:
Þá er það jólaruslið!
Það hlaut að koma að því; jólapappír, umbúðir, borðar, kassar, ruslið eftir aðfangadagskvöld er komið og allt þarf þetta að fara eitthvert, en hvert. Það er óskaplega freistandi að troða bara öllu í stóra svarta plastpoka og troða ofan í tunnu...eða eitthvað. En ef allir gerðu það...þvílík sóun. Það er til betri leið, allavega fyrir umhverfið og hún er að sortera allt heila klabbið í flokka sem síðan má annað hvort endurnota eða henda á rétta staði. Nokkur ráð: pakkaskraut, borða, kassa, poka og bönd sem enn standa fyrir sínu má nota aftur og jólapappírinn má líka nota aftur á næstu jólum eða afmælum jafnvel þó að eitthvað af honum hafi rifnað, (þökk sé mismunandi pakkastærðum).
þessi grein er lengri, lesa meira...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
25. desember 2005 14:36
Uppruni:
Í Fossvogskirkjugarði á aðfangadag
Að heimsækja leiði látinna vina og ættmenna er siður sem að hefur sínar björtu og fallegu hliðar. Á aðfangadag, jóladag og yfir hátíðirnar allar er í kirkjugörðum landsins gjarnan kveikt á útkertum svo loga megi ljós á leiðinu. Við gerðum slíkt hið sama og gengum frá Fossvoginum yfir í Fossvogskirkjugarð eins og síðastliðin ár en okkur rak í rogastans yfir reykjarmekkinum sem lá frá kirkjugarðinum í blíðviðrinu. Því datt okkur í hug að varla gæti þetta verið eina leiðin til að lýsa upp minningu um látna ástvini. Þau kerti sem seld eru af bæði stórmörkuðum og líknarstofnunum sem útikerti virðast vera miklir mengunarvaldar og höfum við því ásett okkur að skimast um eftir öðrum möguleikum á næsta ári. Ef einhver veit um framleiðanda að minna mengandi útikertum eða er með gott ráð, endilega látið í ykkur heyra.
Myndin er tekin í duftreitnum í Fossvogskirkjugarði á aðfangadag 2005
Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
25. desember 2005 13:58
Uppruni: Guðrún Arndís Tryggvadóttir
„Ljós í myrkri“ í Hallgrímskirkju á vetrarsólstöðum
„Náttúruunnendur“ standa fyrir dagskrá í Hallgrímskirkju á miðvikudagskvöldið 21.12.2005, kl. 20:00 undir yfirskriftinni „Ljós í myrkri“ - tónlist og hugvekjur við vetrarsólstöður til stuðnings íslenskri náttúru.
Kynnir er Arnar Jónsson.
Tónlist flytja: Amina, Ólöf Arnalds, Guðrún Ásmundsdóttir, Laufey Sigurðardóttir, Sesselja Óskarsdóttir, Elísabet Waage, Herdís Anna Jónsdóttir, Steef van Oosterhout, Hörður Áskelsson, Kolbeinn Bjarnason, Kristnn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson.
Hugvekjur flytja: Ásta Þorleifsdóttir jarðfræðingu, Ólafur Páll Jónsson heimsspekingur, Katrín Fjeldsted læknir, Ósk Vilhjálmsdóttir myndlistarmaður og sr. Sigurður Pálsson.
Aðgangseyrir er enginn en frjáls framlög eru vel þegin við innganginn.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
19. desember 2005 11:26
Uppruni:
„Börn náttúrunnar“ í miðbænum fyrir jól
Demeter vottaðar vörur eru hluti af vöruúrvalinu.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
17. desember 2005 11:03
Uppruni: Börn náttúrunnar sf
Vistvernd í verki hvetur til vistvæns jólahalds!!
Um jólin eru margir sem bæði gefa og fá hluti sem varla nokkrum hafði dottið í hug að þeir óskuðu sér.Á þessu ári væri vert að leita nýrra og frumlegri leiða.
Gefum það fínasta og dýrmætasta sem við eigum, tíma og sameiginlegar upplifanir.
Þurfum við að spá í vistvæn jól?
þessi grein er lengri, lesa meira...
Bryndís Þórisdóttir
13. desember 2005 17:54
Uppruni: Vistvernd í verki

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | maí |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | maí |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | maí |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | maí |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jún |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jún |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jún |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jún |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jún |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | júl |
sunnudagur 19. maí
00:00 - 23:59
Sáðalmanak: Ávextir
Sjá grein: Sáðalmanak fyrir maí 2013



Náttúran.is á Facebook.




