:

Mikilvægt að hafa samband við nágranna sína

Almannnvarnardeild Ríkislögreglustjóra

Mikilvægasti hlekkurinn í almannavarnakerfinu eru íbúar þessa lands. Nú þegar margir sitja í myrkrinu og líður hugsanlega ekki vel þá eru góðir nágrannar og vinir verðmætir. Einnig eru margir sem ekki geta fylgst með fréttum eða nálgast upplýsingar. Gott er að kanna hvernig þeir hafa það og sjá hvort stutt símtal eða önnur samskipti geti ekki létt lundina.  Á slíkum náungakærleik hefur almannavarnakerfið á Íslandi verið byggt upp. Í dag eru 50 ár síðan að fyrstu lög um almannavarnir voru samþykkt á Alþingi þann 29. desember 1962.


nánar

Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra
29. desember 2012 21:21
Uppruni:
Deildu með vinum

Hættistigi almannavarna lýst yfir vegna óveðurs

Almannnvarnardeild Ríkislögreglustjóra

Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið í samráði við lögreglustjórana á Selfossi, Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu, Akranesi, Borgarfirði og Dölum, Snæfellsnesi, Vestfjörðum, Blönduósi, Sauðárkróki, Akureyri og Húsavík, að lýsa yfir hættustigi almannavarna vegna óveðurs sem spáð hefur verið á vestan- og norðanverðu landinu.

Búast má við miklu óveðri og ófærð auk þess sem stórstreymt er í fyrramálið og getur veðrið haft áhrif á sjávarhæð.  Við þessar aðstæður má einnig búast við ísingu á raflínum.

Óvissuástandi var lýst yfir á Vestfjörðum öllum fimmtudaginn 27. desember vegna snjóflóðahættu.  Í framhaldi af því var hættuástandi vegna snjóflóðahættu lýst yfir á Patreksfirði, í Hnífsdal, á Flateyri og á Ísafirði auk þess sem nokkrir bæir á Vestfjörðum hafa verið rýmdir.

Óvissuástandi vegna snjóflóðahættu var lýst yfir á Mið-Norðurlandi föstudaginn 28. Desember.

Skilgreining á hættustigi almannavarna:
Ef hættumat leiðir í ljós að hætta fer vaxandi verður að grípa til tafarlausra ráðstafana til að tryggja sem best öryggi þeirra sem á svæðinu búa/dvelja. Slíkt er gert með því að efla viðbúnað neyðar- og öryggisþjónustunnar á viðkomandi svæði, ásamt því að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða s.s. rýmingar, brottflutnings eða lokunar svæða. Einnig eru leiðbeiningar og viðvaranir einkennandi fyrir þetta stig.

 


nánar

Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra
28. desember 2012 18:47
Uppruni:
Deildu með vinum

Stormur og sumstaðar fárviðri

Almannnvarnardeild Ríkislögreglustjóra

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vekur athygli á veðurspá frá Veðurstofu Íslands þar sem spáð er ofsaveðri (20-32 m/s) fyrst á Vestfjörðum síðdegis í dag en V-lands í nótt og á morgun.  Stórhríð er spáð á norðanverðu landinu í nótt og frammá morgun.  Einnig er bent á að samfara óvenju lágum loftþrýstingi er stórstreymt.

Veðurhorfur næsta sólarhringinn: Austlæg átt, 8-13, en NA 15-23 NV-til. Slydda eða snjókoma með köflum, en rigning syðst og austast. Gengur í norðaustan 20-25 á Vestfjörðum síðdegis. Norðan 20-33 og snjókoma V-lands í nótt og á morgun, hvassast á Vestfjörðum og sunnanverðu Snæfellsnesi. Breytileg átt, 5-13 á SA- og A-landi og rigning eða snjókoma. Fer að draga úr vindi seint annað kvöld en hvessir þá A-lands. Hiti víða 0 til 5 stig, en kólnar á morgun.  (Veðurspá gerð 28.12.2012 13:26)

Snjóflóðavakt Veðurstofunnar hefur lýst yfir hættustigi vegna snjóflóða á eftirfarandi svæðum.
Ísafirði reit 9
Flateyri, reit 4 
Hnífsdal, reit 8 
Súðavík, reit 5 og 6
Patreksfirði, reit 4 og 10

Einnig hafa íbúar á um átta bæjum verið beðnir að rýma þá.

