:

Sameinumst til bjargar Jörðinni

Reykjavík slekkur ljósin, ásamt öðrum borgum í 135 löndum, í dag laugardaginn 31. mars frá kl. 21:07 til kl. 22:07, til að halda uppá Earth Hour.

Viðburðurinn nefnist Earth hour eða Jarðarstund og byggist á því að borgir og borgarbúar dragi úr allir lýsingu í eina klukkustund.

Jarðarstundin er sögð eitt fjölmennasta samstillta einstaklingsframtak í umhverfismálum sem á sér stað árlega. Stundina sem líður er jafnframt kjörin til þess að hugsa um umhverfismál.

Sjá viðburðinn Við slökkvum ljósin á Facebook.


nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
31. mars 2012 10:35
Uppruni:
Deildu með vinum

Varúð erfðabreytt

Þann 2. janúar sl. tók ný reglugerð gildi hér á landi en hún felur í sér að merkja þarf sérstaklega allar þær matvörur og dýrafóður sem inniheldur eða samanstendur af erfðabreyttum lífverum eða er framleitt úr eða inniheldur innihaldsefni sem eru framleidd úr erfðabreyttum lífverum. Reyndar átti reglugerðin að taka gildi þ. 1. september 2010 en þáv. landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra frestaði gildistökunni hvað varðar merkingu matvælanna. Sjá alla reglugerðina hér.

Hér til hægri er tillaga að varnaðarmerki sem ætti heima á síkum vörum en tekið skal fram að þetta er ekki opinbert merki heldur sjálfstæð tillaga mín og skal skoðuð sem frjáls og listræn útfærsla með húmor. Hún styðst þó við raunveruleg gjörning sem á sér stað við erfðabreytingar. Þ.e. að taka gen úr mönnum, svínum eða öðru óskildum lífverum og skjóta inn í t.d. bygg, hafra og maís til að ná fram ákveðnum eiginleikum sem oftast hafa þó einnig dökkar hliðar og ógna líffræðilegum fjölbreytileika og mannlífi á stórum svæðum jarðar, t.a.m. í Indlandi og Bandaríkjunum.

Mér er ekki kunnugt um að sérstakt varnaðarmerki hafi verið hannað af stjórnvöldum en í reglugerðinni kemur fram að merkingarnar sem nú eru lögboðnar eigi að koma fram í texa á umbúðum varanna (sjá 4. grein hér að neðan). Ég geri það þó að tillögu minni að merki verði hannað sem að taki af öll tvímæli um það hvort að vörur innihaldi erfðabreyttar lífverur eða ekki.

4. gr.
Um merkingar erfðabreyttra matvæla

Auk þess að uppfylla ákvæði reglugerðar um merkingu matvæla skulu erfðabreytt matvæli sem falla undir reglugerð þessa uppfylla eftirtalin skilyrði:

a. þar sem matvælin eru erfðabreyttar lífverur skal orðið „erfðabreytt“, koma fram innan sviga strax á eftir vöruheiti;

b. þar sem matvælin samanstanda af fleiri en einu innihaldsefni skulu orðin „erfðabreytt“, eða „framleitt úr erfðabreyttu (nafn innihaldsefnisins)“ koma fram innan sviga strax á eftir viðkomandi innihaldsefni í innihaldslýsingu;

c. þar sem innihaldsefnið er auðkennt með nafni flokks skulu orðin „inniheldur erfðabreytta (nafn á lífverunni)“ eða „inniheldur (nafn innihaldsefnisins) sem framleitt er úr erfðabreyttri (nafn lífverunnar)“ koma fram á innihaldslýsingu;

d. þar sem innihaldslýsing er óþörf skulu orðin „erfðabreytt“ eða „framleitt úr erfðabreyttri (nafn lífverunnar)“ koma fram á merkingunni;

e. upplýsingarnar sem vísað er til í liðum a og b mega koma fram í neðanmálsgrein við innihaldslýsingu. Í því tilviki skal prenta þær með letri sem er að minnsta kosti jafnstórt og letrið á innihaldslýsingunni. Þar sem innihaldslýsing er óþörf skulu þær koma greinilega fram á merkingunni;

f. þegar matvælum er dreift án umbúða eða þau eru seld í litlum neytendaumbúðum þar sem yfirborðið er minna en 10 fersentimetrar þar sem það er stærst skulu upplýsingar sem krafa er gerð um í þessari grein ávallt vera sýnilegar þar sem matvælunum er stillt upp eða þar við hliðina á umbúðunum sjálfum í leturstærð sem er auðlæsileg.

