:

Saltorkuver - Raunhæf framtíðarmúsík?

Í gær birtist á forsíðu Morgunblaðsins frétt um nýja virkjanaleið á teikniborðinu en með nýrri tækni væri hægt að framleiða um sjö terawattstundir af orku við íslenskar árósa. Slíkar virkjanir ganga undir nafninu osmósuvirkjanir eða saltorkuver en orkan fæst með í því að skilja vatn og sjó með himnum sem hafa osmótíska eiginleika og framkalla þannig mikinn þrýsting sjávarmegin við himnuna. Þrþstingurinn er síðan það afl sem er virkjað með hreyflum.

Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands skrifaði grein á innsíðum blaðsins þar sem að osmósutæknin er ágætlega útlistuð og tilkynnir jafnframt um það að stofnunin ráðgeri að vinna að rannsóknum á möguelikum ósótískra virkjana hér á landi. Stofnunin hyggur á samstarf við Landsvirkjun og Statkraft í Noregi sem hefur unnið að rannsóknum á þessu sviði um árabil. Dofri Hermannssons hafði reifað möguleikana á slíkum orkverum í fyrra og hafði þá sjálfsagt kynnt sér rannsóknir Statkraft. Það er ánægjulegt að Nýsköpunarmiðstöð áformi að taka þessa nýja tækni til rækilegrar skoðunar sem framtíðarmöguleika fyrir Ísland en það liggur í augum uppi að útfærsla virkjana af þessu tagi verða ekki á dagskrá á næstu 20 árum eða svo. Niðurstöður rannsókna gætu einnig leitt í ljós að virkjanir af þessu tagi henti ekki íslenskum aðstæðum. En tíminn einn leiðir það í ljós.

Sjá nánar á vef Statkraft.

Sjá greinina „Á skal að ósi virkja“ eftir Þorstein I. Sigfússon:


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
3. janúar 2008 09:56
Uppruni: Náttúran.is
Deildu með vinum

Umhverfisráðherra lýsir yfir vantrú á réttmæti áætlaðra Þjórsárvirkjana

Þórunn Sveinbjarnardóttir unnin mynd

Í viðtali við Ríkistútvarpið í dag sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra að Íslendingar þurfi að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á öllum sviðum samfélagsins án tillits til þess hvort alþjóðlegir samningar um það nást eða ekki. Ráðherrann segir orka tvímælis, svo ekki sé meira sagt, að fara í virkjanir í neðri hluta Þjórsár miðað við þau umhverfisáhrif sem myndu hljótast af þeim í byggð.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
2. janúar 2008 17:45
Uppruni: Náttúran.is
Deildu með vinum

Svifryksmengun yfir mörkum á nýársmorgun

Svifryksmengun fór yfir heilsuverndarmörk á ný ársdag. Á fyrsta hálftíma ársins mældust gildin um 500 míkrógrömm á rúmmetra við færanlegra mælistöð mengunarvarna Umhverfissviðs sem nú er staðsett í Hlíðahverfi. „Þetta verður að teljast mjög mikið því bæði var vindhraði töluverður og úrkoma nokkur,“ segir Anna Rósa Böðvarsdóttir hjá mengunarvörnum Umhverfissviðs. Heilsuverndarmörk fyrir svifryk (PM10) á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Sólarhringsgildi svifryks við mælistöðina í Hlíðahverfi var 53 míkrógrömm á rúmmetra (µg/m3) á ný ársdag en við mælistöð Umhverfissviðs við Grensásveg var það undir heilsuverndarmörkum eða 33 µg/m3. Athygli vekur að um 18.00 á ný ársdag mældist hálftímagildi svifryks 455 µg/m3 í Hlíðunum - sennilega vegna flugeldaskota í hverfinu.

þessi grein er lengri, lesa meira...



Umhverfissvið Reykjavíkurborgar
2. janúar 2008 15:36
Uppruni: Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar
Deildu með vinum

Umhverfisbaráttan árið 2007

Náttúran.is hefur fjallað um málefni sem snerta náttúru og umhverfi frá opnun vefsins þ. 25. apríl sl. Fréttir sem birtust fyrir þann tíma á vefnum Grasagudda.is eru einnig birtar hér á Náttúrunni og spannar Náttúran.is því umhverfistengdar fréttir allt aftur til ágústmánaðar 2005. Til að fá sem best yfirlit yfir það sem borið hefur á góma á sviði náttúru- og umhverfismála á sl. ári er best að skoða árið í heild sinni. Hægt er að leita efitr áhugasviðum eða málefnum í leitarvélinni hér efst á síðunni eða skoða fréttir hvers mánaðar fyrir sig. Sjá flýtival hér að neðan:


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
1. janúar 2008 23:47
Uppruni: Náttúran.is
Deildu með vinum

123107157182204205206207

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012   2013  
jan   feb   mar   apr   maí   jún   júl   ágú   sep   okt   nóv   des  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Vörur
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.