:
Hávaða- og loftmengun á nýársnótt
Hávaða- og loftmengun fylgir gjarnan flugeldunum, skottertum og blysum. Búist er við stilltu veðri um þessi áramót og því líklegt að svifryksmengun í Reykjavík liggi í loftinu fram eftir nóttu.
„Loftmengunin fer eftir veðurskilyrðum á ný ársnótt,“ segir Anna Rósa Böðvarsdóttir hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og að búast megi við töluverðri mengun ef veðurspáin gengur eftir. Styrkur svifryks (PM10) hefur oft verið yfir mörkum á ný ársnótt. Svifryk hefur farið 19. sinnum yfir heilsuverndarmörk á árinu 2009. Heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.
Þeir sem eru með viðkvæm öndunarfæri, astma eða lungnasjúkdóma þurfa að gæta sín um áramótin vegna loftmengunar. Farstöð loftmengunar í Reykjavík verður staðsett að þessu sinni á horni Stakkahlíðar og Miklubrautar og munu upplýsingar úr henni væntanlega gefa góða mynd af loftmengun í íbúðahverfi á ný ársnótt.
Búast má við að um það bil 550 tonn af flugeldum standi landsmönnum til boða á flugeldasölum að þessu sinni. 425 tonn af nýjum flugeldum voru flutt inn á árinu samkvæmt upplýsingum frá Ólafi G. Emilssyni, aðstoðaryfirlögregluþjóni á höfuðborgarsvæðinu. Gera má ráð fyrir að eldri birgðir vegi að minnsta kosti 125 tonn.
Feikilegt magn af rusli hlýst af flugeldum. Kristinn Ólafsson framkvæmdastjóri Landsbjargar segir að púður sé 10% af heildarþyngd flugelda, restin sé aðallega pappi. Þessum pappa og öðrum skotleifum þarf fólk að skila sjálft á endurvinnslustöðvar. Flugelda má ekki setja í tunnur við heimili fólks.
nánar
Gunnar Hersveinn
30. desember 2009 12:39
Uppruni:
Risatertur og skotkökur í endurvinnslu
Bardagatertur, skotkökur og risatertur hafa átt vaxandi vinsældum að fagna meðal almennings og því er líklegt að víða standi tómir tertukassar á ný ársdagsmorgni. Mælst er til þess að kaupendur flugelda á höfuðborgarsvæðinu fari sjálfir með umbúðir og aðrar skotleifar í endurvinnslustöðvar Sorpu.
Þrátt fyrir að verulega hafi dregið úr innflutningi á flugeldum er búist við að kveikt verði í sex til sjö hundruð tonnum af flugeldum í kringum áramótin. Íbúar á Höfuðborgarsvæðinu eru því hvattir til þess að skila umbúðum og leifum af flugeldum og tertum á endurvinnslustöðvar Sorpu sem opna 2. janúar.
Flugeldar eiga ekki að fara í sorptunnur heimila. Þær myndu fyllast of fljótt og einnig er hætta á íkveikju. Meginreglan er að íbúar í hverju borgarhverfi hreinsi sjálfir sitt nánasta umhverfi eftir að hafa kvatt gamla árið með flugeldum og fari með leifarnar í Sorpu 2. janúar.
Búast má við svifryksmengun á gamlárskvöld og ný ársnótt því skottertur og blys valda miklum reyk. Heilsuverndarmörk fyrir svifryk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Svifryk hefur farið yfir heilsuverndarmörk á ný ársdag undanfarin ár.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Gunnar Hersveinn
29. desember 2009 16:38
Uppruni:
Afmælisfundur Hins íslenska náttúrufræðifélags
Hið íslenska náttúrufræðifélag hélt í dag afmælisfund í tilefni af 120 ára afmæli sínu. Yfirskrift hennar var „Náttúruminjasafn Íslands: Hvernig safn viljum við eignast?“ Fjölluðu ræðumenn um það ástand sem lengi hefði ríkt í húsnæðismálum Náttúruminjasafnsins, sem áratugum saman hefur verið á hrakhólum. Í lok fundarins voru pallborðsumræður þar sem Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra voru meðal gesta.
Ráðherrarnir tóku undir með fundargestum að tími væri kominn til að leysa úr málum safnsins. Menntamálaráðherra benti á að innan ráðuneytisins væri nú í gangi vinna við að móta framtíðarsýn safnsins, og vonast hún til að þeirri vinnu ljúki nú á vormánuðum.
„Náttúran á Íslandi er sálin í samfélaginu. Hún er allt í kring og þar af leiðandi hættir okkur kannski til að taka henni sem sjálfsagðri,“ sagði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra við þetta tilefni. Segir hún áratugalanga baráttu fyrir fullnægjandi húsnæði fyrir Náttúruminjasafnið jafnframt vera til marks um þá forgangsröðun sem viðgengist hefur, að náttúran og náttúruvernd hafi ekki notið sannmælis. Undanfarið hafi áherslur í náttúruvernd breyst og vegur náttúrunnar fari vaxandi, svo von sé til að úr fari að rætast.