Hafi matvælafyrirtæki ekki uppfyllt kröfur um merkingar erfðabreyttra matvæla samkvæmt reglugerð þessari er dreifingaraðila heimilt að merkja matvælin í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar enda liggi fyrir staðfesting á efnainnihaldi matvælanna frá matvælafyrirtækinu.

Grafík: Varúð erfðabreytt, Guðrún A. Tryggvadóttir. Creative Commons.


nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
30. mars 2012 10:52
Uppruni: Náttúran.is
Deildu með vinum

Betri heim til einskis?

Þessi skopmynd hefur verið að þvælast um á netinu og sýnir vel kjánaskap þeirra sem berjast gegn breytingum til batnaðar. Umhverfisstefnan er svo miklu meira en einungis tilraun til að bjarga heimsástandinu fyrir horn.

Fleiri myndir höfundar má sjá á usatoday.com


nánar

Einar Bergmundur
29. mars 2012 17:33
Uppruni:
Deildu með vinum

Byggingar, inniloft og heilsa

Tilefni þessa málþings er vakning á mikilvægi heilnæms innilofts. Aðilar sem láta sig málið varða hafa ákveðið að stofna Íslandsdeild ISIAQ (International Society of Indoor Air Quality), IceIAQ .Tilgangur IceIAQ  er að vera leiðandi í því að kynna mikilvægi loftgæða innandyra. Mikilvægi sem byggir á vísindalegri þekkingu og viðurkenndu stjórnsýslu- og lagaumhverfi. Markmið og tilgangur IceIAQ er eftirfarandi:

  • Hvetja til umbóta í málefnum loftgæða innandyra og stuðla þannig að því að byggingar séu ekki heilsuspillandi og hefti ekki lífsgæði eða vellíðan almennings hvort sem er á eigin heimili, vinnustað, skóla eða opinberri stofnun.
  • Stuðla að samvinnu við erlend sambærileg félagasamtök, ISIAQ og erlendar deildir innan ISIAQ.
  • Stuðla að vexti og viðgangi alþjóðasamtakanna ISIAQ.
  • Styðja við faglega umræðu um málefni loftgæða innandyra á meðal heilbrigðisstétta, vísindamanna og aðila innan byggingariðnaðarins.
  • Stuðla að uppfræðslu almennings um mikilvægi loftgæða innandyra.
  • Fá ólíkar stéttir og hagsmunaaðila til þess fjalla um loftgæði í byggingum.
  • Hvetja stjórnvöld til þess að setja lög og reglugerðir sem stuðla að bættum loftgæðum innandyra  og öflugri neytendavernd.

Umhverfi okkar á sinn þátt í  vellíðan, lífsgæðum og þróun sjúkdóma.  Fólk á norðlægum slóðum ver um 90% af tíma sínum innandyra og því er inniloft  stór hluti af okkar umhverfi. Rannsóknir hafa sýnt að ýmis öndunarfæraeinkenni, bólgusvörun og fleiri einkenni og kvilla megi rekja til óheilnæms innilofts. Það er ýmislegt í innilofti sem þarf að huga að, loftskipti, raki, hitastig og agnir, hvort sem þær eru af lífrænum uppruna eða frá tilbúnum efnum. Það eru mikil verðmæti fólgin í því að loftgæði í byggingum séu góð. Bæði heilsufarsleg fyrir einstaklinga og ekki síst fyrir vinnuveitendur og menntastofnanir.

Dæmi eru um að þegar loftskipti eru bætt og rakavandamál löguð aukast afköst starfsfólks í vinnu. Einnig dregur verulega úr tíðni fjarvista. Loftgæði í skólum skipta einnig miklu máli fyrir vellíðan, afköst og viðveru nemenda og kennara.

Ástand innilofts ræðst af því hvernig byggingarnar okkar eru hannaðar, byggðar, hvert er efnisval byggingarefna, innréttinga, húsgagna og lifnaðarháttum þeirra sem þar dvelja.