Nánari upplýsingar um svæðin og reitina er að finna undir Snjóflóða- og kynningabæklingar um rýmingaráætlanir.

Auk þess hefur verið lýst yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Mið-Norðurlandi.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Veðurstofan og viðkomandi lögreglustjórar og almannavarnayfirvöld fylgjast vel með framvindu mála.  Lögregla og björgunarsveitir verða í viðbragðsstöðu.

Lagt er til að fólk verði ekki á ferðinni að óþörfu á meðan veðrið gengur yfir.  Þeir sem þurfa að vera á ferðinni á þessum tíma eru beðnir að fylgjast vel með veðri og færð áður en lagt er af stað.

Tilkynning um lokanir vega frá lögreglunni á Vestfjörðum

 

Að beiðni lögreglunnar á Vestfjörðum var eftirfarandi tilkynning send á alla GSM síma á Norðanverðum Vestfjörðum, frá Þingeyri að Ísafjarðardjúpi.

Tilkynning frá lögreglunni á Vestfjörðum. Súðavíkurhlíð er lokuð, upplýsingar í síma 1777.

Kl.18:00 verður lokað fyrir umferð um Eyrarhlíð, Suðureyrarveg, Flateyrarveg og Gemlufallsheiði.

 

Sem fyrr eru þeir sem þurfa að vera á ferðinni hvattir til að fylgjast vel með veðri og færð áður en lagt er af stað.


nánar

Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra
28. desember 2012 15:18
Uppruni:
Deildu með vinum

Kort og gjafapappír

Kort sem ekki eru með aðskotahlutum s.s. málmfilmum eða gerviefnum má setja í venjulega pappírsendurvinnslu en kort með aðskotahlutum eru ekki endurvinnanleg. Það sama gildir um gjafapappír. Jólapappír er oft með mikið af málmum og er því óendurvinnanlegur. Flestan jólapappír má  setja í pappírsgáma. Sterk rauður jólapappír (meirihlutinn rauður) og mikið gylltur pappír er óvelkominn í pappírsgáminn og fer þá í almennt sorp. Annar jólapappír má fara í bláu grenndargámana á höfuðborgarsvæðinu eða skila í pappírsgáma á endurvinnslustöðvum.

Upplýsingar úr Endurvinnslukorts smáforriti (appi) Náttúrunnar fyrir iPhone og iPad, nú aðgengilegt ókeypis í AppStore.

Grafík: Guðrún A. Tryggvadóttir.


nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
25. desember 2012 13:51
Uppruni: Náttúran.is
Deildu með vinum

Endurvinnslukortið komið í AppStore

Endurvinnslukortið IconNáttúran.is hefur gefið út Endurvinnslukort fyrir iPhone og iPad og er það nú aðgengilegt í AppStore. Smáforritið er ókeypis og notkun þess líka. Þeir sem nota það yfir 3G eða 4G samband greiða fyrir gagnflutning sem reynt er að halda í lágmarki.

Tilgangur Endurvinnskortsins er að einfalda leit að réttum stað fyrir hvern endurvinnsluflokk og stuðla þannig að betri flokkun ásamt betri og markvissari endurvinnslu.

Endurvinnslukortið verður einnig fáanlegt fyrir Android innan skamms.

Helstu samstarfsaðilar við gerð Endurvinnslukortsins eru; Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Sorpa bs., Úrvinnslusjóður, Umhverfissjóður Landsbanka Íslands, Gámaþjónustan og Sorpstöð Suðurlands bs. og þakkar Náttúran.is þeim fyrir gott samstarf.

Endurvinnslukortið fyrir iPhone og iPad má nálgast í App Store.

Sækja forritið

 

 

 

Með þvi að skanna inn QR kóðan má fara beint á forritð í iPhone eða iPad

Náttúran.is vonar að Endurvinnslukortið verði gagnlegt verkfæri og auki meðvitund um endurvinnslu og förgun úrgangs.


nánar

Einar Bergmundur
22. desember 2012 11:34
Uppruni: Náttúran.is
Deildu með vinum

1234145146147

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012   2013  
jan   feb   mar   apr   maí   jún   júl   ágú   sep   okt   nóv   des  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.