Mynd: Frá 120 ára afæmlisfundi Hins íslenska náttúrufræðifélags. Svandís Svavarsdóttir umhvrerfisráðherra tók þátt í pallborðsumræðum á afmælisfundinum.
nánar
Umhverfisráðuneytið
28. desember 2009 22:53
Uppruni: Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Flugeldar, björgunarstarf og umhverfið
Náttúran.is skoraði fyrir þarsíðustu áramót á söluaðila flugelda á landinu öllu (sjá áskorunina) að sýna ábyrgð og taka það upp hjá sér að upplýsa viðskiptavini sína um umhverfisáhrif er af flugeldum og blysum hljótast og hvetja til réttrar meðhöndlunar á því mikla magni úrgangs sem hlýst af sprengigleði landans. Því er skemmst frá að segja að margir dyggir stuðningsmenn björgunarsveitanna tóku þessu afar illa og fannst að sér vegið. Þó var tilgangur áskorunnar einungis að minna á að björgunarsveitirnar sjálfar gætu haft frumkvæði að jákvæðri umræðu og hvatt til ábyrgðar og hvetja til flokkunar. Umræðan um umhverfisáhrif af bruna flugelda og rétta förgun hrökk í gang og mikill fjöldi fólks sá ástæðu til að setja orði í belg hér á vefnum auk þess sem viðtal var tekið við mig á Rás 2. Með því að taka málið til umræðu virtist Pandoru-boxið hafa verið opnað upp á gátt. Það verður því áhugavert að fylgjast með því hvort að neikvæð umhverfs- og heilsuáhrif af flugeldum verði til umræðu annars staðar í þjóðfélaginu í ár.
Málið snýst fyrst og fremst um það að allir taki ábyrgð á sínum gjörðum, þeir sem selja, þeir sem kaupa, þeir sem sjá um sorpið og ekki síst þeir sem eiga að sjá um umhverfismennt í þjóðfélaginu. Náttúran.is er einmitt einn af þeim aðilum sem að vilja sjá um það síðastnefnda, þ.e. upplýsa um umhverfisþáttinn. Hluti af upplýsingagjöf og skapandi umræðu byggir á því að velta upp möguleikum um úrlausnir eða betrumbætur. Þúsund tonn af eiturefnum og úrgangi kemur okkur öllum við og fyrst á dagskrá er að skoða stöðuna eins og hún er í dag.
Undanfarin ár hefur mikil aukning orðið í sölu flugelda, (jafnvel þrátt fyrir hrunið) en jafnframt hafa einkaaðilar komið inn á svið sem að björgunarsveitirnar töldu sitt áður. Þetta gremst björgunarsveitunum því að sala flugelda er aðaltekjulind sveitanna. Þó má segja að með aukinni samkeppni hafi aukning í sölu fylgt í kjölfarið svo það er ekki víst að minni peningar komi í kassann en áður.
Nú á tímum mikillar umhverfisvakningar um allan heim og á öllum sviðum neyslu og viðskipta þarf að taka til endurskoðunar þá mengun sem við mennirnir berum ábyrgð á. Einstaklingar jafnt sem fyrirtæki í framleiðslu, þjónustu og sölu verða því að taka ábyrgð á gjörðum sínum. Ef allir taka ábyrgð gengur dæmið upp, annars ekki. Þetta eru staðreyndir málsins.
Umhverfisáhrif af sprengingum flugelda, hvort sem er hljóðmengun, loftmengun eða efnamengun er nokkuð sem að þarf að róta upp og rannsaka. Framleiðsla og flutningar valda einnig gífurlega neikvæðum áhrifum. Flugeldar eru flestir framleiddir í Kína, við aðstæður sem að ekki teljast til fyrirmyndar út frá heilsu- og siðgæði.
Í grein á vef Neytendasamtakanna sem birtist fyrir þremur árum síðan er m.a. talað um þetta atriði og að sjálfsögðu um mengunina og ábyrgð innflytjenda. Þar segir m.a.: Púður er auðvitað mikilvægt hráefni í flugeldaframleiðslu en til að flugeldar geti skartað fallegum litum eru notuð ýmis kemísk efni og þungmálmar. Til að fá grænan lit er notað baríum, rauður fæst með strontíum, gulur fæst með því að nota natríum og hinn vandasami blái litur krefst þess að notaður sé kopar sem er varasamur í meðförum.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
28. desember 2009 14:16
Uppruni: Náttúran.is
Nýtt frá Móður jörð - Rauðrófugló
Komin er á markað ný vara frá Móður Jörð og nefnist hún „Rauðrófugló“. Rauðrófugló Móður Jarðar er bragðmikil grænmetisblanda sem bragðast vel með villibráð, lambasteikum, svínakjöti og flestum grænmetisréttum. Einnig með ýmsum ostum, t.d. gráðaostum.
Rauðrófur eru þekktar fyrir hollustu og við mælir framleiðandinn Eymundur Magnússon bóndi í Vallanesi með þeim sem hollri viðbót með öllum mat.
Innihald: Rauðrófur, laukur, epli, hrásykur, eplaedik, vatn, engifer, hvítlaukur, kóríander, sjávarsalt, eldpipar.
Á vörunni er auk merki Móður jarðar merki Austfirskra krása en Vallanes er þátttakandi í matarklasanum Austfirskar krásir. Sjá alla meðlimi í Austfirskum krásum hér á Grænum síðum.
Helstu sölustaðir Rauðrófuglóar eru: Melabúðin, Yggdrasill, Krúska, Fjarðarkaup, Heilsuhúsið, Maður lifandi, Brauðhúsið, Hjá Jóa Fel, Blómaval, Hagkaup, Ostabúðin Skólavörðustíg, Ostahúsið, Búrið Nóatúni 17 og Café Valný og Samkaup á Egilsstöðum.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
28. desember 2009 11:06
Uppruni: Móðir Jörð ehf, Vallanesi

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jún |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jún |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jún |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jún |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jún |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | júl |
| 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | júl |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | júl |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | júl |
| 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | 02 | 03 | ágú |
fimmtudagur 20. júní
00:00 - 05:00
Sáðalmanak: Blóm
Sjá grein: Sáðalmanak fyrir júní 2013
13:00 - 23:59
Sáðalmanak: Blóm
Sjá grein: Sáðalmanak fyrir júní 2013



Náttúran.is á Facebook.