Dagskrá

13:00–15:00 Fundarstjóri Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs HÍ

  • 13:00-13:10 Setning: Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar
  • 13:10-13:30 Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir BSc líffræði, meistaranemi í lýðheilsuvísindum við HÍ
  • Inniloft og heilsa, stofnun IceIAQ.
  • 13:30-14:10 Matthias Braubach sérfræðingur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO - Leiðarvísar frá WHO um inniloft, raka og myglu og önnur efni  með tilliti til heilsu.
  • 14:10-14:30 Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sérfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands - Sveppir í íslenskum húsum, tegundir og helstu búsvæði þeirra
  • 14:30-14:50 Davíð Gíslason  sérfræðingur í lyf- og ofnæmislækningum - Yfirlit um tíðni rakaskemmda og tengsl við öndunarfæraeinkenni
  • 14:50-15:10 Michael Clausen sérfræðingur í barna – og ofnæmislækningum - Mygla og öndunarfæraeinkenni hjá börnum
  • 15:10-15:30 Umræður

Kaffi 15:30-15:50 15:50 – 18:00 Fundarstjóri Maríus Þór Jónasson M.Sc. í Framkvæmdastjórnun, Byggingartæknifræðingur B.Sc.

  • 15:50-16:05 Björn Karlsson  forstjóri Mannvirkjastofnunar - Ný mannvirkjalög, ný byggingarreglugerð og kröfur um loftgæði
  • 16:05-16:20 Björn Marteinsson sérfræðingur hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Leki, loftraki og rakaskemmdir
  • 16:20-16:35 Jóhannes Helgason sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu - Inniloft á vinnustöðum á íslandi: Yfirlitsfyrirlestur um aðkomu Vinnueftirlitsins að inniloftsmálum
  • 16:35-16:50 Vanda Úlfrún Liv Hellsing  sérfræðingur á sviði umhverfisgæða hjá Umhverfisstofnun - Loftgæði í grunnskólum Reykjavíkur.
  • 16:50-17:05 Benedikt Þorri Sigurjónsson meistaranemi í heilsuhagfræði við HÍ - Raki í húsnæði á íslandi og heilsufarsleg tengsl, EUSILC gögn.
  • 17:10-17:20 Magnús Jensson arkitekt - Veðurbyggingar
  • 17:20-17:30 VSÓ ráðgjöf - Byggingar og inniloft
  • 17:30-17:40 Haukur Örn Birgisson hæstaréttarlögmaður hjá Ergo lögmönnum - Réttarstaða kaupenda vegna leka- og rakavandamála í fasteignum
  • 17:40 Umræður

nánar

Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir
29. mars 2012 13:49
Uppruni: Samtök um heilnæmt inniloft
Deildu með vinum

Rúrí flytur gjörninginn, VOCAL VI

Blá rúrí

Í dag kl. 17 flytur Rúrí gjörninginn, VOCAL VI í LIstasafni Íslands en yfirlitssýning á verkum hennar stendur nú yfir í safninu.

Undanfarin ár hefur Rúrí flutt gjörninga sem hafa yfirskriftina VOCAL, þar sem hún blandar saman videóvörpun, hljóði og texta. Vocal VI er nýjasta verkið í þessari röð gjörninga, en það var frumflutt í Ars Electronica Center í Linz í Austurríki í haust og er nú flutt í fyrsta sinn á Íslandi.

Rúrí hefur flutt VOCAL gjörninga víða meðal annars í Austurríki, Ítalíu, Þýskalandi og Bandaríkjunum auk Íslands. Rúrí hefur hefur í fjóra áratugi verið í framvarðasveit íslenskra listamanna og einn helsti gjörningalistamaður þjóðarinnar, sen vinnu fyrst og fremst út frá forsendum hugmyndalistarinnar. Nokkuð er um liðið síðan hún flutti síðasta gjörning á Íslandi og býðst hér fágætt tækifæri til að upplifa gjörning í flutningi hennar. Verkið tekur um 10 mínútur í flutningi og er á ensku.

Ljósmynd: Rúrí við fossagjörning sinn í Hallgrímskirkju þ.27. ágúst 2005.  Ljósm. Guðrún A. Tryggvadóttir.


nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
29. mars 2012 10:26
Uppruni:
Deildu með vinum

1234131415

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012   2013  
jan   feb   mar   apr   maí   jún   júl   ágú   sep   okt   nóv   des  
12345678911121314151617181920212223262728293031

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.