningarinnar er að stuðla að aukinni dýravelferð og neytendavernd með því að auðvelda yfirvöldum að hafa eftirlit með lyfjanotkun í dýrum og lyfjaleifum í búfjárafurðum.

Fyrirlesarar:

  • Auður L. Arnþórsdóttir, sóttvarnadýralæknir hjá Matvælastofnun
  • Björn Steinbjörnsson, dýralæknir lyfjamála hjá Matvælastofnun
  • Kjartan Hreinsson, dýralæknir heilbrigðiseftirlits hjá Matvælastofnun

Hægt verður að fylgjast með fræðslufundinum í beinni útsendingu á vef MAST undir Útgáfa - Fræðslufundir.

Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði MAST að norðanverðu (Grafarvogsmegin). Allir velkomnir!


nánar

Hjalti Andrason
23. apríl 2012 10:18
Uppruni: Matvælastofnun - MAST
Deildu með vinum

22. apríl er Dagur Jarðar

Í dag er „Dagur Jarðar“ haldinn hátíðlegur um allan heim en Dagur Jarðar var fyrst haldlinn hátíðlegur þ. 22. apríl 1970 í Bandaríkjunum þegar um 20 milljónir manna tóku þátt í hátíðahöldunum. Ákvörðun um að efna til Dags Jarðar var tekin árið áður á ráðstefnu grasrótarsamtaka á sviði umhverfisverndar í Bandaríkjunum. Á þeim tíma var umræðan um offjölgun í heiminum að komast í hámæli og miklar áhyggjur voru uppi um framtíð Jarðar vegna fólksfjölgunar.

En Degi Jarðar óx fiskur um hrygg er grasrótarsamtök með mismunandi umhverfisáherslur sáu mikilvægi þess að sameinast um hátíðahöld á einum degi á ári „Degi Jarðar“.

Þann 22. apríl árið 1990 voru 200 milljónir manna í 141 löndum þátttakendur í hátíðahöldum Dags Jarðar og áherslan á verndun Jarðar með aukinni endurvinnslu, baráttu gegn olíuslysum, verksmiðjumengun, afrennslisvandamálum, eyðingu búsvæða villtra dýra o.s.fr. Sjá nánar um sögu Earth Day á Wikipediu.

Nú 42 árum eftir fyrsta Dag Jarðar stöndum við frammi fyrir vandamálum sem tekur alla jarðarbúa að leysa. Þess vegna hefur Dagur Jarðar aldrei verið mikilvægari en í dag. Sjá nánar um það sem um er að vera í heiminum í dag á Degi Jarðar á hinum opinbera Jarðadagsvef earthday.org.

Jarðardagur hefur þó ekki náð að festa sig almennilega í sessi hér á landi. Skýringin er vafalaust sú að við höfum okkar eigin „Dag umhverfisins“ þremur dögum seinna og í ofanálag fellur okkar fyrsti sumardagur oft einmitt á þennan dag. Ekki þó í ár.

Grænn apríl stendur þó fyrir ruslasöfnun í höfuðborginni þar sem borgarbúar eru hvattir til að ganga um borgina og hreinsa upp rusl, með svarta ruslapoka að vopni. Sorpa tekur við pokunum en hvetur alla til að halda málmum og pappír sér í pokum, því flokkun er forsenda endurvinnslu.

Grafík: Jörðin og umhverfið, Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir ©Náttúran.is.


nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
22. apríl 2012 12:14
Uppruni: Náttúran.is
Deildu með vinum

Verið er að uppfæra Endurvinnslukortið

Endurvinnslukortið - virkni með hendi

Nú standa yfir uppfærslur og breytingar á formi Endurvinnslukortsins hér á vefnum. Við biðjumst velvirðingar á truflunum sem geta átt sér stað að þeim sökum.

Þeir aðilar sem taka á móti endurvinnanlegu sorpi á landinu og hafa enn ekki látið okkur vita af breytingum og viðbótum eru beðnir að láta okkur vita af þeim sem allra fyrst svo að þær rati inn á nýja kortið og Endurvinnslukorts-appið sem við munum kynna á Degi umhverfisins og 5 ára afmæli vefs Náttúrunnar þ. 25. apríl nk.

Hafið samband í síma 483 1500 eða skrifið okkur á nature@nature.is.

 


nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
21. apríl 2012 18:20
Uppruni: Náttúran.is
Deildu með vinum

1234567101112

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012   2013  
jan   feb   mar   apr   maí   jún   júl   ágú   sep   okt   nóv   des  
123467910111213141517181920212223242526282930

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.